Rafíþróttir

8. umferð CS:GO: 30-bombur og stórir sigrar

Snorri Rafn Hallsson skrifar
8 liðið

Þór er áfram á toppi Ljósleiðaradeildarinnar í CS:GO, en NÚ og Dusty fylgja fast á hælana.

Leikir vikunnar

Ármann 16 – 0 TEN5ION

Liðin mættust í Nuke þar sem lið TEN5ION beið afhroð. Allt frá hnífalotunni hafði Ármann töglin og hagldirnar í leiknum en innkoma Criis í liðið var kærkomin viðbót. Criis lék áður með SAGA en tók sér hlé frá Ljósleiðaradeildinni á síðasta tímabili. Í þetta skiptið leysti hann Lambo af og var akkerið í vörn Ármanns þar sem hann tók á móti leikmönnum TEN5ION á innisvæðinu og stráfelldi þá trekk í trekk. Hundzi var Criis til hald og trausts á meðan aðrir leikmenn liðsins léku annars staðar á kortinu. Niðurstaðan var sú að TEN5ION vann ekki eina einustu lotu í leiknum og er því um að ræða stærsta sigur í sögu Ljósleiðaradeildarinnar.

NÚ 16 – Viðstöðu 10

Leikurinn fór fram í Mirage og byrjaði NÚ í vörn eftir þrefalda fellu frá Bl1ck í hnífalotunni. Lið Viðstöðu var hins vegar öflugt framan af og vann fyrstu fjórar loturnar. NÚ bætti þá um betur og vann næstu 11 lotur hálfleiksins til að koma sér í yfirburðarstöðu með RavlE á vappanum. Fyrstu tvær lotur síðari hálfleiks féllu einnig með NÚ svo samtals voru þetta heilar 13 lotur í röð. Í stöðunni 15–5 tóku leikmenn Viðstöðu örlítið við sér og minnkuðu muninn en það var of seint í rassinn gripið og NÚ hafði betur.

Dusty 16 – 13 SAGA

Það var kominn tími á að Dusty næði sér í stig eftir erfiðan kafla í deildinni undanfarið þar sem liðið féll úr fyrsta sætinu niður í það þriðja. SAGA náði þó forskoti í upphafi en Dustymenn voru snöggir að jafna, komast yfir og vinna hálfleikinn. Skipti þar miklu að Thor hafði alla jafna betur í vappaeinvígum við ADHD sem náði sér aldrei á flug. Síðari hálfleikur var svo spennandi þar sem WZRD var allt í öllu fyrir SAGA, en EddezeNNN steig aldeilis upp og hélt forskotinu fyrir Dusty. 30-bomba frá WZRD í 28. lotu sló tapinu á frest en Bóndi innsiglaði sigurinn strax þar á eftir.

LAVA 13 – 16 Fylkir

Lið LAVA og Fylkis mættust í Ancient kortinu þar sem Fylkir fékk að hefja leikinn í vörn. Snemma í leiknum náði Fylkir góðu forskoti og byggðist það helst á því hvernig leikmönnum liðsins tókst að sjá við LAVA í endurtökum og aftengja sprengjuna aftur og aftur. Brnr og LeFluff voru í fantaformi en sá fyrrnefndi átti eftir að ljúka leiknum með hvorki meira né minna en 33 fellur undir beltinu. Leikmenn LAVA voru þó öflugri þegar þeir fengu að leika í vörn og var sóknarleikur Fylkis ósannfærandi framan af. 7 lotu forskot Fylkis varð að engu en undir lokin tókst þeim að vinna þrjár lotur í röð og tryggja sér stigin tvö úr leiknum.

Þór 16 – 8 Breiðablik

Þessi lokaleikur umferðarinnar fór fram í Mirage þar Þórsarar voru við stjórnvölinn allt frá upphafi. Beittur sóknarleikur liðsins byggði á skemmtilegum opnunum frá Minidegreez á vappanum og tókst Breiðabliki aldrei að tengja saman lotur og byggja upp almennilegan banka. Þór hafði því 5 lotu forskot inn í síðari hálfleikinn þar sem Peterrr var kjarninn í vörn liðsins. Heilt á litið voru Þórsarar einfaldlega mun betri og með sigrinum héldu þeir toppsætinu í deildinni.

Staðan

Eins og fyrr segir trónir Þór enn á toppnum eftir að hafa skotið sér fram úr NÚ og Dusty sem fylgja fast á eftir. Sigur Ármanns í sínum leik styrkti stöðu liðsins í fjórða sætinu en þar á eftir kemur mjög jöfn miðja þar sem LAVA, Breiðablik, Viðstöðu og SAGA etja kappi. Enn sem áður er Fylkir í næst neðsta sætinu og TEN5ION stigalausir á botninum.

Næstu leikir

Viðureignirnar í næstu umferð eru ekki af verri endanum þar sem liðin fyrir miðju og botni deildarinnar eiga mikið undir í sínum leik. 9. umferðinni, og fyrri hluta tímabilsins lýkur svo með stórleik Þórs og Dusty, en dagskrá umferðarinnar er eftirfarandi:

  • Fylkir–Breiðablik, þriðjudaginn 8. nóv. kl. 19:30
  • Viðstöðu–LAVA, þriðjudaginn 8. nóv. kl. 20:30
  • Ármann–SAGA, fimmtudaginn 10. nóv, kl. 19.30
  • NÚ–TEN5ION, fimmtudaginn 10. nóv, kl. 20.30
  • Dusty–Þór, fimmtudaginn 10. nóv, kl. 21.30

Sýnt verður frá leikjunum í beinni á Stöð 2 Esport og á Twitch síðu Rafíþróttasamtaka Íslands.


Tengdar fréttir

Tilþrifin: Dabbehhh tekur út þrjá fyrir toppliðið

Vísir birtir Elko tilþrif kvöldsins úr Ljósleiðaradeildinni í CS:GO eftir hvern keppnisdag í allan vetur. Í þetta sinn er það Dabbehhh í liði Þórs sem á heiðurinn af tilþrifum kvöldsins.

Tilþrifin: RavlE fer illa með liðsmenn Viðstöðu

Vísir birtir Elko tilþrif kvöldsins úr Ljósleiðaradeildinni í CS:GO eftir hvern keppnisdag í allan vetur. Í þetta sinn er það RavlE í liði NÚ sem á heiðurinn af tilþrifum kvöldsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×