Lífið

Fjöldi hugmynda að fjölbreyttara kynlífi

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Það er engin ástæða til að láta sér leiðast í rúminu.
Það er engin ástæða til að láta sér leiðast í rúminu. Getty

Nýjungar og fjölbreytni í kynlífi er mikilvægt til að halda neistanum í sambandinu að sögn breska kynlífsráðgjafans Tracey Cox. Hún birtir lista yfir tuttugu atriði á vefsíðu sinni sem gæti veitt pörum innblástur í tilhugalífið.

Atriðin eru nokkuð mörg og ættu pör að geta gefið sér nægan tíma í sumarfríinu til að njóta notalegra samverustunda.

Nýtt leikfang í safnið

Cox mælir með því að kaupa kynlífstækjasett með mismunandi leikföngum, þá er nóg um að velja dag frá degi og fjölbreytnin með. Handjárn, svipa, rassatæki eða titrandi egg.

Úrval kynlífsleikfanga er orðið afar fjölbreytt í dag.Getty

Bindið hvort annað

Fjöldi leiða er til að stunda bindileiki. 

„Finndu gamlar sokkabuxur, láttu makann setjast á stól og bittu hendur eða fætur saman,“ segir Cox. Hún hvetur pör til að prófa þar sem fólk eigi það til að hætta slíkum leikjum með hækkandi aldri.

Notaðu sokkabuxur eða annað sem þú finnur heimilinu til að binda makann.Getty

Draumórar

„Sendu maka þínum skilaboð um draumóra þína eða hugmynd kynþokkafullum athöfnum. Skrifist á í heilan dag og sjáið hvernig hugmyndir ykkar þróast að sameiginlegum draumórum,“ segir Cox.

Draumórar geta verið að stunda kynlíf á óhefðbundnum stöðum á heimilinu.Getty

Endaþarmsmök

Prófið ykkur á fram í endaþarmsleikjum. Leiðbeiningar má finna hér.

Fjórar megin reglur:

1. Farið hægt af stað.

2. Farið varlega.

3. Hættið ef þið finnið fyrir sársauka.

4. Ekki stinga upp á slíkum athöfnum ef makinn hefur nýlega borðað gasmyndandi matvæli. 

Mismunandi endaþarmstæki.Getty

Bannleikir

„Að banna ákveðna hluti í kynlífi getur verið góð leið til að brjóta upp reglubundnar kynlífsathafnir þar sem pör eiga það til að festast í sama farinu. Þar má nefna engin munnmök eða samfarir í heilan mánuð,“ segir í færlsu Cox.

Bannleikir í kynlífi geta falið í sér að stunda ekki samfarir.Getty

Heitt og kalt

Leiktu þér með hitabreytingar á mismunandi hátt.

„Klaki eða kertavax á næma líkamsparta getur vakið upp spennu í líkamanum. Þú gætir til dæmis drukkið heitan eða kaldan drykk áður en þú veitir maka þínum munnmök.“ 

Hita og kuldaleikir geta verið skemmtilegir.Getty

Kynæsandi nudd 

Klæddu þig upp í seiðandi undirföt, kveiktu á kertum og settu notalega tónlist á fóninn áður en þú byrjar að nudda maka þinn með olíu. Byrjaðu á baki, öxlum og öðrum hlutlausum líkamspörtum. Færðu þig neðar og nuddaðu rass og kynfærum með unaðslegum strokum. Þú mátt snerta makann en ekki öfugt.

Nuddaðu makann á kynæsandi hátt.Getty

Finndu G-blettinn

Reyndu að fá fullnægingu með því að örva G-blettinn. Erfitt getur fyrir margar konur að fá fullnæginu í gegnum leggöng en aðeins átján prósent kvenna fá fullnægingu á þann veginn. 

Aðeins átján prósent kvenna fá fullnægingu í gegnum leggöng.Getty

Kryddaðu kynlífið með mat

„Notaðu hugmyndaflugið og kryddið upp á kynlífið með mat. Settu bráðið súkkulaði, rjóma eða hunangi á líkama maka þíns og sleiktu það af. Ljúffeng og skemmtileg samvera.“

Sleiktu súkkulaði af maga maka þíns.Getty

Listann má lesa í heild sinni á heimasíðu Tracey Cox.


Tengdar fréttir

Kryddaðu upp á trúboðann

Kynlífsstellingin trúboðinn er ein af þessum hefðbundnu og vinsælu stellingum í svefnherberginu. Pör eiga það til festast í vananum almennt, og á það ekki síður við í rúminu. Kynlífstækjaverslunin Blush setti saman lista af níu hugmyndum sem gætu kryddað upp á stellinguna og gert upplifunina enn betri.

Mælir með að geyma snípinn þar til síðast

Æfingin skapar meistarann er setning sem flestir kannast við og á hún ekki síður við í kynlífi en öðru, hvað þá í munnmökum. Ítarlegar leiðbeiningar um píkuunað sem ættu að geta gagnast kynlífsiðkendum eru aðgengilegar á samfélagsmiðlum kynlífstækjaverslunarinnar Losta. 

Svona endast karl­menn lengur í rúminu

Ótímabært sáðlát (e. Premature ejaculation) gerist innan við sextíu sekúndum eftir að samfarir hefjast, eða áður en þú eða maki þinn eruð tilbúin að ljúka athöfninni. Um 40 prósent karlmanna á öllum aldri glíma við vandann.

Gerði grín að svip kærustunnar þegar hún fékk fullnægingu

Ung kona leitaði ráða hjá kynlífssérfræðingnum og rithöfundinum Tracey Cox eftir að fyrrverandi kærastinn hennar gerði grín að andlitssvip hennar þegar hún fékk fullnægingu. Konan óttaðist að líðan hennar myndi hafa áhrif á kynlíf í sambandi seinna.

Hlutir til að varast í kynlífi

Eins dásamlegt og kynlíf getur verið er mikilvægt að hafa nokkra hluti á hreinu til að geta notið stundarinnar sem best. Eðli máls samkvæmt er listinn ekki tæmandi. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×