Atvinnulíf

Hvernig gott er að bregðast við óvæntum forstjóraskiptum

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Það er eðlilegt að komast í uppnám ef forstjóraskipti bera upp með óvæntum hætti á vinnustað. Til dæmis ef forstjóri er rekinn. En hverjar sem aðstæðurnar eru, er mikilvægt fyrir okkur sem starfsmenn að blanda okkur ekki um of inn í aðstæður heldur einblína áfram á okkar starf, skyldur eða starfsframa.
Það er eðlilegt að komast í uppnám ef forstjóraskipti bera upp með óvæntum hætti á vinnustað. Til dæmis ef forstjóri er rekinn. En hverjar sem aðstæðurnar eru, er mikilvægt fyrir okkur sem starfsmenn að blanda okkur ekki um of inn í aðstæður heldur einblína áfram á okkar starf, skyldur eða starfsframa. Vísir/Getty

Það getur verið allur gangur á því hvort það er aðdragandi að því að forstjóra eða framkvæmdastjóra er skipt út.

Stundum eru skiptin svo eðlileg að þau liggja fyrir í langan tíma. Til dæmis þegar einhver lætur af störfum sökum aldurs.

Eða hefur sagt upp og það tilkynnt með góðum fyrirvara.

Spennan sem ríkir í loftinu þá er oftast bara sú: Hver kemur í staðinn?

Annað er uppi á teningnum ef að forstjóri er rekinn. Því oftast nær gerist það mjög hratt og þótt það hafi verið undanfari, þá er það sjaldnast undanfari sem starfsfólkið sjálft hefur verið upplýst um.

Þá geta aðrar aðstæður gert það að verkum að forstjóraskipti hafa legið í loftinu í einhverja daga, þótt enginn viti svo sem ekki neitt fyrr en þau eru snögglega tilkynnt.

En hvernig er gott að hegða sér þegar forstjóraskipti koma upp óvænt eða snögglega?

Við skulum rýna í sex ráð sem byggja á grein af starfsframavefsíðunni Indeed.

1. Haltu áfram að vinna

Fyrst og fremst er ágætt að einbeita sér bara að vinnunni okkar eins og ekkert hafi í skorist. Því að það tekur frá okkur orku og getur vakið upp alls kyns tilfinningar ef við erum sífellt að velta fyrir okkur hvað hafi verið að gerast, hvernig líður forstjóranum sem var, hvernig ætli sá nýi reynist og svo framvegis.

2. Ekkert persónulegt

Margir upplifa mikið uppnám þegar forstjóraskipti bera upp mjög óvænt, ekki síst því starfsfólki sem hefur lengi starfað með fyrrum forstjóra eða kunni ef til vill sérstaklega vel við þann aðila.

Fyrir þennan hóp fólks er mikilvægt að líta ekki of persónulega á breytingarnar. Þú ert fagmanneskja í starfi sem þér er treyst fyrir. Ákvarðanir um hver er forstjóri eru ekki á þinni könnu. Þess vegna skiptir miklu máli að hugsa framhaldið eins og fagmanneskja en ekki hvernig persónur og leikendur eiga helst saman.

Að vega og meta fyrrverandi forstjóra og nýjan forstjóra er til dæmis samanburður sem gott er fyrir starfsmenn að forðast.

3. Þín framtíð, þinn frami

Mögulega upplifir þú breytta stöðu þannig að starfið þitt sé í hættu eða að framundan séu líklegar breytingar á verkefnaskipan, ábyrgðarhlutverkum, skipuriti og svo framvegis.

Þá getur það átt við að fyrrum forstjórinn sé sá yfirmaður sem þú áttir síðasta starfsmannasamtal við og því eðlilegt að velta fyrir sér hvernig nýr forstjóri muni horfa á þau áform sem þú og fyrrverandi yfirmaðurinn höfðu hvað varðar þitt starf og þín verkefni.

 Ef þetta er staðan, er gott fyrir okkur að velta fyrst og fremst fyrir okkur hvað við viljum sjálf. Hver voru markmiðin okkar með tilliti til starfsframa? Hvað sjáum við fyrir okkur sem okkar valkost næstu misseri? Langar okkur kannski til að breyta líka og skipta um starfsvettvang? Eða viljum við halda áfram að óbreyttu og sjá hvað gerist?

Hér liggur galdurinn í því að hugsa málin út frá okkur sjálfum.

4. Engar áhyggjur

Auðvitað komast allir í uppnám þegar nýr skipstjóri í brúnni er tilkynntur óvænt. Við þurfum hins vegar að vanda okkur við það að sogast ekki inn í einhverjar áhyggjur, vanlíðan eða kvíða yfir stöðunni. Í flestum tilvikum erum við bara starfsfólk sem hefur ekkert um þessar breytingar að segja.

Að hugsa jákvætt er lykilatriði í að bregðast rétt við forstjóraskiptum. Enda fylgja flestum breytingum einhverjar aðrar góðar breytingar, nýir hlutir geta gerst, ný tækifæri opnast og svo framvegis. 

5. Að halda sambandi

Í sumum tilvikum kallar starfið þitt á að þú verðir að heýra í fyrrum forstjóranum til að fá upplýsingar. Þetta getur þó verið afar vandmeðfarið, sérstaklega ef forstjóraskiptin hafa farið fram með þeim hætti að það er einfaldlega óviðeigandi eða líklegt til að mælast neikvætt fyrir þig að vera í sambandi við fyrrverandi forstjórann.

Oftast nær er hins vegar í góðu lagi að halda sambandi við fyrrum forstjórann, þótt þú takir vel á móti þeim nýja. Ef þig langar til dæmis að kasta kveðju og þakka fyrir samstarfið til gamla forstjórans, er það í góðu lagi en best að gera það á hlutlausan hátt miðað við aðstæðurnar á vinnustaðnum. Hafðu kveðjuna aðeins persónulega frá þér, en ekki blanda þér í nein mál sem aðrir eru ákvörðunaraðilar um.

6. Meðmælendur á ferilskrá

Þá er ágætt að velta fyrir sér hvað kæmi best út fyrir þig á ferilskránni þinni. Líklegast kæmi best út fyrir þig að geta vísað í bæði fyrrum og nýjan forstjóra sem meðmælendur ef þeir eru þeir aðilar sem standa næst þér í skipuriti.

Hér gildir aftur sú meginregla að hugsa hlutina út frá okkur sjálfum en ekki þeim aðstæðum sem kunna hafa skapast hjá stjórn eða eigendum fyrirtækisins. 


Tengdar fréttir

Að forðast baktalið í vinnunni

Við tökum öll þátt í kjaftagangi einstaka sinnum. Heyrum einhverja djúsí kjaftasögu og berum hana á milli. Eða veltum okkur upp úr henni. Þetta er mannlegt og í raun þarf enginn að skammast sín því rannsóknir hafa sýnt að smá kjaftagangur er flestum eðlislægur. Þó ekki nema stundum í góðra vina hópi. 

Samstarfsfólk sem hefur neikvæð áhrif á vinnustaðinn

Það getur verið dýrkeypt fyrir vinnustaði að taka ekki á því ef starfsfólk hefur neikvæð áhrif á andrúmsloftið eða samstarfsfélaga. Oft þarf ekki nema einn einstakling á vinnustað til að eitra út frá sér.

Eitrað andrúmsloft getur haft langtímaáhrif

Eitrað andrúmsloft á vinnustað á sér margar birtingarmyndir. Við höfum heyrt af málum eins og einelti, samskiptaörðugleikum á milli vinnufélaga, vinnustaðamenningu sem samþykkir almennt baktal um náungann, kynþáttfordómum og öðrum fordómum (til dæmis vegna aldurs, kynhneigðar eða fitufordómar) og fleira.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×