Neytendur

Pósthúsið í Mjóddinni kveður og póstafgreiðsla víða úti á landi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Pósturinn hefur verið í Mjóddinni um árabil. Nú heyrir pósthúsið þar brátt sögunni til.
Pósturinn hefur verið í Mjóddinni um árabil. Nú heyrir pósthúsið þar brátt sögunni til. Vísir/Vilhelm

Pósturinn hyggst loka pósthúsum á næstunni og meðal þeirra sem hverfa á braut er pósthús Breiðhyltinga í Mjódd og Ólsara í Ólafsvík. Forstjóri Póstsins segir breytingarnar í takt við breyttar þarfir og kröfur neytenda.

Samhliða þessum lokunum er verið að gera breytingar á samstarfssamningum Póstsins við aðila á nokkrum stöðum á landinu. Póstafgreiðslu í Hveragerði, Bolungarvík, Súðavík, Grenivík, Laugar og Reykjahlíð verður sömuleiðis lokað.

Póstafgreiðslum hjá þessum samstarfsaðilum verður lokað en samspil póstboxaþjónustu, póstbílaþjónustu, bréfberaþjónustu og landpóstaþjónustu mun sinna þjónustuhlutverki Póstsins vel á þessum svæðum og fullkomlega í samræmi við lög og reglugerðir sem um starfsemina gilda.

„Dregið hefur úr eftirspurn eftir afgreiðsluþjónustu pósthúsa. Þar af leiðandi er lagt upp úr að þróa annars konar lausnir. Okkar ánægðustu viðskiptavinir eru þeir sem nota póstbox auk þess sem í dag er hægt að póstleggja pakka í póstbox. Flest póstboxin eru aðgengileg allan sólarhringinn og eru einföld í notkun“ segir  Þórhildur Ólöf Helgadóttir, forstjóri Póstsins.

Hún segir stafræna umbreytingu kalla á nýjar nálganir í þjónustu. Við því verði að bregðast. Um leið beri Pósturinn beinlínis skylda til að leita hagkvæmra leiða í rekstrinum. Því séu breytingar sem þessar óhjákvæmilegar. 

„Markmið okkar er ávallt að fjölga afhendingarstöðum en það er okkur mikið kappsmál að bæta við póstboxum í helstu þéttbýliskjarna á landsbyggðinni. Það skiptir máli að bjóða upp á þétt dreifinet móttöku og afhendingastaða til að vera sem næst viðskiptavinum okkar, segir Þórhildur.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×