Kosningar í Póllandi Jacek Godek skrifar 21. september 2023 10:00 Eftir innan við mánuð fara fram þingkosningar í Póllandi. Ekki er gott að spá hvort stjórnarflokkurinn PiS (Lög og Réttlæti) muni bera sigur af hólmi eða hvort stjórnandstaðan sigri og færi landið aftur á braut lýðræðis. Eitt er þó víst: aldrei hefur kosningarbarráttan verið eins ruddaleg og miskunnarlaus. Popúlistar í PiS yrða ekki á lýðræðissinna og til þeirra teljast frjálslynda borgarbandalagið (PO), vinstriflokkurinn (Nowa Lewica) og íhaldssama Þriðja leiðin sem samanstandur af gamla bændaflokknum (PSL) og tiltölulega nýju fyrirbæri sem kallast Pólland 2050. En öllum að safnar líka samsteypa sem samanstandur af þjóðernissinnum, ofbelsdisfullum feðraveldisunnendum, gyðingahöturum og andúkraínskum körlum sem hata konur miklu fylgi. Hinsegin fólk, fóstureyðingar, glasabörn og kirkjan Undanfarin ár hafði kosningaumræða einkennst af þessum fjórum umfangsefnum, enda var það PiS í haginn, en nú virðist almenningur búinn að fá leið á þessum þemum og styður fyrirætlanir um að leyfa fóstureyðingar, andmælir ekki samböndum samkynhneigða, hneykslast þegar stjórnarmeðlimir kalla glasabörn framleiðsluvöru og yfirleitt telur að kirkjan skiptir sér of mikið af pólítíkinni. Samt hefur PiS stuðning milljóna kreddumanna. Ekki nema von, þeir lögréttu hafa einokað sér ríkisfjölmiðla, staðbundin dagblöð, bensínstöðvar, lögreglu, herinn og prédikunarstóla í öllum kirkjum landsins. Ungverski þjóðfræðingurinn og fyrrverandi ráðherrann Balint Magyar kallar stjórnarskipulag Ungverjalands mafíuríki þar sem allt er undirskipað því að ræna og stela. Og Pólland stefnir í þá átt. PiS (Prawo i Sprawiedliwość – Lög og Réttlæti) er löngu breytt í Peninga og Smygl. Þegar covid-farsóttin byrjaði ákvaðu heilbrigðisyfirvöld að kaupa súrefnistæki fyrir væntanlega sjúklinga. Viðskiptin átti að annast maður nokkur, kunningi ráðherrans, þekktur sem vopnasali. Öndunartækin komust aldrei til skila, ekki frekar en fyrirframgreiðsla sem grunsamlegi byssubraskarinn fékk til að fjármagna kaup á 2000 tækjum. Sjálfur á hann að hafa dáið í Albaníu. Þá loks kom hann aftur til Póllans. Í duftkeri, þannig að ekki er hægt að staðfesta hvort þetta er örugglega sá sami. Og maðurinn sem bar ábyrgð á kaupunum af hálfu ráðuneytisins er nú ofarlega á kosningarlista stjórnarflokksins í borginni Olsztyn. Hinn alræmdi Godfather Vito Corleone „keypti” sér nokkra stjórnmálamenn og fáeinar löggur til að stunda sína glæpastarfsemi. Jarosław Kaczyński á meira en helming þingmanna, alla lögreglumenn í landinu, stjórnina, herinn, fjölmiðla, saksóknara, dómara … og ef honum finnst einn eða annar hópur fólks sýna ærlega óánægju, hendir þeim bara eitthvað smotterí. Því hann á bankana og hann prentar peninga. Og þannig kaupir hann sér og sínum atkvæði. Aldrei hafa hneykslismálin í pólskum stjórnmálum verið eins mörg og á síðastliðnum árum. Konur hafa dáið á sjúkrahúsum vegna þess að þeim hefur verið neitað um fóstureyðingu sem hefði getað bjargað lífi þeirra, yfirmaður lögreglunnar hleypti af handsprengju inni á skrifstofu sinni og gjöreyðilagði tvö herbergi á höfuðstöðvum lögreglunnar í Varsjá og er nú sagt að hann sé þolandi því að sprengjuna fékk hann sem gjöf frá sínum gagnaðila í Úkraínu. Já, og Úkraína. Við Pólverjar sem vorum svo stolt af því hvernig við brugðumst við stríðinu, hvernig við tókum vel á móti systrum okkar og bræðrum, þurfum nú að horfa upp á pólitíska skrípaleiki í kringum úkraínska landbúnaðarafurðir. Bara út af því að einhver latur stjórnmálamaður nennti ekki að undirbúa landið fyrir auknu magni af korni að austan. En þetta eru ekki öll hneykslismál með meðlimi PiS í aðalhlutverkum. Sjálfur krafðist Kaczyński mútum frá austurrískum athafnamanni, landamærasveitir skilja eftir deyjandi flóttamenn hjá landamærum við Hvíta Rússland, rússnesk eldflaug ferðaðist 300 km inn í landið og enginn tók eftir því, flugskeytið fannst af tilviljun nokkrum mánuðum síðar, þegar kona ein brá sér í reiðtúr (gott að Pólverjar stunda hestamennsku), verðbólgan er einna hæst í Evrópu, en allt kom fyrir ekki. Almenningur sagðist óðum vilja kjósa PiS (stundum kallaða líka Psychopaths and Sadists). Þangað til nýlega. Ísland í bakgrunni Maður er nefndur Jakub Osajda. Hann er 32 ára og vann í pólska utanríkisráðuneytinu. Hann var skjólstæðingur ráðherrans og vildi endilega gerast sendiherra Póllands á Íslandi. Ráðherrann hafði ekkert á móti því, en forseti landsins neitaði að skrifa undir tilnefningu hans. Honum fanst pilturinn of ungur og lítt reyndur. En þá voru allar leyniþjónustur landsins þegar byrjaðar að rannsaka spillingarmál í sambandi við ólöglega sölu á pólskum vegabréfsáritunum til Asíu- og Afríkubúa. Erlend fyrirtæki (þar af a.m.k. eitt sem hefur rætur að reka til Moskvu) hjálpuðu m.a. Indverjum, Írönum, Nígeríumönnum og fleiri að fylla út umsóknir, gegn greiðslu (4000-5000 bandaríska dali). Pólska ríkið breyttist sem sagt í mannsala. Vitað er um a.m.k tvö tilfelli þar sem svokallaðar Schengen áritanir höfðu verið veittar til Bollywood kvikmyndateyma sem samanstóðu m.a. af danshöfundi sem kunni ekki að dansa, lekiara sem hafði aldrei áður staðið fyrir framan kvikmyndavél, framleiðandinn átti víst að keyra út grænmeti. Sú eina sem kunni sitt verk var sminkan, en konan rak beauty salon á bensínstöð í Mumbai. Kvikmyndafólkið flaug svo rakleiðis frá Varsjá til Mexíkó og síðan yfir eyðimörkina til landsins fyrirheitna. Og það voru einmitt bandarísk yfirvöld sem gerðu pólskri leyniþjónustu. En vegna þess að öll kúgunar- og ofbeldistæki pólska ríkisins eru í höndum PiS hefði málið aldrei litið dagsins ljós. Talið er að á sl. 30 mánuðum hafi pólska utanríkisþjónusta selt yfir 200 þúsund ólöglegar vegabréfsáritanir. Og hér hverfum við aftur að Osajda sem þráði svo heitt að verða sendiherra á Íslandi. Hann var rekinn úr starfi í ráðuneytinu og þannig lak út áritunarmálið sem virðist ætla að sökkva PiS. En það eru enn nokkrar vikur í kosningarnar og allt getur breyst, sérstaklega að stuðningsmenn stjórnarflokksins eru ekki viljugir til að hlusta á það sem andstæðingarnir hafa að segja. Höfundur er þýðandi. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Pólland Kosningar í Póllandi Mest lesið Halldór 8.11.25 Halldór Ha ég? Já þú! Ekki satt! Hver þá? Arna Sif Ásgeirsdóttir Skoðun Rétt klukka síðan 1968: Höldum í síðdegisbirtuna Erlendur S. Þorsteinsson Skoðun Samfélagslegur spegill lögreglumannsins Sigurður Árni Reynisson Skoðun Virðum réttindi intersex fólks Daníel E. Arnarsson Skoðun Þegar úrvinnsla eineltismála klúðrast Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Skilin eftir á SAk Gunnhildur H Gunnlaugsdóttir Skoðun Húsnæðispakki fyrir unga fólkið og framtíðina Anna María Jónsdóttir Skoðun Vegið að heilbrigðri samkeppni Herdís Dröfn Fjeldsted Skoðun Fjórða þorskastríðið er fram undan Gunnar Smári Egilsson Skoðun Skoðun Skoðun Inngilding – eða aðskilnaður? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Húsnæðispakki fyrir unga fólkið og framtíðina Anna María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þegar úrvinnsla eineltismála klúðrast Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Virðum réttindi intersex fólks Daníel E. Arnarsson skrifar Skoðun Ha ég? Já þú! Ekki satt! Hver þá? Arna Sif Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Samfélagslegur spegill lögreglumannsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Rétt klukka síðan 1968: Höldum í síðdegisbirtuna Erlendur S. Þorsteinsson skrifar Skoðun Traust, von og tækifæri á Norðausturlandi Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Tími til að endurskoða persónuverndarlög sem kæfa nýsköpun Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir ,Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar Skoðun Skilin eftir á SAk Gunnhildur H Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Hagræn áhrif íþrótta og mikilvægi þeirra á Íslandi Helgi Sigurður Haraldsson skrifar Skoðun Vegið að heilbrigðri samkeppni Herdís Dröfn Fjeldsted skrifar Skoðun Frjósemisvitund ungs fólks Sigríður Auðunsdóttir skrifar Skoðun Ökuréttindi á beinskiptan og sjálfskiptan bíl Þuríður B. Ægisdóttir skrifar Skoðun Á eineltisdaginn minnum við á eineltisdaginn Helga Björk Magnúsdóttir Grétudóttir,Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Ísland á krossgötum: Gervigreindarver í stað álvera! Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Endurreisn Grindavíkur Kristín María Birgisdóttir skrifar Skoðun Plan sem er sett í framkvæmd í stað áralangrar kyrrstöðu Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun 57 eignir óska eftir eigendum Sæunn Gísladóttir skrifar Skoðun Vindhanagal Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Vilja komast í orku Íslands Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Tölum um 7.645 íbúðirnar sem einstaklingar hafa safnað upp Arna Lára Jónsdóttir skrifar Skoðun Ríkislögreglustjóri verður að víkja Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Röng klukka siðan 1968: Kominn tími á breytingar Erla Björnsdóttir skrifar Skoðun Ísland 2040: Veljum við Star Trek - eða Star Wars leiðina? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hærri vörugjöld á bíla: Vondar fréttir fyrir okkur öll Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Hvar er skýrslan um Arnarholt? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Fólkið á landsbyggðinni lendir í sleggjunni Margrét Rós Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Höldum fast í auðjöfnuð Íslands Víðir Þór Rúnarsson skrifar Skoðun Fjárfesting í fólki Heiða Björg Hilmisdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Tími til að endurskoða persónuverndarlög sem kæfa nýsköpun Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir ,Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Skoðun Á eineltisdaginn minnum við á eineltisdaginn Helga Björk Magnúsdóttir Grétudóttir,Ögmundur Jónasson skrifar
Skoðun Plan sem er sett í framkvæmd í stað áralangrar kyrrstöðu Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar