Neytendur

Brutu lög með aug­lýsingu um „allt að 40% ó­dýrara“ á­fengi

Atli Ísleifsson skrifar
Viðskiptamaðurinn Sverrir Einar Eiríksson er forsvarsmaður Nýju vínbúðarinnar.
Viðskiptamaðurinn Sverrir Einar Eiríksson er forsvarsmaður Nýju vínbúðarinnar. Stöð 2

Rekstraraðili Nýju vínbúðarinnar braut lög með auglýsingum á heimasíðu sinni með fullyrðingum um „allt að 40% ódýrara“ vín, án þess að taka fram um við hvað væri átt.

Þetta er niðurstaða Neytendastofu sem hefur bannað fyrirtækinu að viðhafa slíka viðskiptahætti og auglýsingarnar sagðar villandi.

Fram kemur að Neytendastofu hafi borist ábendingar um að á vefsíðu Nýju vínbúðarinnar væri fullyrt að vörur félagsins væru „allt að 40% ódýrari“. Ekki væri þó tekið fram um við hvað væri átt.

Yfirstrikað verð

Neytendastofa hafi þá óskað eftir upplýsingum um framsetningu verðs á vefsíðu Nýju vínbúðarinnar en þar sem iðulega væri birt yfirstrikað verð og svo lægra verð þar við hliðina á. Því hafi mátt ætla að verið væri að selja vörur á lækkuðu verði.

Ennfremur hafi Neytendastofa gert athugasemdir við að vörur hefðu verið auglýstar í takmörkuðu magni án þess að tilgreint hefði verið nákvæmlega hvaða vörur væru boðnar til sölu í takmörkuðu magni eða hversu mikið af vörunni eða vörunum hafi verið í boði.

Verið að bera saman við verð í Vínbúðinni

Í svörum Nýju vínbúðarinnar kom fram að yfirstrikað verð á heimasíðu hennar væri verð í Vínbúðum ÁTVR og því væri verið að bera saman verð Nýju vínbúðarinnar við verð í verslunum ÁTVR, eina samkeppnisaðila félagsins á þeim tíma. 

Vísir/Vilhelm

Vildi Nýja vínbúðin meina að vísun í „allt að 40% ódýrari“ væri því ekki vísun í afslátt heldur væri þetta verð í verslunum ÁTVR borið saman við verð í vefverslun félagsins. Þegar kemur að takmörkuðu magni þá hafi það fyrst og fremst verið sett fram um ýmsar vörur sem framleiddar séu í takmörkuðu upplagi.

„Í ákvörðun Neytendastofu kom fram að framsetning verðupplýsinga á vefsíðu Nýju Vínbúðarinnar væri til þess fallin að telja neytendum trú um að þeir væru að kaupa vörur á lægra verði en þær hafi áður verið seldar á hjá Nýju Vínbúðinni. Með framsetningu verðupplýsinga og með því að tilgreina ekki hvað sé átt við með fullyrðingunni „allt að 40% ódýrara“ hafi rekstraraðili Nýju Vínbúðarinnar veitt villandi upplýsingar um verð og annað verðhagræði auk þess sem ekki voru færðar sönnur á fullyrðinguna. Þá hafi rekstraraðili Nýju Vínbúðarinnar brotið gegn ákvæðum laga með því að auglýsa takmarkað magn, án þess að tiltaka hvaða vörur sé um að ræða eða hve mikið magn sé í boði.

Bannaði Neytendastofa rekstraraðila Nýju Vínbúðarinnar að viðhafa ofangreinda viðskiptahætti,“ segir á vef Neytendastofu.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×