Lífið

Júní­spá Siggu Kling: Himin­tunglin hag­stæð hjá Stein­geitinni

Sigga Kling skrifar

Elsku Steingeitin mín, það er í eðli þínu að halda alltaf áfram sama hvað og það er það eina sem skiptir máli til að ná á áfangastað. Þó að þú eigir það til eitt augnablik að missa trúna á sjálfa þig og lífið, þá er það bara augnablik. Það er svo margt sem þú þarft að dröslast áfram með en þú þarft að vita í öllu þessu að þú ert ekki Guð.

  • Steingeitin er frá 22. desember til 19. janúar.

Sumt þarftu bara að láta Almættið um og loka úr huga þínum, og akkúrat þannig leysist úr þeim hluta af lífi þínu sem að þú finnur ekki aflið til þess að klára. Bara eitt í einu, þegar þú hugsar það þá verður þessi farvegur svo miklu léttari.

Júlí gefur þér svo sterka sýn á lífið og þær brautir sem beinast að þér, svo það kemur tími í þessum mánuði þar sem þér finnst þú vera alveg blind á útkomuna sem þú vilt sjá. Vertu róleg fyrstu fimmtán dagana í júní og það er gott fyrir þig að nota þá möntru að segja „lífið mun leysa þetta“, helst á hverjum degi. Það er viss galdur fólginn í þessari setningu og það mun leysast sem erfitt er, og mundu að þú ræður því hvort þú hafir áhyggjur af því eða ekki, því það er valkostur.

Himintunglin eru þér hagstæð í sambandi við velferð og fjárhagslega útkomu og ef þú ert í sambandi þá er ástin í raun og veru sönn vinátta, ekki eins og eldgos, fiðrildi í maganum eða stórkostleg spenna. Og þegar þú veist þetta, þá ertu í góðum málum. Hinir sem eru að skoða og langar í ástina verða að vera tilbúnir til þess að opna fyrir annars konar týpur en þeir eru búnir að vera að eltast við, þeir þurfa að gefa öðrum tækifæri til að sanna sig.

Ungar Steingeitur finna ástina í sumar, ef þær eru sannarlega tilbúnar. Ef þú ert fullþroskuð og eldri en tvívetra, þá er komin mikil stífni í að sleppa tökunum á sjálfri þér í ástina. Því það er ekki hægt að segja einn daginn ég er tilbúin í maka og hinn daginn vil ég það alls ekki, þetta gengur ekki. En það yrðu allir heppnir ef þú myndir bjóða þeim inn í þitt líf.

  • Kiefer Sutherland, leikari, 21. desember
  • Finn Wolfhard, leikari, 23. desember
  • Edda Andrésdóttir, sjónvarpskona, 28. desember
  • Nicolas Cage, leikari, 7. janúar
  • Marilyn Manson, söngvari, 5. janúar
  • Diane Keaton, leikkona, 5. janúar
  • Aron Már Ólafsson, leikari, 12. janúar
  • Dorrit Moussaieff, fyrrum forsetafrú Íslands, 12. janúar
  • Davíð Oddson, stjórnmálamaður, 17. janúar
  • Michelle Obama, fyrrum forsetafrú Bandaríkjanna, 17. janúar





Fleiri fréttir

Sjá meira


×