Bílar

Ný sería af Tork gaurnum hefst í dag: „Gaman að þykjast vera bankastjóri“

Boði Logason skrifar
James Einar er Tork gaurinn á Vísi. Í nýjustu seríunni, sem frumsýnd er á Vísi í dag, prófar hann Volkswagen Amarok.
James Einar er Tork gaurinn á Vísi. Í nýjustu seríunni, sem frumsýnd er á Vísi í dag, prófar hann Volkswagen Amarok. Tork gaurinn

Ný sería af Tork gaurnum hefst á Vísi í dag en um er að ræða þriðju seríuna af þessum skemmtilegu bílaþáttum.

Í þáttunum prófar James Einar Becker, betur þekktur sem Tork gaurinn, alls kyns bíla og lýsir fyrir áhorfendum kostum og göllum. 

Horfa má á fyrsta þáttinn hér fyrir neðan:

Klippa: Tork gaur - Volkswagen Amarok

„Nýja serían leggst virkilega vel í mig, ég er búinn að hafa góðan tíma til að vinna að henni á skemmtilegasta árstímanum,“ segir James Einar en tökur fóru fram í sumar.  Hann hafi fengið meiri tíma með hverjum bíl fyrir sig og náð að kynnast þeim betur. „Sérstaklega í ljósi þess að ég sé um að mynda allt efnið sjálfur og svo klippa í framhaldinu. Þá er þetta aðeins meira en bara að mynda sér skoðun, blaðra og fara svo heim.“

Of mikill frítími og elskar spegilmynd sína

Í nýju seríunni segist hann prófa jeppa mun meira en í hinum tveimur. „Ég er búinn að vera að vesenast mikið uppi á hálendi í sumar. Mig langaði að prófa þessa jeppa almennilega, ekki bara nota þá í skutla börnunum á fótboltaæfingu eins og oft vill verða.“

James Einar er mikill húmoristi og tengist áhorfendum einkar vel í þáttunum sínum.Tork Gaurinn

Aðspurður hverju áhorfendur eigi von á segir hann: „Þeir eiga von á manni með of mikinn frítíma sem er aðeins of hrifinn spegilmyndinni af sjálfum sér. Það leynir sér ekki æsingurinn í Tork Gaurnum þegar hann geltir í myndavélina hestafla-tölum og öðrum misáhugaverðum staðreyndum,“ segir hann og skellir upp úr.

Sér andlit á öllum bílum

James Einar hefur óbilandi áhuga á bílum og finnst hann heppinn að fá tækifæri til að reynsluaka öllum tegundum af bílum. „Oft á tíðum eru bílar tákn um stöðu í samfélaginu og finnst mér gaman að þykjast vera bankastjórinn á nýja Land Rover-num, gröfumaðurinn á Ford-inum eða umhverfissinninn á nýjasta rafmagnsbílnum.“

„Svo tengist ég líka bílum með það hvernig þeir líta út. Ég þjáist af „face pareidolia“ þar sem ég sé andlit í allskonar hlutum. Ég sem sagt sé andlit á öllum bílum. Til dæmis þá lítur nýi Audi Q8 grimmilega út. Eins og hann muni bíta þig. Á meðan að nýja Honda e:Ny1 lítur út fyrir að vera vingjarnlegur og stilltur,“ segir James að lokum.

Hægt er að horfa á nýjasta þáttinn í Sjónvarpi Vísis ásamt öllum hinum þáttunum í fyrstu tveimur seríunum af Tork gaurnum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×