Áskorun

Jólakvíði og stress: Mörgum líður mjög illa en segja ekkert endi­lega frá því

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Við eigum erfitt með að vera besta útgáfan af okkur sjálfum þegar kvíði og vanlíðan taka völdin í aðdraganda jóla. Slík vanlíðan getur til dæmis bitnað á börnunum okkar, þótt það sé auðvitað ekki ætlunin. Í dag rýnum við í nokkur góð ráð.
Við eigum erfitt með að vera besta útgáfan af okkur sjálfum þegar kvíði og vanlíðan taka völdin í aðdraganda jóla. Slík vanlíðan getur til dæmis bitnað á börnunum okkar, þótt það sé auðvitað ekki ætlunin. Í dag rýnum við í nokkur góð ráð. Vísir/Getty

Nú þegar líður að jólunum eykst jólastressið hjá mörgum. Margt sem ætlunin er að gera og hjá mörgum er þetta líka álagstími í vinnunni. Hjá sumum geta vikurnar fyrir jólin þó einkennst af meiru en jólastressi, því sumt fólk upplifir þennan árstíma sem vanlíðunartíma í kvíða.

Sem getur haft afleiðingar og bitnar til dæmis oft á okkar nánustu, ekki síst börnunum okkar. Því að þegar okkur líður illa er erfitt fyrir okkur að vera besta útgáfan af okkur sjálfum.

En er einhver munur á kvíða eða stressi?

Jú, á breskri sálfræðingasíðu er fjallað um hátíðarkvíðann sérstaklega í pistli. Þar segir að hátíðarkvíði sé staðreynd hjá mörgum og að hann tengist oftar en ekki jólum og áramótum.

Munurinn á milli jólastressi og kvíða er að við skiljum jólastressið oft betur og hvers vegna það er. Sem dæmi má nefna stressast margir yfir því að þurfa að hlaupa á milli búða að kaupa jólagjafir og aðrir stressast yfir því hvort þeir nái að halda budgeti eða óttast að fjárútlátin verði of mikil í desember.

Jólakvíðinn er öðruvísi því að þar erum við að glíma við vanlíðun sem við náum ekki að útskýra eða skilja á jafn einfaldan hátt. Eina sem við vitum er að við virðumst vera með viðvarandi kvíðahnút í maganum þegar jólin nálgast og erum uppfull af áhyggjum. En vitum ekki endilega alltaf hvers vegna. Fyrir vikið erum við ekkert endilega að ræða þessa vanlíðan okkar. 

Skýringar á þessum kvíða geta verið margslungnar og ná jafnvel aftur til einhverra aðstæðna eða atvika í æsku. Í dag ætlum við hins vegar að rýna í nokkur ráð sem geta hjálpað okkur að sporna gegn þessari vanlíðan.

#1: Viðurkennum vandann

Fyrsta og jafnvel mikilvægasta skrefið okkar er að viðurkenna að okkur líður illa. Já, við eigum í vanda vegna þess að við erum kvíðin og líður illa. 

Prófaðu að segja þetta upphátt við sjálfan þig, því að það getur hjálpað okkur að viðurkenna og samþykkja einhverja líðan sem við síðan viljum vinna bug á.

#2: Gerðu meira fyrir sjálfan þig

Nú eru margir strax farnir að hrista hausinn. Glætan að það sé hægt nú þegar styttist í jólin! 

En jú, eitt sem er mikilvægt að gera er að gefa meira í okkur sjálf. Því að orka gefur orku. Og gleði smitar. Að skella sér í aukatíma í ræktinni frekar en að baka smákökur eða fara í jólastúss gæti hljómað skringilega, en vittu til, þessi aukatími gæti gefist þér sérstaklega vel.

Það sama á við að gefa sér fleiri ánægju- og gleðistundir. Þó þannig að í vanlíðan, streitu og kvíða er alltaf gott að varast öll vímuefni. Því vímuefni eins og áfengi geta aukið á kvíðatilfinningu.

#3: Segðu oftar Nei

Það sem eykur á kvíðatilfinninguna okkar í aðdraganda jóla er hversu mikið við erum að færast í fang. Við viljum mæta alls staðar þar sem ætlast er til að við mætum. Þetta getur verið vinnugleði en líka viðburðir sem tengjast börnunum okkar. Við ætlum okkur líka að gera milljón hluti fyrir jólin.

En veistu hvað? Jólin koma og eru alveg yndisleg þótt við séum ekki að mæta alls staðar né gera allt. Þannig að segðu oftar Nei.

Að segja Nei á líka við um þau samtöl sem við eigum við okkur sjálf í huganum um allt sem við ætlum okkur að gera, fara eða framkvæma. Gott er að átta okkur á því hvað er í raun mikilvægt og hvað ekki, með því að skrifa niður verkefnalista og vera alltaf með yfirsýn yfir það hvað við ætlum að gera. Þegar verkefnalisti er gerður er mikilvægt að hann sé ekki of langur því verkefnalisti á að hjálpa þér en ekki að auka á kvíðatilfinninguna.

#4: Farðu sparlega með Já-in

Eitt besta sparnaðarráðið fyrir jólin getur síðan falist í því að vera spör á Já-in okkar. Ætlum okkur ekki of mikið; hvorki í framkvæmdum, gjafakaupum eða viðburðarhaldi. Að upplifa árlegan kvíða fyrir jólin er lýjandi og dregur úr því að jólin séu sá ánægjutími sem þau svo sannarlega eru. Vöndum okkur því við það hvenær við segjum Já við okkur sjálf og vinnum frekar í því að njóta fleiri stunda sem veita okkur næringu, vellíðan og gleði.

Önnur almenn góð ráð eru til dæmis að:

  • Passa vel upp á svefninn okkar
  • Draga andann djúpt inn og út í nokkur skipti þegar við finnum jólakvíðann gera vart við sig
  • Ræða við okkar nánustu um hvernig okkur líður og fá aðstoð maka og fjölskyldu til að skipta betur með okkur verkum á því sem nauðsynlegt er að gera í aðdraganda jóla
  • Leita til fagaðila.

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×