Víðar gallabuxur og síð gallapils
Gallaefnið tröllríður tískuheiminum um þessar mundir og við sjáum gallaskyrtur paraðar við gallabuxur, gallapils við gallajakka og svo framvegis.

Hvað gallabuxurnar varðar eru þær hafðar víðar og síðar, svolítið eins og þú hafir fengið þær lánaðar frá (miklu stærri og breiðari) kærasta.

Gallapils í ökklasídd verða líka eitt allra stærsta trend sumarsins og er óður til aldamótatískunnar.

Léttur lúxus

Síðustu misserin hefur lúxusstíll sem kaninn kallar Quiet Luxury verið að trenda á samfélagsmiðlum. Í grunninn erum við að tala um flíkur og fylgihluti úr gæðaefnum, án þess að stórt og áberandi lógó sé í forgrunni.
Tökum ítalska hátískumerkið Bottega Veneta sem dæmi. Flíkur sem litu í fljótu út fyrir að vera úr gallaefni, bómull og flannel voru allar úr leðri. Gott dæmi um að þú ein veist af lúxusnum. Við höldum áfram að sjá blazera og dragtir í yfirstærð, þannig að það sem þú átt nú þegar í fataskápnum mun þokkalega halda áfram að standa með þér á næstunni.
Læmgrænn

Ef einhver litur var meira áberandi en annar á vor- og sumartískusýningarpöllunum var það læmgrænn. Ef þig vantar dass af sól og sumri inn í fataskápinn eftir langan og dimman vetur gæti flík eða fylgihlutur í þessum áberandi lit verið málið.

Trylltar og tröllvaxnar tuðrur

Það er annað hvort í ökkla eða eyra í tískuheiminum en hver man ekki eftir fáránlegu míní-töskunum sem slógu í gegn (allavega á Instagram) fyrir ekki svo löngu síðan? Nú ræður praktíkin ríkjum og það kunnum við að meta. Töskurnar sem eru að trenda geyma töluvert meira en eitt kreditkort, þú getur vel týnt aleigunni í þessum.
Ballerínuskór

Í takt við tískuna á tíunda áratug síðustu aldar hafa ballerínuskórnir tekið vinsældarkipp. Tískuspekúlantar vestanhafs vilja meina að þessi týpa sé sú eina sem skiptir einhverju máli þegar skótrend næstu mánaða eru annars vegar.
Metal

Við erum ekki vön að tengja gull- og silfurflíkur við vor og sumar en í ár er undantekning frá reglunni. Kjólar, bolir og meira að segja gallabuxur verða í metal-litum.