Atvinnulíf

Konan sér oft um hlátursköstin rétt fyrir svefninn

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Teitur H. Syen, framkvæmdastjóri mannauðs og gæða hjá Kynnisferðum, sem starfar undir vörumerkinu Icelandia, fékk algjört hláturskast með vinnufélögunum núna í vikunni. En segir konuna sína nokkuð góða í að fá hann til að hlæja rétt fyrir svefninn.
Teitur H. Syen, framkvæmdastjóri mannauðs og gæða hjá Kynnisferðum, sem starfar undir vörumerkinu Icelandia, fékk algjört hláturskast með vinnufélögunum núna í vikunni. En segir konuna sína nokkuð góða í að fá hann til að hlæja rétt fyrir svefninn. Vísir/Arnar Halldórsson

Teitur H. Syen, framkvæmdastjóri mannauðs og gæða hjá Kynnisferðum, sem starfar undir vörumerkinu Icelandia, segir orkustuðullinn sinn bestan á morganana. Teitur fékk hláturskast í vinnunni um daginn, en segir konuna sína líka lunkna við að fá hann til að hlæja rétt fyrir svefninn.

Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fólk fer að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.

Hvenær vaknar þú á morgnana?

„Orkustuðullinn minn er hæstur þegar ég vakna klukkan hálfsjö. Það er enginn dagamunur hjá mér og ég fer á fætur um leið og ég opna augun.“

Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?

„Þegar ég fer í ræktina fer ég í æfingafötin, fæ mér tvö vatnsglös og fer út í bíl. Það setur tóninn fyrir daginn, fyllir mig orku og það er góð tilfinning að vera búinn að gera eitthvað fyrir mig. Til að tryggja að allt sem ég þarf yfir daginn fylgi mér er ég með „skotpallinn“ minn tilbúinn á kvöldin. Morgunmatinn og kaffið fæ ég mér svo í vinnunni.

Dagana sem ég fer ekki í ræktina, sest ég aðeins í hægindastólinn og kíki á fréttir eða tölvupóst, fer svo í sturtu og borða hafragrautinn. Svo setjumst við hjónin í sófann og spjöllum yfir kaffibolla.“

Hvenær og hvers vegna fékkstu algjört hláturskast síðast?

Í þessari viku á vikulegum fundi mannauðs- og gæðasviðs. Á fundinum var meðal annars samstarfsmaður sem er eiginlega sköllóttur. Í lok fundarins var hárprýði annars starfsmanns nefnd. 

Af mér núna af óskiljanlegum ástæðum þá fann ég mig knúinn til að nefna að ég hefði verið með þykkt og krullað hár ekki fyrir alls löngu síðan. Samstarfskona mín benti mér vinsamlega á að ég væri nú kominn í greiðslustöðvun og fyrrnefndur samstarfsmaður okkar bætti því við að hann væri í greiðsluþroti. 

Annars hefur konan mín einstakt lag á því að fá mig til að skella upp úr með sína sýn á hlutum rétt fyrir svefninn.“

Teitur fer yfir verkefnalistann sinn í lok hvers vinnudags. Þau verkefni sem ekki náðist að klára yfir daginn, fá nýja dagsetningu eða úthlutaðan tíma í dagatalinu. Teitur notar Microsoft ToDo fyrir sjálfan sig, Tasks fyrir úthlutuð verkefni en teymis verkefni fara í Planner.Vísir/Arnar Halldórsson

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?

„Ferðaþjónustan er mjög spennandi, kvik og skemmtileg grein. Þar að auki erum við með vöruflutningar og bílaleigu, ásamt því að reka nokkrar leiðir fyrir Strætó. Við erum tæplega 600 sem vinnum á dreifðum staðsetningum, með starfsemi alla daga ársins og í sumum deildum á öllum tímum sólarhrings. 

Starfsánægja og góð þjónusta til viðskiptavina er sameiginlegt markmið okkar allra, sem allt starfsfólk á hlut í. Það er frábær andi hjá okkur, bæði í framkvæmdastjórn þar sem hvert og eitt okkar býr yfir þekkingu og reynslu á sínu sviði og í mannnauðs- og gæðateyminu þar sem fagmennska og léttleiki ríkja.“

Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?

Í lok vinnudags fer ég yfir verkefnalistann minn. 

Verkefni sem ég hef ekki komist í fá annaðhvort nýja dagsetningu á listanum eða fá úthlutaðan tíma í dagatalinu. 

Tólin sem ég nota eru Microsoft ToDo fyrir sjálfan mig, Tasks fyrir verkefni sem ég úthluta, og verkefni teymis fara í Planner.“

Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?

„Orkan næsta dag ræðst af gæði og tíma svefns og ég er frekar kvöldsvæfur. Flesta daga fer ég að sofa milli hálf ellefu og hálf tólf.“


Tengdar fréttir

Forstjórinn sem endar stundum ein á dansgólfinu

B týpan Brynja Baldursdóttir, forstjóri Greiðslumiðlunar Íslands, segir umferðateppuna úr Garðabæ alveg gefa frábærar gæðastundir á morgnana og þegar hún er spurð um tónlist og dans, segir hún það oftast frekar auðvelt að ná sér út á gólfið í sveiflu.

Forstjórinn byrjar daginn á að leggjast aftur upp í rúm og á gaddadýnu

Þórður Guðjónsson, forstjóri Skeljungs, segist vel gaddaður þegar hann fer fram úr og nýtur gæðastundar með eiginkonunni. Þá búinn að liggja á Shakti-gaddadýnu og hlusta á jóga-nidra hugleiðslu. EOS aðferðarfræðin í vinnunni er hans helsta skipulagstól.

Er skrambi góð á grillinu og segir humarpítsuna vera besta

Berglind Ólafsdóttir fjármálastjóri Hörpu er B týpan og á það því til að fara að búa til pestó, múslí eða sultu á kvöldin og enda þá með að fara of seint að sofa. Berglind segist skrambi góð á grillinu á sumrin og þar er það humarpítsa sem varð óvart til í Stykkishólmi um árið, sem er best.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×