Lífið

Stjörnu­fans á NFL: Taylor Swift mætti á annan leik

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Taylor Swift ásamt Brittany Mahomes, Blake Lively, Ryan Reynolds og Hugh Jackman á leik í gær.
Taylor Swift ásamt Brittany Mahomes, Blake Lively, Ryan Reynolds og Hugh Jackman á leik í gær. Kevin Sabitus/Getty Images

Hollywood stjörnur með Taylor Swift saman í broddi fylkingar mættu saman á leik banda­rísku ruðnings­liðanna Kansas City Chiefs og New York Jets þegar þau mættust á MetLi­fe leik­vanginum í New York í gær.

Orð­rómurinn um sam­band Taylor Swift við Tra­vis Kelce, leik­mann Kansas City Chiefs í NFL-deildinni, heldur því á­fram að magnast. Taylor mætti á leikinn í gær á­samt Ryan Reynolds, Blake Lively, Hugh Jack­man og Sabrinu Carpenter.

Banda­ríski slúður­miðillinn Pa­geSix slær því upp að Taylor hafi jafn­framt sést á tali við móður Kelce í stjörnu­stúkunni. Segir þar að vel hafi farið á með þeim tveimur auk þess sem að Taylor hafi rætt við eigin­konur annarra leik­manna.

Þetta er annar leikur liðsins sem Taylor Swift mætir á en hún mætti einnig á leik Chiefs og Chi­cago Bears í lok septem­ber. Þar var hún í rauðum og hvítum Chiefs-jakka. Hvorugt hefur stað­fest að þau séu í raun saman en Kelce hrósaði söng­konunni í há­stert fyrir að hafa mætt á leikinn í við­tölum við fjöl­miðla.

Sást koma út úr íbúð söng­konunnar

Pa­geSix segir í um­fjöllun sinni að Kelce hafi sést yfir­gefa íbúð söng­konunnar í gær­morgun. Fregnir af meintu ástar­sam­bandi þeirra hafa verið á sveimi síðan í septem­ber.

Þá viður­kenndi Kelce opin­ber­lega að hann hefði reynt að gefa söng­konunni síma­númerið sitt. Hann lýsti því hvernig hann hefði mætt á tón­leika hjá henni þegar hún mætti til Kansas.

Þar hafi hann viljað fá að hitta hana annað hvort fyrir eða eftir tón­leikana. Söng­konan hafi það hins vegar fyrir reglu að hitta engan fyrir eða eftir, til þess að spara röddina, að því er banda­ríski slúður­miðillinn full­yrðir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×