Fótbolti

Jón Dagur fór á kostum gegn Standard Liege

Aron Guðmundsson skrifar
Jón Dagur í leik með OH Leuven
Jón Dagur í leik með OH Leuven Vísir/Getty

Ís­lenski at­vinnu- og lands­liðs­maðurinn í knatt­spyrnu, Jón Dagur Þor­steins­son lék á alls oddi í liði OH Leu­ven sem vann 3-2 sigur á Standard Liege í belgísku úr­vals­deildinni í dag.

Jón Dagur, sem hefur verið einn besti leik­maður OH Leu­ven á yfir­standandi tíma­bili, var á sínum stað í byrjunar­liði liðsins í dag.

Hann gerði sér lítið fyrir og skoraði tvö mörk á fjórum mínútum og gull­tryggði sigur OH Leu­ven.

Með sigrinum er OH Leu­ven komið upp í 10. sæti belgísku úr­vals­deildarinnar og situr liðið þar með 48 stig eftir 34 leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×