Atvinnulíf

Vaknar með Heimi og Gulla en dreymir um að fara í ræktina

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Daníel Jakobsson framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Arctic Fish byrjar daginn á því að dorma með Heimi og Gulla en langar mikið að vera týpan sem drífur sig í ræktina. Daníel bjó lengi í Svíþjóð og því eru það sænskar hetjur úr bíómyndum og bókum sem standa upp úr hjá honum frá æsku.
Daníel Jakobsson framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Arctic Fish byrjar daginn á því að dorma með Heimi og Gulla en langar mikið að vera týpan sem drífur sig í ræktina. Daníel bjó lengi í Svíþjóð og því eru það sænskar hetjur úr bíómyndum og bókum sem standa upp úr hjá honum frá æsku. Vísir/Vilhelm

Daníel Jakobsson framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar Arctic Fish segist vakna með Heimi og Gulla á morgnana klukkan sjö, liggur þá og dormar um stund en dreymir um að vera týpan sem drífur sig fram úr og í ræktina.

Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.

Hvenær vaknar þú á morgnana?

Ég vakna alltaf með Heimi og Gulla rétt fyrir klukkan sjö og tek svo morgunfréttirnar. 

Ligg svo bara og dorma þangað til að ég þarf að fara að fara á fætur. 

Mig langar mjög mikið að vera týpan sem æfir á morgnanna og vera búin að æfa áður en ég kem í vinnu. Það gerist þó allt of sjaldan. 

Yfirleitt stekk ég bara á fætur, klára það sem þarf að klára og dríf mig í vinnuna.“

Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?

„Mér finnst gott að byrja daginn snemma og komast þá fyrr heim. Þegar ég er kominn í vinnunna þá tökum við kaffibolla þau sem eru komin og spjöllum aðeins áður en amstrið byrjar. Mér finnst það oft notalegasta stund dagsins, lognið á undan storminum.“

Nefndu hetju úr bíómynd sem þú sást sem barn og stendur enn uppúr í minningunni?

„Ég er mjög mikill Svíi eftir að hafa búið þar í mörg ár sem barn og unglingur. Hetjurnar Hamilton og Arn úr kvikmyndum eftir bókum sænska metsöluhöfundarins Jan Guillou standa upp úr hjá mér. Þetta eru sitthvorar tvær bóka- og kvikmyndaraðirnar.

Bækurnar um Arn gerast um 1100 á meðan bækurnar um Hamilton gerast í samtímanum 1980-2000. Þetta eru stórkostlegar hetjur og yfirburðarmenn og gæddir svipuðum eiginleikum. Þær eru skrifaðir inn í þau viðfangsefni sem eru á hverjum tíma og þeir eiga samskipti við fólk sem var til í raun og veru og upplifðu atburði sem gerðust í raun og veru.

Arn er uppi þegar Svíþjóð er að verða til en Hamilton þegar kaldastríðið er í hámæli. Það sem heillar mig við þær er þessi blanda af góðri hetju á sama tíma og raunveruleg viðfangsefni eru sett í samhengi sem vekja mann til umhugsunar.“

Daníel heldur utan um skipulagið í Outlook og segist stefna að því að klára tvö til þrjú verkefni á dag. Það hljómi kannski ekki sem mikið en virki vel. Á kvöldin byrjar hann á því að hlusta á hljóðbók, en sofnar alltaf um leið og þarf því alltaf að byrja á sama stað í bókinni kvöldið eftir.Vísir/Vilhelm

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?

„Síðastliðin tvö ár hef ég starfað í fiskeldi sem mér finnst mjög spennandi vettvangur, atvinnugrein sem er mjög fjölbreytt og kallar á fjölbreytt störf. Fyrirtækið sem ég vinn hjá, Arctic Fish á Vestfjörðum stækkar ört og við erum að ráða fólk nánast í hverri viku. Jafnframt erum við að stækka seiðaeldisstöðina okkar í Tálknafirði og að byggja laxavinnslu í Bolungarvík til að styðja við frekari vöxt samhliða því að taka í notkun ný svæði og setja út fleiri seiði. Samtals eru þetta fjárfestingar fyrir á tíunda milljarð króna. Mikið af mínum tíma fer í þau.

Þetta eru skemmtileg verkefni og í mörgu að snúast bæði innan fyrirtækisins en líka í samfélaginu fyrir vestan því það er ekki bara mikið að gera hjá okkur heldur öllum, því á svæðinu er mikill uppgangur sem hefur eflt bjartsýni og kraft á svæðinu. Margir eru að byggja og mikil eftirspurn eftir starfsfólki og iðnaðarmenn eru yfir bókaðir. Það er skemmtileg breyting frá því sem var þegar íbúum fækkaði stöðugt og lítið var fjárfest.

Svo fer líka töluverður tími í að leiðrétta rangfærslur sem eru í gangi um atvinnugreinina. Það er mikill áróður gegn sjókvíaeldi sem er að mínu mati of oft ekki málefnalegur. Við þurfum því að vera dugleg í að kynna þessa ungu atvinnugrein sem mætir aukinni eftirspurn eftir fiskpróteini á umhverfisvænan hátt.

Annað verkefni á mínu borði eru sölumálin. Í ár erum við að flytja út um 15.000 tonn af laxi sem ætti að duga í um 50 milljón máltíðir. Í sölumálunum erum við að gera breytingar og leggja meiri áherslu á íslenskan uppruna vörunnar og gæði hennar og umhverfisvottanir. Eldislax er jú það ræktaða prótein sem er með hvað lægsta kolefnisfótspor sem völ er á í heiminum samanborið við til dæmis nautgripi, svín og jafnvel kjúkling.“

Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?

„Ég reyni að setja alla mína dagskrá í Outlook bæði fundi og verkefni. Svo bóka ég alla reglulega fundi og sem mest af öðrum fundum sem ég þarf að sitja fyrstu daga vikunnar. Þá hef ég seinni dagana í vikunni lausa til að leysa þau verkefni sem ég þarf að leysa.

Þar sem að verkefnin eru líka fjölbreytt reyni ég að hafa ákveðna daga í ákveðin verkefni. 

Svo hef ég líka reynt að hafa sem markmið að klára tvö til þrjú mál á dag. Það hljómar ekki mikið en virkar vel. 

Annars fylgja vinnunni mikil ferðalög og svo fáum mikið af viðskiptavinum í heimsókn sem þarf að sinna, þannig að yfirleitt riðlast þetta eitthvað.“

Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?

„Yfirleitt reyni ég að vera kominn upp í rúm um klukkan ellefu. Set yfirleitt hljóðbók í gang en næ yfirleitt ekki neinu af henni sofna bara um leið. Byrja aftur á sama stað daginn eftir. Svona pínu groundhog day þar.“


Tengdar fréttir

Stórfiskaleikur, fallin spýta, skotbolti og „yfir“ öll kvöld í Breiðholtinu

Jarþrúður Ásmundsdóttir, fagstjóri hugvits, nýsköpunar og tækni hjá Íslandsstofu heldur mest upp á þann tíma dagsins þegar eiginmaðurinn færir henni kaffi í rúmið og þau taka spjallið saman fyrir daginn. Í æsku var það kröftugur hópur krakka í Breiðholtinu sem hittist öll kvöld til að fara í útleiki eins og þeir gerðust bestir.

Alltaf kaffi í rúmið og auðvitað í dúndurstuð með S.H.Draumi

Það er í nægu að snúast alla daga hjá Ragnari Þór Ingólfssyni formanni VR, sem er í hljómsveitinni Fjöll og að undirbúa endurkomu hljómsveitarinnar Los, að æfa sig undir átta daga hjólaferð til styrktar Umhyggju, að undirbúa frekari mótmæli við Austurvöll og almennt að finna eitthvað nýtt til að röfla yfir. Ragnar og eiginkonan byrja alltaf daginn með kaffi í rúmið.

Apple Notes perri sem spilar við kærustuna yfir morgunmatnum

Egill Halldórsson, eigandi Wake Up Reykjavík, Górillu Vöruhúss og framkvæmdastjóri þess síðarnefnda, ætlar að gefa sér það að teljast yfir meðallagi fyndinn. Síðustu mánuði hafa hann og kærastan byrjað daginn á því að borða croissant saman og spila Backgammon áður en þau fara í vinnuna.

„Að þurfa að harka fyrir sínu sem íþróttakona er orðið vel þreytt“

Kristín Sverrisdóttir verkstjóri í framleiðsludeild hjá Össur og ráðstefnustýra UAK (Ungra athafnakvenna) hefur frá Covid hafið daginn á hugmyndafræði sem hún lærði úr bókinni Miracle Morning. Kristín hefur líka vanið sig á að vera með slökkt á öppum í símanum sínum fyrir klukkan átta á morgnana.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×