Körfubolti

Keflavík mætir Keflavík í bikarnum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Keflavík mun eiga lið í átta liða úrslitum VÍS bikars kvenna í körfubolta, annað hvort A- eða B-lið.
Keflavík mun eiga lið í átta liða úrslitum VÍS bikars kvenna í körfubolta, annað hvort A- eða B-lið. vísir/hulda margrét

Keflavík mætir b-liði sínu í sextán liða úrslitum VÍS bikars kvenna í körfubolta. Dregið var í sextán liða úrslit bikarkeppninnar í dag.

Tveir innbyrðis leikir Subway deildar liða verða í sextán liða úrslitum kvenna. Valur og Breiðablik eigast við og nýliðarnir Stjarnan og Snæfell etja kappi. Bikarmeistarar Hauka mæta Ármanni.

Í sextán liða úrslitum karlamegin eru þrír innbyrðis leikir Subway deildar liða. Höttur sækir Hamar heim, Grindavík og Haukar eigast við og Breiðablik og Íslandsmeistarar Tindastóls. Bikarmeistarar Vals mæta KV.

Leikirnir í sextán liða úrslitunum fara fram 9.-11. desember næstkomandi. Bikarúrslitin verða leikin dagana 19.-24. mars á næsta ári.

Sextán liða úrslit VÍS bikars kvenna

  • Njarðvík – Tinda­stóll
  • Val­ur – Breiðablik
  • Ham­ar/Þ​ór – Fjöln­ir
  • Þór Ak. – Aþena
  • Grinda­vík – ÍR
  • Stjarn­an – Snæ­fell
  • Hauk­ar – Ármann
  • Kefla­vík – Kefla­vík b

Sextán liða úrslit VÍS bikars karla

  • Ármann – Stjarn­an
  • KV – Val­ur
  • Álfta­nes – Fjöln­ir
  • Ham­ar – Hött­ur
  • Grinda­vík – Hauk­ar
  • Sel­foss – Kefla­vík
  • KR – Þrótt­ur V.
  • Breiðablik – Tinda­stóll



Fleiri fréttir

Sjá meira


×