Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.
Hvenær vaknar þú á morgnana?
„Ég vakna oftast klukkan korter í sjö og þá við kaffiilm af völdum bónda míns. Við höfum þann háttinn á að Árni er með snjallúr sem bankar í hann og ég með eyrnatappa sem er síðari tíma snilldaruppgötvun af minni hálfu, og þetta tvennt tryggir ævinlega ljúfa og góða vöknun.
Kaffivélin er í seilingarfjarlægð þannig að fyrsti bollinn er mættur upp í rúm rétt eftir að augun opnast. Oftar en ekki er ég svo mætt á tennisvöllinn klukkan hálf átta. Þar er ég keyrð í gang af æfingafélögunum mínum sem sjá til þess að ég fæ ekki að vera kyrr nema í nokkrar sekúndur í einu. Að loknum tímanum er ég orðin sjóðheit fyrir daginn og til í slaginn enda er tennis ekki bara hörkubrennsla heldur líka stanslaus æfing í að taka ákvarðanir á ógnarhraða. Svona hefur þetta gengið árum saman og ég get eiginlega ekki hugsað mér að byrja daginn öðruvísi.
Um helgar sef ég í mesta lagi klukkutíma lengur. Ég er víst og verð morgunhæna, mamma segir að ég hafi verið svona síðan í vöggunni, alltaf jafn brjálæðislega spennt að byrja daginn.“
Á skalanum 1-10: Hversu töff varstu á fermingardaginn og hversu sígild tíska einkenndi þig í fatavali og hári?
Ég var að sjálfsögðu klædd fatnaði samkvæmt fermingartísku ársins 1990 úr versluninni Sautján. Hvít blúnduskyrta með ofurstórum kraga, svartur skokkur með axlaböndum og kvartleggings með blúndurönd neðan á.
Ég fékk líka að fara í ljós tvisvar sinnum fyrir daginn mikla og mátti nota smá maskara.
Mamma skellti svo hvítum blómum í sítt og liðað hárið og ég var bara mjög fín og sæt þennan dag með munninn fullan af spöngum, kannski ekki mjög töff samt. Daginn eftir rakaði ég svo hárið af.
Á töffskalanum gef mér kannski 6 fyrir fermingardaginn en svo auka rokkprik fyrir athafnirnar daginn eftir.
Annars var ég frekar svona mikið eins og allir hinir í klæðaburði á þessum árum: Levi’s 501 gallabuxur, Reebok skór og hettupeysa, afabolur úr Verslun Guðsteins Eyjólfssonar og svört úlpa með appelsínugulu fóðri úr Vinnufatabúðinni.“

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?
„Verkefni? Hér verðum við að tala í fleirtölu: Bætt um betur, þáttaröð númer tvö, er í bígerð og ég er ekkert smá spennt að sjá breytingarnar á húsunum sem við erum með þar. Við í Skoti erum líka að leggja drög að Kappsmáli fyrir haustið og lokahönd á Hvunndagshetjur sem fer í sýningar fljótlega að ógleymdu Draumaheimilinu sem er á dagskrá Stöðvar 2 á mánudögum. Þegar nær dregur vori er enn meira að gera við framleiðslu sjónvarpsauglýsinga og svo er margt nýtt og spennandi á prjónunum sem kemur í ljós þegar fram líða stundir.
Þessu til viðbótar er ég alltaf eitthvað að brasa í þágu Spánverja á Íslandi og vinna að því að auka og styrkja samskipti og samvinnu Spánar og Íslands í ýmsum málum, mjög skemmtilegt hlutverk sem ég tók að mér þegar ég gerðist ræðismaður Spánar fyrir nokkrum árum.
Þegar ég er ekki í því þá vinn ég hörðum höndum með félögum mínum að því reyna að bjarga því sem bjargað verður af íslenska laxastofninum og koma í veg fyrir að örfáir frekir menn komist upp með að stórskaða íslenska náttúru með græðgina eina vopni.
Á mínum einkaprjónum er hins vegar lítið og mjúkt teppi, ætlað fyrsta barnabarninu mínu sem lítur bráðum dagsins ljós. Ég get ekki lýst því hvað ég hlakka mikið til að hitta þá manneskju.“
Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?
Vinnan mín er mjög skapandi en snýr ekki síður að rekstri. Ætli galdurinn liggi ekki helst í að búa til lista yfir þau atriði sem verða að klárast, eða ég vil að klárist, hvern einasta dag.
Ég reyni að hafa aldrei fleiri en fimm atriði á þeim lista.
Allt annað er bónus.“
Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?
„Fyrir miðnætti er alltaf markmiðið. Lífið er of skemmtilegt til að fara of snemma að sofa en næsti dagur er líka of dýrmætur til að vera skaðaður af of stuttum svefni.“