Viðskipti innlent

Fyrir­tækin tíu sem taka þátt í Startup SuperN­ova í ár

Máni Snær Þorláksson skrifar
Teymin sem taka þátt í Startup SuperNova, Astrid EdTech,GET Ráðgjöf, GæðaMeistari, Lóalóa, Modul Work, Revolníu, Skarpur, Soultech. Á myndina vantar KuraTech og Lykkjustund
Teymin sem taka þátt í Startup SuperNova, Astrid EdTech,GET Ráðgjöf, GæðaMeistari, Lóalóa, Modul Work, Revolníu, Skarpur, Soultech. Á myndina vantar KuraTech og Lykkjustund Þóra Ólafsdóttir

Búið er að velja þau tíu sprotafyrirtæki sem taka þátt í viðskiptahraðlinum Startup SuperNova í ár. Framkvæmdastjóri Klak-Icelandic Startups segir ánægjulegt hve margar umsóknir bárust en alls kepptu á þriðja tug sprotafyrirtækja um sæti í hraðlinum.

Sprotafyrirtækin tíu sem taka þátt í hraðlinum vinna að nýsköpun á alls konar sviðum. Þar má til dæmis nefna snjallforrit með heilandi tíðnir sem eiga að hjálpa fólki með streitutengd vandamál, gagnvikar prjónauppskriftir og gæðastjórnunarkerfi fyrir byggingariðnað.

„Það er sérstaklega ánægjulegt að okkur bárust umsóknir frá fjölmörgum öflugum frumkvöðlum.Við óskum topp 10 teymunum til hamingju og hlökkum til að vinna náið með þeim næstu vikur,” er haft eftir Ástu Sóllilju Guðmundsdóttur, framkvæmdastjóra Klak - Icelandic Startups, í tilkynningu um hraðalinn.

Hér fyrir neðan má sjá sprotafyritækin tíu sem taka þátt.

Astrid EdTech

Astrid EdTech segir sögur um loftslagsmál og hvetur ungt fólk til að fræðast, ræða nýjar hugmyndir og taka af skarið.

Í teyminu eru þau Ásta Olga Magnúsdóttir, Vanessa Carpenter, Geir Borg, Beatriz Prados, Sunna Mogensen, Lemke Mejer, Haukur Hilmarsson og Laufey Stefánsdóttir

GET Ráðgjöf

GET Ráðgjöf kynnir nýja nálgun á Mínar síður þar sem fyrirtæki vinna með viðskiptagögn margra aðila en í gegnum eitt viðmót á hraðan, þægilegan og öruggan hátt.

Í teyminu eru þau Guðlaug Hrönn Jóhannsdóttir og Eyvindur Tryggvason

GæðaMeistari

GæðaMeistarinn er gæðastjórnunarkerfi fyrir einyrkja, lítil og meðalstór fyrirtæki í byggingariðnaði. Einföld, skýr og hagstæð lausn sem bætir gæði og lækkar kostnað.

Í teyminu eru þau Sunna Ösp Þórsdóttir, Sara Hvanndal Magnúsdóttir, Reynir Viðar Ingason og Jón Andrés Vilhelmsson

KuraTech

KuraTech margfaldar virði þrotabúa með sjálfvirknivæðingu og aukinni yfirsýn fyrir skiptastjóra.

Í teyminu eru þau Kristján Óli Ingvarsson, Árni Steinn Viggósson og Sara Árnadóttir

Lykkjustund

Lykkjustund (e. Knittable) eykur sköpunargleði prjónara með því að bjóða upp á gagnvirkar prjónauppskriftir sem aðlagast hugmynd prjónarans, virka fyrir allar garntegundir og koma í öllum stærðum. Lausnin styttir tímann frá hugmynd yfir í prjón úr klukkutímum niður í mínútur fyrir almenna prjónarann og tímann frá hugmynd yfir í fullbúna uppskrift frá mánuðum niður í klukkustundir fyrir prjónahönnuði.

Í teyminu eru þau Nanna Einarsdóttir, Renata Sigurbergsdóttir Blöndal og Jón Þorsteinsson

Lóalóa

Lóalóa er einföld lausn fyrir söfn af myndböndum og öðru efni. Kerfið bæði geymir efni og dreifir því á ýmsa miðla auk þess að hverju safni fylgja sérsniðnar vefsíður sem hægt er að koma fyrir undir hvaða vef sem er.

Í teyminu eru þeir Tinni Sveinsson, Valur Hrafn Einarsson og Sverrir Vilhjálmur Hermannsson

Modul Work

Modul Work er skýjalausn sem eykur starfsánægju með virkri þátttöku fólks í starfsþróun sinni í gegnum beinan eignarhlut í sínu starfi með notkun lifandi starfslýsinga. Lifandi starfslýsingar eru gagnvirk sniðmót sem smætta störf í verkefni þar sem teymi hafa yfirsýn og samstarf um verkaskiptingu í síbreytilegu vinnuflæði með aðstoð gervigreindar.

Í teyminu eru þau Kristinn Freyr Haraldsson, Vilborg Þórðardóttir, Mats Lennartsson og Jónas Óskar Magnússon

Revolníu

Revolníu býr til heilandi tíðnir til að hjálpa fólki með streitutengd vandamál, svefn og einbeitingu, og hjálpa fólki með heyrnarsuð (tinnitus). Við erum að búa til snjallforrit og erum að þróa heyrnartól/heilaskanna.

Í teyminu eru þau Baldur Vignir Karlsson, Georg Holm, Kristján Þór Héðinsson og Einar Jón Einarsson

Skarpur

Skarpur þróar nýja hugbúnaðarlausn til að umbylta plönunargeiranum. Kerfið býr sjálfvirkt til og viðheldur bestuðum plönum sem gerir þér kleift að bregðast snögglega við breytingum, minnka handavinnu og taka reksturinn þinn á nýtt stig í hagkvæmni og skilvirkni.

Í teyminu eru þeir Aron Ásmundsson og Eyþór Helgason

Soultech

Soultech þróar hugbúnað sem umbreytir samvinnu almennings & sálfræðinga. Okkar sýn er að allir, óháð fjárhag & staðsetningu hafi aðgang að sálfræðiaðstoð & sjálfshjálpar-sálfræðimeðferðum.

Í teyminu eru þau Bryndís Lóa Jóhannsdóttir, Davíð Haraldsson, Stefán Ólafsson, Pétur Örn Jónsson og Sophia Barcala





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×