Fótbolti

Messi skoraði og lagði upp

Hjörvar Ólafsson skrifar
Sergio Ramos stangar inn fyrirgjöf Lionel Messi. 
Sergio Ramos stangar inn fyrirgjöf Lionel Messi.  Vísir/Getty

Paris Saint-Germain hafði betur með tveimur mörkum gegn engu þegar liðið sótti Nice heim á Allianz Riviera í frönsku efstu deildinni í fótbolta karla í dag. 

Lionel Messi kom Parísarliðinu yfir um miðbik fyrri hálfleiks eftir stoðsendingu frá Nuno Mendes.  

Messi lagði svo upp skallamark Sergio Ramos sem innsiglaði sigur Paris Saint-Germain um það bil korteri fyrir leikslok. 

Paris Saint-Germain er með 69 stig eftir þennan sigur og hefur sex stiga forskot á Lens þegar 30 umferðum af 38 er lokið. Nice er hins vegar í áttunda sæti með 45 stig. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×