Lífið

Full Hou­se-stjarna hefur eignast sitt fyrsta barn

Atli Ísleifsson skrifar
Louis Eisner og Ashley Olsen hafa verið saman frá árinu 2017.
Louis Eisner og Ashley Olsen hafa verið saman frá árinu 2017. Getty

Bandarískir fjölmiðlar segja Full House-stjörnuna og tískumógúlinn Ashley Olsen hafa eignast sitt fyrsta barn fyrir nokkrum mánuðum. Olsen og eiginmaður hennar, Louis Eisner, eru sögð hafa farið leynt með óléttuna.

TMZ og People greina frá því að hin 37 ára Olsen og hinn 34 ára Eisner hafi eignast son fyrir nokkrum mánuðum í New York og að hann hafi fengið nafnið Otto.

Þau Olsen og Eisner gengu í hjónaband í desember 2022 en samband þeirra er sagt hafa hafist haustið 2017.

Tvíburasysturnar Ashley og Mary-Kate Olsen skiptust á að fara með hlutverk hinnar ungu Michelle Tanner í gamanþáttunum Full House sem framleiddir voru á árunum 1987 til 1995. Á fullorðinsárunum hafa þær hins vegar gert sig gildandi í tískuheiminum og þróað sitt eigið vörumerki.

Systurnar hafa báðar sagt frá því í viðtölum að þær reyni eftir fremsta megni að halda einkalífi sínu utan við kastljós fjölmiðlanna.

Eisner er listamaður og sonur skartgripahönnuðarins Lisu Eisner.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×