Atvinnulíf

Að takast á við leiðin­legustu samstarfsfélagana

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Það getur tekið vel á taugarnar að starfa náið með einhverjum sem þér finnst drepleiðinlegur einstaklingur alla daga. Eða karakter sem þér einfaldlega ekki líkar. Narsismi, smámunasemi, neikvæðni og smjatt getur einkennt suma samstarfsfélaga.
Það getur tekið vel á taugarnar að starfa náið með einhverjum sem þér finnst drepleiðinlegur einstaklingur alla daga. Eða karakter sem þér einfaldlega ekki líkar. Narsismi, smámunasemi, neikvæðni og smjatt getur einkennt suma samstarfsfélaga. Vísir/Getty

Þrátt fyrir orðatiltækið „við getum valið okkur vini en ekki vandamenn,“ er ekkert sambærilegt orðatiltæki til yfir leiðinlega samstarfsfélaga.

Því um þá gildir það sama og ættingja: Við getum ekki valið með hverjum við störfum. Ekki nema þá að við hættum í starfinu okkar til að komast undan leiðinlegum vinnufélögum.

Jafnvel einstaklingum sem okkur finnst ömurlegir hreint út sagt.

Jody Foster er meðhöfundur bókarinnar „The Schmuck in My Office“ segir þrjár týpur samstarfsfélaga vera óvinsælastar. Þessar þrjár týpur eru:

Narsistinn

Baunateljarinn

Smjattarinn

Þau ráð sem Foster gefur til að takast á við þessa vinnufélaga eru eftirfarandi:

Narsistinn

Þessi týpa er ofboðslega ánægð með sjálfan sig og telur sig alltaf hafa rétt fyrir sér. Þótt það þýði að stíga alvarlega á tær annars eða að stjórna með klækindum.

Flestir vilja helst halda sig í góðri fjarlægð frá narsistum en þó skiptir máli að fara ekki upp á móti viðkomandi, því þá getur fólk lent illa í því. 

Góð leið til að ná þessu jafnvægi er að hrósa þessu fólki reglulega fyrir frábæran árangur. Því narsistar elska að láta dást að sér. Þó þannig að þú sért ekki að fara yfir einhver mörk hjá sjálfum þér í hrósinu.

Annað sem þó skiptir máli er að þegar viðkomandi fer að reyna að státa sig af einhverjum árangri sem telst frekar þinn árangur en hans/hennar, er mikilvægt að þú sýnir að þú standir með sjálfum þér og komir því að hver sannleikurinn er.

Halda síðan áfram að hrósa viðkomandi reglulega.

Baunateljarinn

Á Íslandi tengjum við uppnefnið baunateljarann við nísku eða þá sem eru að passa upp á peninga- og rekstrarmálin og tíma helst engu.

Baunateljarinn í þessu tilfelli vísar þó til fjölmennari hóps því þetta er fólkið sem er svo ofboðslega smámunasamt að það hálfa væri nóg! Oft hrjáir fullkomnunarárátta þessa einstaklinga.

Hérna er tvennt sem skiptir miklu máli: 

Í fyrsta lagi að taka það ekki persónulega þótt viðkomandi sé að kaffæra þig í smámunasemi. Því þetta er eiginleiki sem snýst um karakterinn en ekki hvernig þú stendur þig í starfi.

Hitt er síðan að velja slagina þína. Að leyfa viðkomandi hreinlega að ráða í sumu, sem þú veist innst inni að skiptir þig ekki höfuðmáli hvort eð er. Ekki eyða orku í að láta þetta fara í taugarnar á þér. Frekar að vera á vaktinni þannig að þegar eitthvað er sem þér finnst skipta máli, þá stígur þú niður fæti og stendur á þínu. 

Smjattarinn

Þér gæti þótt þessi einstaklingur nánast ætla að drepa þig úr leiðindum en á sama tíma veistu að það getur verið stórhættulegt að „lenda“ í viðkomandi. Því þessi samstarfsfélagi baktalar og meira til.

Í flestum tilfellum er þetta fólk mjög óhamingjusamt og jafnvel að drepast úr leiðindum í sínu eigin lífi. Þó ekki með hugrekkið til að takast á við hlutina.

Þessir samstarfsaðilar eiga það til að tala alltof mikið um einkalífið í vinnunni og jafnvel um hluti sem þig langar ekkert til að vita um.

Neikvæðni einkennir líka viðkomandi og algeng birtingarmynd er að viðkomandi finnst í rauninni ekkert umræðuefni áhugavert nema það feli í sér neikvæðni, röfl eða baktal.

Mestu máli skiptir í samstarfi við þetta fólk að setja þeim mörk. Aftur og aftur og aftur. Því annars hætta þau ekki. Að taka ekki þátt í röflinu, baktalinu eða smjattinu og láta vita að þú teljir ekki viðeigandi að vera í persónulegu tali eða á trúnó í vinnunni. Lykilatriðið er að gera þetta á sem jákvæðasta háttinn og án þess að stuða viðkomandi.

Loks er vert að minnast á að það að takast á við leiðinlega vinnufélaga er ekki það sama og að takast á við vinnufélaga sem þú ert að upplifa vanlíðan út af. Til dæmis vegna orðaskipta eða hegðunar sem þér finnst óviðunandi, óþægileg, ógnandi eða særandi. Ef svo er, á betur við að ræða við mannauðssvið eða yfirmann.


Tengdar fréttir

Mikilvægt að stjórnendur setji eftirlitsgleraugun á sig reglulega

„Það kemur mér á óvart hvað við gerum oft ráð fyrir að samskipti fólks á vinnustað eigi að ganga snurðulaus fyrir sig, svona eins og einhver sjálfvirk vél,“ segir Ragnhildur Bjarkadóttir sálfræðingur og einn eigenda Auðnast og bætir við:

Óstundvísi: Alltaf sama fólkið og stuðar alla í kring

Það er einn hundleiðinlegur vani sem því miður sumir hafa: Þeir eru alltaf of seinir. Mæta aðeins of seint til vinnu. Eru aðeins lengur í hádegismat, mætir síðast á alla fundi og svo framvegis.

Fyrir stjórnendur sem eru með nefið ofan í öllu

Það telst úreld stjórnunaraðferð í dag að ofstjórna. Að vera með puttana ofan í öllu sem starfsfólk gerir, fara yfir allt sem gert er, telja sig geta gert hlutina betur eða best, að engum sé treystandi nema þú sért inn í öllu og með tak á öllu.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×