Lífið

Davíð Helga­son og bleikur flamingó mættu til Halla

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Flamengóinn vakti eðli málsins samkvæmt mikla athygli á Önnu Jónu.
Flamengóinn vakti eðli málsins samkvæmt mikla athygli á Önnu Jónu.

Veitinga-og skemmtistaðurinn Anna Jóna í Tryggvagötu bauð í gær góðum gestum í heimsókn til að fagna lífinu og kynna allskonar skemmtilegar breytingar, eins og því er lýst í tilkynningu.

Staðurinn er eins og frægt er í eigu Haraldar Þorleifssonar athafnamanns sem nefndi staðinn í höfuðið á móður sinni, Önnu Jónu Jónsdóttur, sem lést þegar hann var einungis 11 ára gamall. Hann hefur áður sagst vilja fylla uppáhalds hús móður sinnar af lífi.

Í tilkynningu frá Önnu Jónu segir að stefnan sé sett á að búa til gleðistað þar sem góðar og hressar vinkonur, og vinir hittast og skemmta sér. Þá voru nýir smáréttaseðlar kynntir, helgarbröns og sérstök búbblugleðistund.

Glódís Guðgeirsdóttir kippti sér ekki upp við flamengóann.

Í tilefni af því bauð Haraldur í partí þar sem nýr fjörmálastjóri staðarins, eins og því er lýst, Margrét Erla Maack bauð gesti velkomin á nýja staðinn. Hekla Elísabet uppistandari byrjaði svo með látum og því næst stigu á stokk tónlistarkonurnar GDRN, Ragga Gísla og Ásdís sem stilltu stuðið í botn.

Það fór vel á með Degi B. Eggertssyni, borgarstjóra og leikarahjónunum Unni Ösp Stefánsdóttur og Birni Thors.

Fullt var út úr húsi og þurfti flamingói sem vafraði um staðinn, að hafa sig allan við til þess að halda jafnvægi í mannhafinu. Það var margt um manninn í partíinu.

Staðurinn var vel sóttur í partíinu.

Meðal gesta voru, Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, leikarahjónin Unnur Ösp Stefánsdóttir og Björn Thors, nýju foreldrarnir Saga Sig og Villi naglbítur, Elísa Reid forsetafrú kom með tvo sendiherra með sér, Davíð Helgason frumkvöðull og eiginkona hans Isabella Lu Warburg, baráttueiginkonurnar Ingileif Friðriksdóttir og María Rut, Selma Björnsdóttir söng-og leikkona, leikararnir Ingvar E. Sigurðsson, Jörundur Ragnarsson og Gunnar Hansson, hönnunarkóngurinn og stofnandi Epal Eyjólfur Pálsson.

Davíð Helgason í Unity mætti með Isa­bellu Lu War­burg eiginkonu sinni. Fyrir aftan þau er Arnhildur Lillý Karlsdóttir sem var með glæsilegan hatt.

Birna Einarsdóttir fyrrverandi bankastjóri, Edda Falak nýkrýndur Íslandsmeistari í Jiu-Jitsu, stuðboltarnir Sif Jóhannesdóttir, Diljá Ámundadóttir, Allý Sveinsdóttir og Sóley Kristjánsdóttir, vinkonurnar Edda Björgvins og Vala Matt, rithöfundurinn Kamilla Einarsdóttir, fjölmiðlakonurnar Brynja Þorgeirsdóttir, Marta María og allskonar skemmtileg fólk.

Nína Richter í hrókasamræðum á góðri stundu.

Fólk naut lífsins á Önnu Jónu, þar sem var nóg pláss þrátt fyrir að stór flamengói væri á gólfinu. Rakel Tómasdóttir fór yfir málin.

Gestum var boðið upp á freyðivín. En ekki hvað.

Kolbeinn Tumi Daðason ræðir við kærustu sína Selmu Björnsdóttur og Önnu Sigríði Arnarsdóttur. Eiginmaður Önnu, Pétur Blöndal, er í baksýn.

Edda Falak og Ingileif Friðriksdóttir fylgjast glaðar í bragði með dóttur Ingileifar og Maríu Rutar, sem hefur meiri áhuga á ljósmyndaranum.

GDRN söng sína ljúfu tóna í partýinu.

Sóley Kristjánsdóttir og Sif Jóhannsdóttir voru í góðum gír. Þær eru nýkomnar til landsins eftir vel heppnaða göngu á Jakobsstígnum.

Hekla Elísabet Aðalsteinsdóttir skemmti liðinu.

Villi naglbítur og sonur lyfta þumli til Ingileifar Friðriksdóttur og dóttur hennar. Saga Sig ljósmyndari brosir út að eyrum.

Ingvar E. Sigurðsson, Sigtryggur Magnason og Jörundur Ragnarsson.

Hjónin Brynja Nordquist og Þórhallur Gunnarsson létu sig að sjálfsögðu ekki vanta í gleðina.

Edda Björgvinsdóttir, Vala Matt og Halli skemmtu sér konunglega yfir skemmtiatriðum.

Það er alltaf líf og fjör í kringum Kamillu Einarsdóttur.

Birna Dröfn Jónasdóttir og Marta María Jónasdóttir í góðum félagsskap.

Ragga Gísla og Eliza Reid forsetafrú. Ragga tók að sjálfsögðu lagið.

Ásdís María Viðarsdóttir kom, sá og sigraði hjörtu gesta á Önnu Jónu í gær.

Margrét Erla Maack sá svo sannarlega um að halda uppi stuðinu.

Ragga Gísla er með'etta.

Ásdís María Viðarsdóttir og Halldór Eldjárn voru hress.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×