Lífið

Kysstust fyrst á Kaffi­barnum

Íris Hauksdóttir skrifar
Þau Þyri Huld og Hrafkell eru nýjustu viðmælendurnir í viðtalsliðnum Ást er.
Þau Þyri Huld og Hrafkell eru nýjustu viðmælendurnir í viðtalsliðnum Ást er. aðsend

Þyri Huld Árnadóttir og Hrafnkell Hjörleifsson kysstust í fyrsta sinn á Kaffibarnum, eins og svo margir aðrir. Þau hafa verið óaðskiljanleg síðan þá og eiga í dag tvo drengi. 

Þyri Huld starfar sem dansari og grænkeri en hún sagði nýverið upp störfum hjá Íslenska dansflokknum og segir nýja tíma í þann mund að hefjast. 

„Ég var að komast inn í Pilates kennara nám í Hollandi en það er eini staðurinn í Evrópu þar sem hægt er að fá Romana authentic Pilates kennara réttindi. Þessa dagana er ég að kenna mikið og er með spírunámskeið ásamt Hildi Ómars vinkonu minni. Þar erum við að kenna fólk að spíra fræ og fræðast um lifandi fæði. 

Þyri Huld leggur mikla áherslu á hollt matarræði og heldur reglulega námskeið í grænkera matreiðslu.aðsend

Ég er líka virk á Instagram þar sem ég er að deila lifandi lífstíl uppskriftum og fróðleik.“

Spurð hvernig hún lýsi eiginmanninum, Hrafnkeli segir Þyri hann vera besta manni í heimi:

„Hann starfar sem hagfræðingur en er sömuleiðis mikill hlaupagarpur og frábær faðir. Hann gerir líka besta hummus í heimi sem er mikill kostur.“

Þyri Huld segir ekkert rómantískara en að kynnast maka sínum í brúðkaupi.aðsend

Hvernig kynntust þið? 

„Það var í gegnum sameiginlega vini. Þau voru að gifta sig sumarið sem við vorum að kynnast. Það er ekkert rómantískara en að hittast í brúðkaupi. Eftir brúðkaupið fórum við á stefnumót og löbbuðum upp Esjuna. Ég mæli með að fara í fjallgöngu á stefnumóti það er bæði skemmtilegt og fallegt að vera saman úti í náttúrinni og eiga gott spjall og á sama tíma gera góða æfingu.“

Eitt af fyrstu stefnumótum parsins var í fjallgöngu síðan þá hafa drengirnir tveir bæst í hópinn og arka nú með foreldrum sínum. aðsend

Þyri Huld er nýjasti viðmælandinn í viðtalsliðnum Ást er.


Fyrsti kossinn: „Við kysstumst fyrst Kaffibarnum eins og margir fyrstu kossar. Það var eftir útskriftina mína úr Listaháskólanum árið 2011.“

Uppáhalds rómantíska kvikmyndin mín er: „Romeo+Juliet. Hún er svo svo rómantísk og listræn mynd.“

Fjölskyldan á flakki um miðbæinn.aðsend

Uppáhalds break up ballaðan mín er: „Baby með Donnie &Emerson.“

Lagið okkar: „Ilaló, lag sem var verið að spila út um allt í Bólivíu þegar við vorum að ferðast þar árið 2014. Fólk var úti á götu allan daginn að dansa og æfa samhæfða dansa. Við ferðuðumst um Suður Ameríku í nokkra mánuði með bakpoka á bakinu. Æðislegur tími sem mótaði sambandið okkar. Lentum í allskonar skemmtilegum ævintýrum sem við rifjum oft upp og hlægjum að minningunum.“

Þyri Huld segir rómantískt stefnumót vera í sundi og gufu.aðsend

ÞyriMér finnst rómantískt stefnumót vera: „Að mínu mati er það að vera saman í útlöndum og ramba inn á veitingastað. Ganga um borgina. Setjast niður horfa á mannlífið og spjalla saman og hlægja. 

Mér finnst hversdagslegir hlutir líka mjög rómantískir eins og að fara út á róló með strákana okkar. 

Efst á listanum væri samt að fá pössun og fara tvö saman í sund og gufu.“

Maturinn: „Kóngasalat ein og við köllum það. Risastórt salat með fullt af spírum, avokató, túrmerik blómkáli og sætum kartöflum úr ofninum toppað með kókos og tahini sósu.“

Þau Þyri og Hjörleifur hafa ferðast víða um heiminn.aðsend

Fyrsta gjöfin sem ég gaf kærastanum mínum: „Bolur sem ég straujaði á fíla, Við vorum með eitthvað grín í gangi og ég tók það bara alla leið. Fór í litur og föndur og fann út hvernig ég gæti sett þessa mynd á bolinn. Straujaði síðan myndina á bol sem ég keypti í Rúmfatalagernum.“

Fyrsta gjöfin sem kærastinn minn gaf mér: „Hann gaf mér ofsalega fallegt hálsmen.

Þyri Huld segir ástmann sinn vera allt fallegt sem byrjar á stafnum S.aðsend

Kærastinn minn er: „Sætur, skemmtilegur og stór, allt sem byrja á S.“

Rómantískasti staður á landinu: „Upp í sveit undir berum himni með norðurljósum og stjörnum.“


Ást er: „Traust og hlátur.“


Tengdar fréttir

Römbuðu á hvort annað eftir erfiða tíma

Turtildúfurnar Sísí Ingólfsdóttir, listamaður og Birgir Örn Guðjónsson lögreglumaður hafa verið bestu vinir frá fyrstu kynnnum. Biggi bað Sísíar þann 17. júní síðastliðinn og hafa þau boðið sínum nánustu til sannkallaðrar ástarhátíðar næsta sumar í Vilnius.

Fann­ey Sandra tók fyrsta skrefið: „Ég var ung og feimin“

Fanney Sandra Albertsdóttir og Garðar Gunnlaugsson hafa verið saman í sjö ár en þau eiga von á seinna barni sínu síðar á þessu ári. Fyrir á Garðar fjögur börn úr fyrri samböndum. Hjónin kynntust á skemmtistaðnum Austur og segir Fanney Sandra það hafa verið ást við fyrstu sín. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×