Lífið

Stal senunni með nýjum hár­lit

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Miley Cyrus tryllti aðdáendur sína þegar hún frumsýndi nýjan hárlit á verðlaunahátíð í gær.
Miley Cyrus tryllti aðdáendur sína þegar hún frumsýndi nýjan hárlit á verðlaunahátíð í gær. Getty/Stefanie Keenan

Tónlistarkonan Miley Cyrus skartaði nýjum hárlit þegar hún mætti á verðlaunahátíð í Los Angeles í gær. Miley hefur litað ljósa hárið brúnt og má því segja að hún leiti aftur í ræturnar með þessari nýju hárgreiðslu.

Miley skaust fyrst fram á sjónarsviðið í Disney-þáttunum Hannah Montana, þá með sinn náttúrulega brúna hárlit.

Árið 2012 urðu ákveðin kaflaskil í lífi Miley þegar hún lét brúnu lokkana fjúka, klippti hárið alveg stutt og litaði það ljóst. Töldu aðdáendur að það væri hluti af tilraun hennar til þess að losa sig við barnastjörnustimpilinn. Skömmu síðar gaf hún út smellinn Wrecking Ball sem markaði upphafið að ákveðnum uppreisnarkafla í lífi Miley.

Til hægri má sjá Miley árið 2007 en til vinstri má sjá hana árið 2013Getty

Stal senunni

Síðasta áratuginn hefur hún mátað sig við hinar ýmsu klippingar en hefur þó haldið sig alfarið við ljósa hárlitinn.

Það er því óhætt að segja að Miley hafi stolið senunni á The Daily Front Row tískuverðlaunahátíðinni í gær. Miley var fengin til þess að veita síðustu verðlaun kvöldsins en verðlaunin féllu í skuggann á nýja hárinu.

Það er hárgreiðslumaðurinn Bob Recine sem er snillingurinn á bak við hárið.

Miley var fengin til þess að veita verðlaun á The Daily Front Row tískuverðlaunahátíðinni í gær.Getty/Monica Schipper

Vinsælli og hamingjusamari en nokkru sinni fyrr

Ferill Miley hefur náð nýjum hæðum eftir að hún gaf út smellinn Flowers fyrr á árinu. Hún gerði sér lítið fyrir og sló met á Spotify fyrir flestar hlustanir á einni viku, en laginu var streymt tæplega 100 milljón sinnum fyrstu vikuna sína á streymisveitunni.

Hún hefur verið í mikilli uppbyggingu eftir skilnaðinn við Liam Hemsworth árið 2019 og er sögð hamingjusamari og heilbrigðari en nokkru sinni fyrr.


Tengdar fréttir

Þetta er kyn­þokka­fyllsta kona heims

Fyrirsætan Ashley Graham er kynþokkafyllsta kona heims samkvæmt tímaritinu Maxim. Tímaritið gefur árlega út lista yfir hundrað kynþokkafyllstu konur heims en sú kona sem vermir fyrsta sæti listans prýðir forsíðu tímaritsins.

Hefur fundið hamingjuna á ný eftir erfiðan skilnað

Tónlistarkonan Miley Cyrus hefur hafið nýjan kafla í sínu lífi. Eftir erfið síðustu ár er Miley sögð hamingjusamari og heilbrigðari en hún hefur verið í langan tíma, auk þess sem hún á eitt vinsælasta lag í heiminum í dag.

Miley Cyrus braut blað í sögu Spotify

Tónlistarkonan Miley Cyrus er mætt á Íslenska listann á FM með lagið sitt Flowers. Lagið var kynnt inn sem líklegt til vinsælda í síðustu viku og er nú komið í 16. sæti listans.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×