Neytendur

Breyta grenndar­stöðvum í Reykja­vík

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Grenndarstöð af nýjustu gerð með djúpgámum við Laugalæk.
Grenndarstöð af nýjustu gerð með djúpgámum við Laugalæk. Reykjavíkurborg

Grenndarstöðvar í Reykjavík fá margar hverjar nýtt hlutverk á næstu vikum. Þær byrja að taka á móti glerum og málum í staðinn fyrir plast og pappír.

Frá þessu er greint í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Ástæðu breytinganna má rekja til þess að nýtt og samræmt flokkunarkerfi fyrir heimilissorp hefur verið innleitt á höfuðborgarsvæðinu. Breytingarnar verða innleiddar í áföngum og er fjölgun málmagáma stærsta breytingin. 

Alls eru 58 grenndarstöðvar í Reykjavík með samtals 255 gámum.

„Með nýju flokkunarkerfi flokka íbúar heimilisúrgang í fleiri flokka en áður en sveitarfélögum er skylt að safna pappír, plasti, matarleifum og blönduðum úrgangi við hvert heimili,“ segir í tilkynningu borgarinnar.

Fjöldi málmagáma meira en tvöfaldast

Þar segir að eftir að byrjað var að sækja pappír og plast við öll heimili hafi þörfin minnkað fyrir grenndargáma, sem taki við þeim flokkum. Samhliða þessum breytingum sé skylt að flokka gler og málma og því verður gámum sem taka við þessum flokkum fjölgað um meira en helming, eða úr 13 í 29 fyrir áramót.

Málmarnir mega ekki lengur fara lausir í gráu tunnuna eins og áður var leyfilegt.

Á næstu vikum munu eftirfarandi grenndarstöðvar fá ný hlutverk og byrja að taka á móti gleri og málmum í stað plasts og pappírs:

  • Smárakirkja í Hamrahverfi
  • Víkurskóli
  • Norðlingabraut við Bros boli
  • JL húsið
  • Einarsnes
  • Maríubakki

Í Holtagörðum og Orrahólum er nú tekið við málmum og gleri í stað pappírs og plasts. 

Á eftirfarandi stöðvar bætist við málmagámur:

  • Sogavegur
  • Háaleitisbraut
  • Vesturbæjarlaug
  • Spöng
  • Klambratún
  • Suðurfell
  • Þjóðhildarstígur
  • Klambratún
  • Barðastaðir

Frekari breytingar framundan

Merkingakerfi fyrir grenndargáma verður á næsta ári samræmt við nýjar merkingar á heimilisflokkun, og verður merkingin eins og límmiðarnir á tunnunum við heimili fólks. Á sama tíma verða settir upp skynjarar í alla grenndargáma, sem segja til um hvenær gámarnir eru fullir. 

Þá verður ný stöð sett upp til reynslu í Gufunesi fyrir málma og gler. Í framhaldinu verður grenndarstöðvum, sem taka við málmum fjölgað enn frekar og tekið við málmum og gleri á öllum stöðvum grenndarstöðvum borgarinnar.

Lagt er upp með að grenndarstöðvar með málmum, gleri og textíl séu alltaf í mesta lagi í 500 metra radíus frá heimili þar sem því er við komið. Stærri stöðvar sem taka einnig við pappír og plasti verða í eins kílómetra radíus frá heimilum.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×