Erlent

Lífs­tíðar­fangelsi yfir hvítum þjóð­ernis­sinna vegna fjölda­morðsins í Buffa­lo

Kjartan Kjartansson skrifar
Morðinginn Payton Gendron les upp stutta yfirlýsingu í dómsal þar sem hann bað fórnarlömb sín fyrirgefningar.
Morðinginn Payton Gendron les upp stutta yfirlýsingu í dómsal þar sem hann bað fórnarlömb sín fyrirgefningar. AP/Derek Gee/The Buffalo News

Ríkisdómstóll í New York dæmdi hvítan þjóðernissinna sem skaut tíu blökkumenn til bana í stórmarkaði í borginni Buffalo í fyrra í lífstíðarfangelsi í dag. Karlmaður sem var viðstaddur dómsuppkvaðninguna reyndi að ráðast á sakborninginn.

Payton Gendron, nítján ára, játaði sig sekan um morð og innlent hryðjuverk sem hafi verið knúið af hatri í nóvember. Þeim sökum fylgir lífstíðarfangelsi. Dauðarefsing er ekki við lýði í New York-ríki. 

AP-fréttastofan segir að Gendron hafi fellt tár yfir vitnisburði í málinu. Hann bað fórnarlömb og aðstandendur þeirra afsökunar í stuttri yfirlýsingu. Uppnám skapaðist tímabundið í dómsalnum þegar karlmaður reyndi að ráðast á Gendron. Fógetafulltrúar náðu fljótt að yfirbuga manninn og saksóknarar segja að hann verði ekki sóttur til saka fyrir athæfið.

„Það getur ekki verið nein miskunn fyrir þig, enginn skilningur, ekkert annað tækifæri,“ sagði Susan Eagan, dómarinn í málinu, þegar hún kvað upp refsinguna.

Bandaríska dómsmálaráðuneytið gæti enn sóst eftir dauðarefsingu yfir Gendron ákæri það hann fyrir hatursglæp samkvæmt alríkislögum. Verjandi hans segir hann tilbúinn að játa sig sekan gegn því að ákæruvaldið fari ekki fram á hann verði tekinn af lífi.

Gendron viðurkenndi í yfirlýsingu sinni við uppkvaðningu refsingarinnar að hann hefði skotið fólk og myrt það fyrir þær sakir einar að það var svart á hörund. Hann er sagður hafa umturnast af hatri eftir að hafa lesið samsæriskenningar kynþáttahatara á netinu.

Á meðal fórnarlamba Gendron voru djákni, öryggisvörður, amma níu barna og karlmaður sem var að kaupa afmælistertu. Fórnarlömbin tíu voru á aldrinu 32 til 86 ára.


Tengdar fréttir

Sagðist saklaus af hatursglæpum

Maðurinn sem sakaður er um að myrða tíu manns í skotárás í Buffalo í New York fyrr á árinu, segist saklaus af ákærum um hatursglæpi. Payton Gendron er hvítur og er sakaður um að hafa ferðast til Buffalo til að myrða þeldökkt fólk.

Buffalo-morðinginn ákærður fyrir hryðjuverk

Maðurinn sem skaut tíu til bana í Buffalo í New York í síðasta mánuði hefur verið ákærður fyrir hryðjuverk. Payton Gendron er átján ára gamall og ætlaði sér sérstaklega að myrða þeldökkt fólk.

Keyrði í þrjá tíma til að myrða svart fólk

Payton S. Gendron, sem er átján ára gamall, keyrði í rúma þrjá tíma í gær til Buffalo í New York. Þegar hann var kominn á leiðarenda, um 320 kílómetrum frá heimili sínu, skaut hann tíu manns til bana og særði þrjá. Lögreglan segir árásina vera hatursglæp en Gendron fór sérstaklega til Buffalo til að myrða svart fólk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×