Rafíþróttir

9. umferð CS:GO: Hart barist á toppnum

Snorri Rafn Hallsson skrifar
9 umferð lið

NÚ, Þór og Dusty eru jöfn að stigum á toppi Ljósleiðaradeildarinnar í CS:GO þegar tímabilið er hálfnað.

Leikir vikunnar

Fylkir 2 – 16 Breiðablik

Umferðin hófst í Vertigo þar sem Fylkir tók á móti Breiðabliki. Liðin skiptu með sér fyrstu fjórum lotunum en að þeim loknum sá Fylkir ekki til sólar. WNKR leiddi Breiðablik framan af en um miðbik leiksins skaut Viruz sig í gang á vappanum. Leikur Fylkis var einsleitur svo Breiðablik þurfti ekki mikið að hafa fyrir því að skella í lás í vörninni og hreinlega bursta Fylki í þessum mjög svo einhliða leik.

Viðstöðu 8 – 16 LAVA

Liðin mættust í Inferno kortinu þar sem LAVA hafði leikinn algjörlega í höndum sér í fyrri hálfleik. Leikmenn Viðstöðu voru lengi í gang og mikið vantaði upp á bæði samskipti og fjárhag liðsins. Stalz, TripleG og Goa7er voru hins vegar eldheitir og var staða í hálfleik því 12–3 fyrir LAVA. Örlítið lifnaði yfir Viðstöðu í síðari hálfleiknum þar sem Blazter mætti af loks af krafti í leikinn og Viðstöðu tókst að aftengja sprengjur LAVA. Þolinmæði og gott samspil LAVA borgaði sig þó og stóð liðið uppi sem sigurvegari að lokum.

SAGA 16 – 14 Ármann

SAGA og Ármann tókust á í Overpass og komst Ármann yfir snemma í leiknum. Þegar bæði lið voru fullvopnuð kom þó munurinn á þeim í ljós þar sem SAGA tókst ítrekað að aftengja sprengjur Ármanns og sjá við þeim í vörninni. DOM og ADHD léku einstaklega vel og hafði SAGA 5 lotu forskot þegar síðari hálfleikur hófst. Allt útlit var fyrir að sá yrði stuttr þar sem SAGA komst í stöðuna 13–6 en með mikilli seiglu minnkaði Ármann muninn að lokum niður í aðeins eitt sitg. Úrslitin réðust því ekki fyrr en í síðustu lotu venjulegs leiktíma þegar DOM felldi Ofvirkan og tryggði SAGA stigin tvö.

TEN5ION 10 – 16 NÚ

Leikurinn fór fram í Ancient kortinu og komst TEN5ION varla að í upphafi fyrri hálfleiks þrátt fyrir ágætis tilraunir. Alltaf tókst NÚ að loka vörninni þar sem RavlE og Bjarni voru virkilega beittir og vann NÚ þannig fyrstu 8 lotur leiksins. TEN5ION fann þó taktinn undir lokin og tókst að minnka muninn í 10–5 með Moshii í fararbroddi. TEN5ION stillti svo upp góðri vörn í síðari hálfleik þar sem hvorki gekk né rak hjá NÚ á tímabili en þegar á reyndi tókst NÚ að halda aftur af endurtökutilraunum TEN5ION og klára leikinn í síðustu þremur lotunum.

Dusty 16 – 10 Þór

Það var spenna í loftinu þegar Dusty og Þór, sem hafa háð harða baráttu á tímabilinu, mættust loksins í síðasta leik fyrri umferðar tímabilsins. Leikurinn fór fram í Dust 2 og hóf Þór leikinn í vörn. Dusty vann fyrstu 3 loturnar en vörn Þórs var öflug þar sem Minidegreez hélt miðjunni vel með vappanum og komst liðið yfir í 6–3. Þá skipuðust veður í lofti þar sem Dusty náði að hafa betur í upphafseinvígunum og skapa sér góð tækifæri. Staðan var því eins jöfn og hugsast getur, 8–7 fyrir Dusty, þegar síðari hálfleikur hófst. Um miðbik síðari hálfleiks kom í ljós að Dusty komu mun agaðari, skipulagðari og betur undirbúnir í leikinn og innsiglaði Detinate sigur liðsins í 26. lotu með skammbyssuna eina að vopni.

Staðan

Úrslit þessarar umferðar gera það að verkum að NÚ, Þór og Dusty skipa sér í efstu þrjú sætin, en þetta er liðin sem hafa gert sig hvað líklegust til að vinna deildina hingað til. Innbyrðis viðureignir liðanna ráða því hvernig þau raðast á töflunni en spennandi verður að sjá hvernig þetta mun þróast á síðari helmingi tímabilsins. 

Ármann, LAVA og Breiðablik sitja svo í 4.-6. sæti með 10 stig hvert og geta öll gert atlögu að toppsætunum ef úrslit annarra leikja eru þeim hagstæð. SAGA og Viðstöðu fylgja þeim eftir en á botninum sitja Fylkir og TEN5ION. 

TEN5ION hefur ekki enn unnið leik á tímabilinu og það er ljóst að einhverjar breytingar verða að eiga sér stað ætli liðið að halda sér í deildinni á næsta tímabili. Fylkir er ekki langt á eftir Viðstöðu og SAGA og haldi liðið rétt á rifflunum er aldrei að vita nema þeim takist að smeygja sér upp úr umspilssætinu þegar upp er staðið.

Næstu leikir

Hlé verður gert á Ljósleiðaradeildinni á meðan umspil fyrir Blast mótið fer fram næstu vikur en þegar deildin snýr aftur er dagskrá 10. umferðar eftirfarandi: 

  • TEN5ION–SAGA, þriðjudaginn 29. nóv., kl: 19:30
  • Þór–LAVA, þriðjudaginn 29. nóv., kl: 20:30
  • Fylkir–NÚ, fimmtudaginn 1. des., kl: 19:30
  • Ármann–Viðstöðu, fimmtudaginn 1. des., kl: 20:30
  • Dusty–Breiðablik, fimmtudaginn 1. des., kl: 21:30

Sýnt verður frá leikjunum í beinni á Stöð 2 Esport og á Twitch síðu Rafíþróttasamtaka Íslands.


Tengdar fréttir

Tilþrifin: Xeny vinnur lotuna einn á móti fjórum

Vísir birtir Elko tilþrif kvöldsins úr Ljósleiðaradeildinni í CS:GO eftir hvern keppnisdag í allan vetur. Í þetta sinn er það xeny í liði Viðstöðu sem á heiðurinn af tilþrifum kvöldsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×