Eins og að keyra um á miðlungsstórum fiskitogara Tinni Sveinsson skrifar 18. október 2022 08:01 GMC Denali er stór pallbíll að hætti Bandaríkjamanna. Vísir/James Bílaþættirnir Tork gaur halda áfram á Vísi í dag. Í öðrum þætti er pallbíllinn GMC Denali tekinn fyrir.
James Einar Becker er stjórnandi þáttanna, Tork gaurinn sjálfur. Hann segir GMC pallbílinn stóran og kraftmikinn. Þveröfugan við þá miklu tækniþróun sem á sér stað í bílabransanum. Bílar eins og Teslur séu að þróast í áttina að tölvum en þetta sé frekar bíll sem keyri yfir Teslur. Hægt er að sjá þáttinn í spilaranum hér fyrir neðan. Klippa: Tork gaur - GMC Denali Stór bíll að hætti Bandaríkjamanna „Það er eitthvað úbersvalt við það að vera á svona risastórum amerískum trukki sem gæti dregið tunglið,“ segir James. „Díselvélin í honum skilar 450 hestöflum. Hann er svo stór að mér finnst eins og ég sé að keyra um á miðlungstórum fiskitogara. Það er eins og farþeginn í bílnum sé í öðru póstnúmeri.“ James sýnir einnig í þættinum alls kyns aukahluti og eiginleika sem nýtast þeim sem þurfa að nýta hann sem vinnubíl. Því GMC Denali pallbíllinn sé hugsaður sem vinnubíll í Bandaríkjunum og það sé greinilegt að bílasmiðirnir hjá General Motors hafa séð fyrir margar leiðir til að nota bílinn. Hann segir bílinn samt mjög þægilegan, það sé nánast eins og að vera í La-Z-Boy að keyra um í honum.
Tork gaur Tengdar fréttir Eitt flottasta leikfang sem er í boði Bílaþættirnir Tork gaur hefja göngu sína á Vísi í dag. Í fyrsta þætti er sportbíllinn Porsche Cayman tekinn fyrir. 11. október 2022 07:01 Byrjaði að mynda bíla átta ára og lætur nú drauminn rætast „Minn bílaáhugi hefur alltaf verið undirliggjandi,“ segir James Einar Becker. Í næstu viku fer James af stað með nýja bílaþætti Tork gaur hér á Vísi. Á daginn vinnur hann sem markaðsstjóri en hann átti sér alltaf draum um að gera eigin bílaþátt. 9. október 2022 12:01 Mest lesið Mörg hundruð minkar sluppu úr búrum sínum Innlent „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Innlent Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Innlent Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Erlent Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Innlent Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Innlent Allt að sautján stigum og mildast á Suður- og Vesturlandi Veður Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Innlent Mjólkurhvít mengun í Sauðá Innlent Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent
Eitt flottasta leikfang sem er í boði Bílaþættirnir Tork gaur hefja göngu sína á Vísi í dag. Í fyrsta þætti er sportbíllinn Porsche Cayman tekinn fyrir. 11. október 2022 07:01
Byrjaði að mynda bíla átta ára og lætur nú drauminn rætast „Minn bílaáhugi hefur alltaf verið undirliggjandi,“ segir James Einar Becker. Í næstu viku fer James af stað með nýja bílaþætti Tork gaur hér á Vísi. Á daginn vinnur hann sem markaðsstjóri en hann átti sér alltaf draum um að gera eigin bílaþátt. 9. október 2022 12:01