Flybe aftur farið á hausinn Viktor Örn Ásgeirsson skrifar 28. janúar 2023 20:00 Flugfélagið hefur að miklu leyti flogið innanlands en Amsterdam og Genf hafa einnig verið meðal áfangastaða. EPA/PAUL MCERLANE Breska flugfélagið Flybe er aftur farið á hausinn. Félagið hefur fellt niður allar flugferðir og strandaglópar eru í öngum sínum. Talið er að hundruð muni missa vinnuna.
Flugfélagið varð upphaflega gjaldþrota í mars árið 2020. Vandræði vegna kórónuveirunnar voru sögð endanleg orsök gjaldþrotsins. Sjá einnig: Flybe farið á hausinn Fyrirtæki í eigu bandarísks fjárfestingarsjóðs kom flugfélaginu til bjargar og hóf Flybe rekstur að nýju í apríl 2022. Áætlað var að fljúga 530 sinnum á viku til 23 áfangastaða. Háleit markmið gengu þó ekki eftir. Bresk flugmálayfirvöld hafa beðið þá sem áttu bókað flug með félaginu að drífa sig ekki út á flugvöll. Leita þurfi til annarra flugfélaga en Flybe hefur heitið því að aðstoða viðskiptavini. Þá hefur breska lággjaldaflugfélagið Ryanair boðið fjölmörgum starfsmönnum Flybe vinnu. Guardian greinir frá.
Fréttir af flugi Bretland Mest lesið Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Viðskipti innlent Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Viðskipti erlent Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Viðskipti innlent Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Viðskipti innlent Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Viðskipti innlent Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Viðskipti erlent Verðbólga hjaðnar Viðskipti innlent Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Viðskipti innlent Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira