Atvinnulíf

Krakkarnir segja hina pabbana miklu betri í elda­mennskunni

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Benedikt Egill Árnason, framkvæmdastjóri og einn eigenda LOGOS, stendur sig vel í eldamennskunni svo lengi sem hann er að fylgja eftir uppskriftum Eldum rétt. Annars sígur í og þegar frúin er erlendis, kvarta krakkarnir sáran yfir eldamennskunni hans. Með á mynd er hin 14 vikna Katla Dís.
Benedikt Egill Árnason, framkvæmdastjóri og einn eigenda LOGOS, stendur sig vel í eldamennskunni svo lengi sem hann er að fylgja eftir uppskriftum Eldum rétt. Annars sígur í og þegar frúin er erlendis, kvarta krakkarnir sáran yfir eldamennskunni hans. Með á mynd er hin 14 vikna Katla Dís. Vísir/Vilhelm

Benedikt Egill Árnason, framkvæmdastjóri og einn eigenda LOGOS, gefur sjálfum sér 8.5 í einkunn í eldamennsku. Svo lengi sem hann sé að fylgja eftir uppskriftum Eldum rétt. Þegar eiginkonan er erlendis, kvarta krakkarnir sáran yfir eldamennskunni hans.

Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.

Hvenær vaknar þú á morgnana?

„Ég er frekar snemma á ferðinni, er yfirleitt kominn af stað vel fyrir sjö.“

Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?

„Ég get nú ekki sagt að það séu miklar gæðastundir á virkum dögum. Ég skanna helstu vefmiðla en ég hef vanið mig á með árunum að bíða með lestur tölvupósta þangað til ég er kominn á skrifstofuna. 

Ég ýti svo aðeins við krökkunum okkar þremur með misgóðum árangri. 

Á leiðinni í vinnuna leita símtölin oft til Möltu en þar búa foreldrar mínir og bróðir minn ásamt fjölskyldu hans. Ég er arfaslakur að fara í ræktina en nýlega erum við æskuvinirnir farnir að spila padel í Tennishöllinni í Kópavogi á miðvikudagsmorgnum og ég held að það fyrirkomulag sé komið til að vera.

Um helgar snýst lífið um að koma krökkunum á æfingarnar sínar í fótbolta, körfubolta og frjálsum íþróttum, og svo lífgar nýjasti fjölskyldumeðlimurinn okkar heldur betur upp á morgnana, hvolpurinn Katla Dís.“

Á skalanum 1-10, hversu góður kokkur ertu?

Ég gef mér 8,5 í einkunn þegar ég er að fylgja uppskriftunum í Eldum rétt, en við höfum mikið verið að vinna með það á undanförnum árum. 

Ef þess nýtur ekki við þá hrapar einkunnin í eldhúsinu. 

Krakkarnir kvarta mikið yfir matseldinni minni, sérstaklega þegar konan mín er erlendis og ég fæ reglulega að heyra það hvað pabbar vina þeirra séu miklir gæðakokkar.

Reyndar er ég alltaf að verða betri að elda rjúpur á jólunum, sem eru eldaðar til hliðar við annan jólamat, en aðrir í fjölskyldunni snerta ekki ennþá við þeim. Það breytist örugglega í ár.“

Benedikt segist oftast fara skammarlega snemma að sofa en í skipulagi fylgir hann eftir ýmsum ráðum sem hann lærði á tímastjórnunarnámskeiði fyrir nokkrum árum. Þessa dagana er Benedikt meðal annars að undirbúa komu framkvæmdastjóra stærstu lögmannstofa Norðurlandanna til Íslands í janúar.Vísir/Vilhelm

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?

„Verkefnin eru sem betur fer alltaf mjög fjölbreytt og skemmtileg. Um helmingur af starfinu felst í að vinna í málum fyrir viðskiptavini og hinn helmingurinn fer í að vinna að málefnum stofunnar. Í báðum tilfellum er ég heppinn að hafa frábært samstarfsfólk og hef ég unnið með mörgum í að verða tuttugu ár. Svo er líka ánægjulegt hversu mörgum viðskiptavinum ég hef náð að fylgja í jafn langan tíma.

Það er mikið um að vera þessa dagana í kaupum og sölum fyrirtækja, endurfjármögnunum og endurskipulagningum. Svo er sérstaklega gaman að sjá hversu mikil gróska er í nýsköpun um þessar mundir, það virðist vera til endalaust mikið af fólki á Íslandi með góðar hugmyndir og drifkraft til þess að fylgja þeim eftir. Það hjálpar eflaust líka að það er frábært fólk til staðar í íslensku sjóðunum sem er að fjárfesta í nýsköpunarfyrirtækjum, og smæðin á Íslandi er örugglega styrkleiki í þessu umhverfi.

Oft eiga stærstu verkefnin það til að taka yfir líf manns og það er búið að vera mikið af þeim á undanförnum tveimur árum, t.d. sölurnar á Kerecis, Mílu og Tempo, en þar getum við nýtt stærð og sérfræðiþekkingu stofunnar, ásamt því að innvikla lögfræðingana okkar á London skrifstofunni okkar. Hins vegar eiga minni verkefnin það til að vera meira krefjandi og það eru oftast þau sem halda manni vakandi á næturnar.

Gagnvart stofunni sjálfri þá eru verkefnin afar fjölbreytileg. Þessa dagana er ég meðal annars að undirbúa heimsókn frá framkvæmdastjórum frá stærstu lögmannsstofunum á Norðurlöndunum sem eru að koma til okkar eftir áramót, en þessir fundir eiga sér stað árlega og eru mjög gagnlegir.“

Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?

„Ég sótti tímastjórnunarnámskeið fyrir nokkrum árum og það var margt þar sem ég hef reynt að tileinka mér.

Til dæmis kom þar fram að ef maður er A-týpa þá er betra að bóka fundi eftir hádegi, maður eigi að reyna að svara einföldum tölvupóstum fljótt og að skrifa lista í upphafi hvers vinnudags hvað eigi að komast yfir þann daginn. 

Þessu hef ég nokkurn veginn fylgt og svo er ég með lengri tíma verkefnalista til þess að reyna að komast hjá því að eitthvað falli milli skips og bryggju. 

Og þegar mikið er um að vera á ég það til að senda mér tölvupósta á kvöldin til minnis um hvað ég þurfi að koma í verk daginn eftir.

Þetta hljómar eflaust allt mjög skipulagt en ég held að maður verði alltaf leitandi að einhverju betra.“

Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?

„Ég fer oftast skammarlega snemma að sofa á kvöldin, oft um tíuleytið, og þá alltaf undir einhverjum hlaðvarpsþáttum. Mæli mjög með History Hit og In our time hjá BBC Sounds.“


Tengdar fréttir

Fannst liggja beint við að verða forseti Íslands

Ragnhildur Ágústsdóttir, einn stofnenda og eigenda Lava Show er oftar en ekki kölluð LadyLava. Ragnhildur ólst upp í forsetatíð Vigdísar Finnbogadóttur og fannst því liggja beinast við að verða forseti þegar hún yrði stór. Eða jafnvel álfkona.

Hætti að hlaupa og keypti sér pylsu, kók og súkkulaði

Magnús Hafliðason forstjóri Dominos viðurkennir að geta nefnt alla helstu leikendur Love Island og eins að hann sé nokkuð stressaðri en eiginkonan á morgnana yfir því hvort allt náist ekki á tíma.

B-týpu fjölskylda með haganlega útfært vekjaraklukkuhandrit

Sigríður Ása Júlíusdóttir, hönnunarstjóri og stofnandi hönnunar- og auglýsingastofunnar Tvist, rifjar upp trúðaskóna úr Gallabuxnabúðinni þegar hún var unglingur og henni fannst ótrúlega töff. Þótt níðþungir væru og í hrópandi ósamræmi við þá písl sem hún sjálf var þá.

„Ég var eiginlega ástfangin af John Taylor í Duran Duran“

Sólrún Kristjánsdóttir, framkvæmdastýra Veitna, er kölluð „Just Do It,“ innan Orkuveitu samstæðunnar. Sem unglingur var hún ástfangin af John Taylor, tók Skonrokk upp á VHS og hámhorfði aftur og aftur á myndbönd Duran Duran.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×