Viðskipti innlent

Veittu 76 viðurkenningu og reistu jafn mörg tré í Heiðmörk

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Eliza Reid ásamt fjölda kvenna og nokkrum körlum sem veittu viðurkenningunni móttöku í gær.
Eliza Reid ásamt fjölda kvenna og nokkrum körlum sem veittu viðurkenningunni móttöku í gær. Silla Páls

Alls hlutu 59 fyrirtæki, sex sveitarfélög og ellefu opinberir aðilar viðurkenningu á ráðstefnunni Jafnrétti er ákvörðun á vegum Jafnvægisvogarinnar, hreyfiafls Félags kvenna í atvinnulífinu, í gær. Konur eru 24 prósent framkvæmdastjóra hér á landi og hefur fjölgað lítið undanfarin ár. 

Þar kynnti Eliza Reid forsetafrú viðurkenningarhafa en það eru þeir þátttakendur sem hafa náð að jafna kynjahlutfall í efsta lagi stjórnunar, framkvæmdastjórn. Á ráðstefnu Jafnvægisvogarinnar árið 2021 voru viðurkenningarhafar 53 talsins en í ár voru þeir samtals 76.

Viðurkenningarhafanir komu úr hópi þeirra 209 þátttakenda sem hafa undirritað viljayfirlýsingu Jafnréttisvogarinnar. Markmið Jafnvægisvogar um 40/60 kynjahlutfall í efsta stjórnendalagi var haft til hliðsjónar við matið. Stór hluti þeirra þátttakenda sem hafa skrifað undir viljayfirlýsinguna hafa náð góðum árangri á þessu sviði. 

„Það hefur verið gaman að fylgjast með Jafnvægisvoginni stækka undanfarin ár og jafnréttismál verða að mikilvægu forgangsmáli hjá okkar þátttakendum. Þátttakendur taka stoltir við viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar og hafa verið duglegir að vekja athygli á jafnréttismálum innan sinna vinnustaða með ýmsum hætti. Því miður eru konur eingöngu 24% framkvæmdastjóra fyrirtækja á Íslandi og hefur hlutfallið eingöngu farið upp um 3% á síðustu tíu árum. Ég er þó bjartsýn á að hlutfallið muni fara hraðar upp á næstu árum með aukinni vitundarvakningu meðal þeirra sem taka ákvörðun um ráðningar“ segir Thelma Kristín Kvaran, verkefnastjóri Jafnvægisvogarinnar.

Jafnrétti hafi bein áhrif á umhverfið

Á ráðstefnu Jafnvægisvogarinnar fyrir tveimur árum var kynntur nýr Jafnréttislundur FKA, sem Skógræktarfélag Reykjavíkur útvegaði Jafnvægisvoginni. Lundurinn er staðsettur við aðalinnganginn í Heiðmörk, Vífilsstaðamegin, og er það fyrsta sem fólk sér þegar það gengur inn í Heiðmörk. 

Í ár voru gróðursett 76 tré, eitt fyrir hvern viðurkenningarhafa árið 2022. Valdar voru margar tegundir af trjám sem tákn um þann fjölbreytileika sem Jafnvægisvogin er að stuðla að. Alls er búið að setja niður 173 tré í Jafnréttislundi á síðustu þremur árum. 

„Það er markmið Jafnvægisvogarinnar að endurtaka þetta árlega og væri ánægjulegt að sjá hlíðina fyllast á næstu árum, með auknu jafnrétti,“ segir í tilkynningu.

Aðgengileg og skýr framsetning upplýsinga

Jafnvægisvogin heldur úti mælaborði sem er ætlað að halda utan um tölfræðilegar upplýsingar um jafnrétti. Þannig sé hægt að tryggja aðhald og góða frammistöðu. 

„Í mælaborði Jafnvægisvogarinnar koma fram allar helstu opinberar upplýsingar um stöðu stjórnenda í íslensku atvinnulífi og innan hins opinbera og þær gerðar aðgengilegar á einfaldan og skýran hátt,“ segir í tilkynningunni.

Mikill vilji hafi verið hjá fyrirtækjum, sveitarfélögum og opinberum aðilum að vinna að jafnréttismálum þegar komi að æðstu stjórnendum. 

„Á árinu undirrituðu alls fjörutíu og sjö fyrirtæki, tvö sveitarfélög og átta opinberir aðilar viljayfirlýsingu um að vinna að markmiðum Jafnvægisvogarinnar og bættust þar með í hóp þeirra sem undirrituðu á síðustu árum. Þátttakendur eru orðnir 209 þátttakendur talsins. Fjölbreyttur mannauður hefur jákvæð áhrif á afkomu fyrirtækja sem og starfsánægju og frammistöðu í starfi, stuðlar að betri ákvarðanatöku og aukinni verðmætasköpun þar sem nýsköpun og vöxtur verður frekar í hópi fólks með ólíkar skoðanir og bakgrunn. Þátttakendur hafa þannig sýnt í verki að þau vilja virkja allan mannauðinn.“

Eftirfarandi fyrirtæki, sveitarfélög og stofnanir hlutu viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar í ár:

  • 1. 1912
  • 2. A4
  • 3. AGR Dynamics
  • 4. Akraneskaupstaður
  • 5. Atmonia
  • 6. AwareGO
  • 7. BL
  • 8. Blue Lagoon
  • 9. BYKO
  • 10. Coca-Cola European Partners
  • 11. Creditinfo
  • 12. Dagar
  • 13. Deloitte
  • 14. dk hugbúnaður
  • 15. Einingaverksmiðjan
  • 16. Elkem Ísland
  • 17. ELKO
  • 18. Ernst & Young
  • 19. Fangelsismálastofnun
  • 20. Félagsbústaðir
  • 21. Fjallabyggð
  • 22. Fly Play
  • 23. Framkvæmdasýslan-Ríkiseignir
  • 24. GG verk ehf
  • 25. Guðmundur Arason
  • 26. Hafnarfjarðarbær
  • 27. Hagstofa Íslands
  • 28. Háskóli Íslands
  • 29. Heilbrigðisstofnun Austurlands
  • 30. Heilbrigðisstofnun Suðurlands
  • 31. Hirzlan
  • 32. HS Orka
  • 33. IKEA
  • 34. indó sparisjóður
  • 35. Isavia
  • 36. Íslandsbanki
  • 37. Íslandshótel
  • 38. Íslandspóstur
  • 39. Krónan
  • 40. Landgræðslan
  • 41. Landsvirkjun
  • 42. Lyf og heilsa
  • 43. Lyfja
  • 44. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
  • 45. Mannvit
  • 46. Múlaþing
  • 47. Norðurál Grundartanga
  • 48. Norðurorka
  • 49. Nova
  • 50. Olís
  • 51. Orka náttúrunnar
  • 52. Orkan
  • 53. Orkusalan
  • 54. Orkuveita Reykjavíkur
  • 55. Ósar - lífæð heilbrigðis
  • 56. Pipar\TBWA
  • 57. Rafal
  • 58. Rangárþing ytra
  • 59. Reykjanesbær
  • 60. Rio Tinto á Íslandi
  • 61. SaltPay
  • 62. Samkaup
  • 63. Sjóvá
  • 64. Skatturinn
  • 65. S ólar
  • 66. Taktikal
  • 67. Tryggingastofnun
  • 68. Tryggja
  • 69. Vátryggingafélag Íslands
  • 70. Vegagerðin
  • 71. Veitur
  • 72. Veritas
  • 73. Vörður tryggingar
  • 74. Vinnueftirlitið
  • 75. Wise
  • 76. Ölfusborg







Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×