Viðskipti innlent

Ekki bara skortur á mat heldur færi allt of mikið í ruslið

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Magnús Óli Ólafsson
Magnús Óli Ólafsson Vísir/Egill

Forstjóri Innnes, eins stærsta heildsalans á höfuðborgarsvæðinu, segir að verði úr verkföllum Eflingar hjá Samskipum og Olíudreifingu geti heildsalinn aðeins haldið úti starfsemi í nokkra daga.

Atkvæðagreiðsla um verkfallsboðun Eflingar hjá Samskipum, Olíudreifingu, Skeljungi, Berjaya hótelum og Edition hótelinu hefst samkvæmt áætlun á hádegi á morgun. Atkvæðagreiðslunni líkur á þriðjudag og verði verkfallsboðun samþykkt hefst vinnustöðvun á hádegi 15. febrúar næstkomandi.

Forstjóri heildsölunnar Innness segir að verði úr verkföllum sé staðan svört. 

„Þá erum við að tala um það að matvörur og nauðsynjar eru ekki lengur á boðstólnum. Það er ekki eitthvað sem við þekkjum hér á landi að sú mynd geti komið upp,“ segir Magnús Óli Ólafsson, forstjóri Innnes. Fyrirtækið sé byrjað að undirbúa sig undir verkföll.

„Framkvæmdastjórn félagsins hefur rýnt stöðuna eftir mismunandi stigum og erum búin að gera allt sem í okkar valdi stendur til að mæta þessu ef til kemur svo við getum haldið okkur á floti,“ segir Magnús. 

Bara einn hlekkur þurfi að klikka svo allt stöðvist

Innnes geti aðeins haldið úti starfsemi í nokkra daga ef rætist úr svörtustu spám.

„Ef við erum að tala um verstu myndina og við höfum ekki umframbirgðir af eldsneyti erum við bara að tala um nokkra daga,“ segir Magnús.

„Við reynum auðvitað að koma aðföngum til viðskiptavina. Ef við getum það ekki er töluvert af vöru sem við þurfum að selja sem er ferskvara, eins og grænmeti og ávextir. Það verður töluverð sóun af þessu ef við komum vörunni ekki til viðskiptavina. Það er ekki bara það að yrði skortur heldur líka sóun sem færi í ruslið.“

Það eigi ekki bara við innnes, sem dreifi vörum á höfuðborgarsvæðinu, heldur alla aðfangakeðjuna.

„Það er bæði flutningsaðilar sem flytja út á land, það eru flutningsleiðir vöruhúsanna sem dreifa í matvörubúðirnar. Öll áfangakeðjan reiðir sig auðvitað á það að ná í eldsneyti. Þó eitthvað eitt fyrirtæki eða hluti af starfseminni hafi aukabirgðir þá á ég erfitt með að sjá þá mynd að allri aðfangakeðjunni sé borgið. Það þarf ekki nema eitt fyrirtæki sem er ekki með umframbirgðir og þá stoppar það þar,“ segir Magnús. 

Forsætisráðherra ekki svarað fundarbeiðni Sólveigar

Hann hafi ekki trú á því að úr þessari verstu mynd rætist.  

„Ég vona innilega að samningaðilar setjist niður og finni lausn á málunum. Ég held að það sem þegar er búið að bjóða sé góður samningur og því til vitnis hafa mörg stærstu stéttarfélögin skrifað undir þann samning.“

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, skrifaði á þriðjudag bréf til forsætisráðherra þar sem hún óskaði efir fundi með honum vegna ummæla hans um að miðlunartillaga ríkissáttasemjara stæðist að hans mati skoðun. Sólveig segir í samtali við fréttastofu að hún hafi ekki fengið svör frá ráðherra um fundarbeiðnina.


Tengdar fréttir

Sól­veig krefst fundar með for­sætis­ráð­herra

Formaður Eflingar hefur óskað eftir fundi með forsætisráðherra og gerir athugasemd við málflutning hennar um að miðlunartillaga ríkissáttasemjara standist skoðun. Fyrirtæki sem frekari verkfallsaðgerðir Eflingar gætu haft áhrif á eru að fara yfir stöðuna en vinnustöðvun gæti til dæmis sett innanlandsflug úr skorðum.

Víð­tækari að­gerðir Eflingar munu hafa lamandi á­hrif

Víðtækar aðgerðir sem Efling boðaði til í dag munu lama starfsemi flestra stærstu hótela borgarinnar, dreifingu eldsneytis um landið og hafa mikil áhrif á dreifingu Samskipa á vörum. Félagsdómur tók fyrir í dag stefnu Samtaka atvinnulífsins gegn Eflingu vegna boðun verkfalla sem eiga að hefjast á þriðjudag.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×