Afsláttardagar alltaf að stækka: „Enginn dagur sem sker sig jafn mikið úr“ Margrét Björk Jónsdóttir skrifar 11. nóvember 2022 12:46 Andrés Magnússon segir mikilvægt að hlúa að íslenskri verslun Einn stærsti dagur afsláttardagur ársins er í dag, svokallaður Singles day eða Dagur einhleypra. Sífellt fleiri landsmenn nýta sér alþjóðlega afsláttardaga í nóvember til að hefja og jafnvel klára jólainnkaup. Framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu segir mikilvægt að hafa umhverfisáhrif í huga þegar verslað sé af erlendum netverslunum.
Andrés Magnússon framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu segir þessa stóru afsláttardaga hafa komið mjög sterka inn í verslun, ekki síst jólaverslun, undanfarin ár. „Þetta hefur farið stigvaxandi síðustu fimm til sex árin. í fyrra var hlutfall af kortaveltu á þessum degi í nóvember, ellefu til tólf prósent. Það er enginn dagur sem sker sig jafn mikið úr hvað það varðar,“ segir Andrés. Hann segir jafnframt að jólaverslun sem að löngum hluta hafi að mestu farið fram í desember, hafi í auknum mæli verið að færast yfir á þessa afsláttardaga. „Enda geta neytendur í gert frábær kaup og hafa nýtt sér það í ríkum mæli. Ekki bara hér heldur líka í löndum sem við berum okkur saman við.“ Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri SVÞ. Verslun „gífurlega mikilvæg fyrir hagkerfið“ Andrés hefur ekki áhyggjur af því að íslendingar séu auknum mæli að panta af erlendum verslunum, og því að það gæti komið illa niður á íslenskum verslunum. „Innlend verslun er og hefur alltaf verið í mikilli samkeppni. Hins vegar er mikilvægt að menn hafi umhverfisáhrif í huga þegar verslað er í ríkum mæli af erlendum netverslunum,“ segir Andrés. Hann leggur áherslu á að íslensk verslun skipti gífurlega miklu máli fyrir hagkerfið. „Um tuttugu og fimm þúsund manns hafa atvinnu af verslun á ísland. Þetta er ein mikilvægasta atvinnugrein okkar. Það skiptir gífurlegu máli að það sé vel hlúð að greininni sem slíkri. Bæði vegna þess hversu mikilvæg hún er hagkerfinu, en ekki síður hvað hún veitir stórum hluta fólks atvinnu.“ Öðru hvoru kemur upp sú umræða að fyrirtæki hækki verð á vörum sínum fyrir afsláttardaga og bjóði svo afslátt. Andrés gefur lítið fyrir slíkt tal. „Ég hef bara aldrei heyrt um það.“
Neytendur Verslun Jól Tengdar fréttir Sprenging átt sér stað í innlendri netverslun Í nóvember jókst innlend netverslun um 353% milli ára og nam alls 7,6 milljörðum króna. Hlutfallslega var netverslun mest í raf- og heimilistækjaverslunum þar sem 41% af kaupum fóru fram í gegnum netið. 6. janúar 2021 17:01 „Hærri prósentutala en við höfum nokkurn tímann séð áður á Íslandi“ Velta Íslendinga í verslunum innanlands nam 46 milljörðum króna í nóvember og hefur hún aldrei verið meiri í einum mánuði. 17 prósent af veltunni var í formi netverslunar og er það hærri tala en nokkurn tímann hefur sést hér á landi. 3. janúar 2021 14:00 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Krökkunum finnst hálf hallærislegt að mamman kunni Friends þættina utan að Atvinnulíf Röntgen Domus og Orkuhúsið fá ekki að sameinast Viðskipti innlent Mun bjóða upp á sömu flugáætlun og Bláfugl áður Viðskipti innlent Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Viðskipti innlent Dýrmætustu og sjaldgæfustu Mustang bílar landsins á afmælissýningu Mustang Samstarf Þarf að greiða kortareikninginn og meira til í málskostnað Neytendur Neytendur kunna að meta Landlaxinn og Landbleikjuna Samstarf „Ég var skíthrædd að senda þessa tölvupósta“ Atvinnulíf Krónísk óstundvísi: Skýringar og góð ráð Atvinnulíf Tekjur Apple drógust saman enn eina ferðina Viðskipti erlent Fleiri fréttir Þarf að greiða kortareikninginn og meira til í málskostnað Vonast til að koma dánarbúinu í góðar hendur Helmingur Íslendinga sáttur við falsanir og eftirlíkingar Allir með fjölnota innkaupapoka fá frítt í strætó á morgun Stöð 2+ lækkar verð Enn ekkert að frétta af félagi sem þúsundir Íslendinga eiga kröfu á Villta vestrið í gjaldtöku bílastæða FÍB vill að Neytendastofa grípi til aðgerða vegna ófremdarástands í bílastæðamálum Mamman ítrekað læst úti en fær engar skaðabætur Flúðu dónalegan fararstjóra og fá ekki krónu Laumuðu fötunum með barnabílstólunum og fá lægri bætur Hótelið alls ekki sex hundruð metra frá ströndinni Athafnaleysi Katrínar geti skaðað hagsmuni landsmanna Sjá meira
Sprenging átt sér stað í innlendri netverslun Í nóvember jókst innlend netverslun um 353% milli ára og nam alls 7,6 milljörðum króna. Hlutfallslega var netverslun mest í raf- og heimilistækjaverslunum þar sem 41% af kaupum fóru fram í gegnum netið. 6. janúar 2021 17:01
„Hærri prósentutala en við höfum nokkurn tímann séð áður á Íslandi“ Velta Íslendinga í verslunum innanlands nam 46 milljörðum króna í nóvember og hefur hún aldrei verið meiri í einum mánuði. 17 prósent af veltunni var í formi netverslunar og er það hærri tala en nokkurn tímann hefur sést hér á landi. 3. janúar 2021 14:00