Sigurður valinn besti kökugerðarmaður í heimi Viktor Örn Ásgeirsson skrifar 11. september 2022 12:58 Sigurður Már Guðjónsson stendur með míkrafóninn fyrir miðju, glaður með titilinn. Við vinstri hlið hans er Alex Schmitt frá Þýskalandi, sem valinn var bakari ársins. Odd Stefan Sigurður Már Guðjónsson hjá Bernhöftsbakaríi var valinn kökugerðarmaður ársins á heimsþingi bakara og kökugerðarmanna í gær. Titillinn er með æðstu viðurkenningum sem kökugerðarmönnum getur hlotnast í heiminum.
Sigurður Már er vitaskuld ánægður með titilinn en alþjóðasamtök bakara og kökugerðarmanna stóðu fyrir heimsþinginu. Innan alþjóðasamtakanna eru 300.000 bakarí og kökugerðir í fimm mismunandi heimsálfum. Er þetta ekki einn stærsti titill sem hægt er að fá í þessum bransa? „Það segja þeir!“ Segir Sigurður Már hógvær í samtali við fréttastofu. Verðlaunin eru gríðarmikil viðurkenning.Odd Stefan Sigurður Már er einnig formaður Landssambands bakara og tók því þátt í skipulagningu heimsþingsins. Hann segist hafa fengið upplýsingar um hver yrði valinn bakari ársins fyrir um tveimur dögum síðan. „Ég var búinn að fá upplýsingar um hver yrði bakari ársins því hann átti að hafa samband við mig og fá að nota bakaríið til að baka brauð – en eitthvað fannst mér þetta orðið skrýtið hvað þeir lágu lengi á upplýsingum um konditor ársins. Hann hafði ekki samband og þá fór mig að gruna ýmislegt. Svo sögðu þeir við mig: Nú hefurðu tvo daga til að undirbúa eftirréttinn,“ segir Sigurður Már. Hann bauð þátttakendum á heimsþinginu upp á sérstaka útgáfu af köku úr sinni smiðju, sem valin var kaka ársins árið 2011. „Nú verður maður bara að vera duglegur að baka kökur, nú hefst vinnan,“ segir Sigurður Már léttur í bragði. Verðlaunaafhendingin fór fram við hátíðlega athöfn á Grand Hótel í gær.Odd Stefan
Bakarí Matur Tengdar fréttir Risastór áfangi í íslenska bakarabransanum Ríflega sjötíu bakarar eru staddir hér á landi til að taka þátt á heimsþingi bakara og kökugerðamanna. Í kvöld fer fram gala-kvöldverður á Grand Hótel þar sem heiðraðir verða bakari ársins og kökugerðamaður ársins, en sá síðarnefndi er Íslendingur. Nöfn sigurvegara verða tilkynnt í kvöld. 10. september 2022 13:09 Mest lesið Eurovision-vaktin: Vonbrigði á fyrra undankvöldi Eurovision Lífið Hataði á sér brjóstin og vildi skera þau af Lífið Best klæddu stjörnurnar á Met Gala Tíska og hönnun „Ég verð að komast til Japan“ Lífið Hvernig bíla eiga frambjóðendur? Bílablinda, lögregluleyfi og draumur um Volvo Lífið Ísland geti orðið fyrsta reyklausa landið í heimi Lífið „Við erum öll byrjendur á einhverjum tímapunkti“ Lífið Hera komst ekki áfram Lífið Endurgerðu Síðustu kvöldmáltíðina eftir síðustu pylsuna Lífið Stærstu stjörnur rappsins bera hvor annan þungum sökum Lífið Fleiri fréttir Bjóða ókeypis vín gegn því að símar séu læstir inni í skáp Sjá meira
Risastór áfangi í íslenska bakarabransanum Ríflega sjötíu bakarar eru staddir hér á landi til að taka þátt á heimsþingi bakara og kökugerðamanna. Í kvöld fer fram gala-kvöldverður á Grand Hótel þar sem heiðraðir verða bakari ársins og kökugerðamaður ársins, en sá síðarnefndi er Íslendingur. Nöfn sigurvegara verða tilkynnt í kvöld. 10. september 2022 13:09