Lífið

Hefði fyrirgefið Ásdísi Rán að sofa hjá Bruce Willis

Elísabet Hanna skrifar
Ásdís Ran rifjaði upp gamlar stundir í veislunni hjá Gústa B.
Ásdís Ran rifjaði upp gamlar stundir í veislunni hjá Gústa B. Instagram/Skjáskot

Árið 2010 var Ásdís Rán á forsíðu Playboy í Búlgaríu og segist hún hafa lent í ótrúlegum hlutum í kjölfarið eins og þegar frægir Hollywood leikarar voru að reyna við hana og að vera boðið í partý í Playboy Mansioninu.

„Og það náttúrulega fór út um allt, það var í allri Austur evrópu,“ segir hún um forsíðuna. Ásdís segir hafa vera ágætis pening í því að vera cover stjarna líkt og hún var. Hún var gestur í veislunni hjá Gústa B á FM957. Klippuna má heyra í heild sinni hér að neðan:

Klippa: Veislan með Gústa B - Ásdís Rán hefði mátt sofa hjá Bruce Willis

Hefur farið í Platboy Mansion

„Ég hef verið heima hjá Hugh Hefner, þrisvar en ég hef ekki hitt hann. Hann bauð mér einu sinni í bíó heima hjá sér en ég komst ekki, ég var ógeðslega fúl sko. Hann er með svona bíósal, ég var að fara í flug. Svo hef ég verið í partý-i hjá honum tvisvar en ég hitti hann ekki þar, hann var bara veikur eða eitthvað en ég hitti alla aðra, fullt af Hollywood leikurum og allskonar,“ segir hún um árin í kringum forsíðuna.

Segir Chris Hemsworth og Bruce Willis hafa reynt við sig

Aðspurð hver sé frægasta manneskjan sem Ásdís hefur hitt stendur ekki á svörum: „Ég hitti hann tvisvar hann Jason Statham og Bruce Willis. Hann hérna Thor gaurinn var með mér tvisvar í partýum, hann reyndi við mig meira að segja, Bruce Willis líka hann reyndi við mig líka,“ segir hún reynslu sína af leikurunum.

Fyrrverandi hefði fyrirgefið henni

Ásdís segist hafa verið gift á þeim tíma sem þeir reyndu við sig og segist í dag sjá eftir því: „Ég var gift sko, ég sé alltaf eftir því að hafa verið gift á þessu tímabili,“ segir hún er bætir við:

„Reyndar sagði fyrrverandi við mig sko veistu ég hefði alveg fyrirgefið þér það ef þú hefðir sofið hjá Bruce Willis,“ segir hún og hlær. „Hann sagði bara og hvað, svafstu ekki hjá honum?“

Hér að neðan ná heyra þáttinn í heild sinni:


Tengdar fréttir

Haffi Haff var rændur á fyrsta stefnumóti

Gústi B og Páll Orri fengu Hafstein Þór Guðjónsson, betur þekktur sem Haffi Haff, til sín í þáttinn Veisluna og skelltu honum í Hitasætið. „Hvað er vandræðalegasta deit sem þú hefur farið á?“ spurði Gústi og þá stóð ekki á svörum hjá Haffa sem hefur lent í því að vera rændur á fyrsta stefnumóti. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×