Atvinnulíf

Andfúli vinnufélaginn og góð ráð

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Að starfa með fólki sem er andfúlt er algengara vandamál en fólk kannski heldur. Þekkt viðbrögð eru að snúa sér undan eða bjóða viðkomandi tyggjó en mælt er með því að taka frekar samtalið. Ímyndaðu þér til dæmis ef staðan væri öfug og þú værir einstaklingurinn sem væri andfúl(l)?
Að starfa með fólki sem er andfúlt er algengara vandamál en fólk kannski heldur. Þekkt viðbrögð eru að snúa sér undan eða bjóða viðkomandi tyggjó en mælt er með því að taka frekar samtalið. Ímyndaðu þér til dæmis ef staðan væri öfug og þú værir einstaklingurinn sem væri andfúl(l)? Vísir/Getty

Við erum andfúl á morgnana þegar að við vöknum en sem betur fer er það frá um leið og við höfum burstað tennurnar. Og þó.

Sumir glíma við andremmu í meira mæli en aðrir og í raun má segja að andfýluiðnaðurinn sé risastór iðnaður út af fyrir sig. Ekki síst tyggjógúmmíiðnaðurinn. 

Að vinna með fólki sem er andfúlt alla daga getur verið nokkuð leiðinleg staða að vera í. Í stað þess að vera afslöppuð í samskiptum, verðum við ósjálfrátt viðbúin því að mæta andremmunni og erum fyrir vikið ekki jafn fókusuð á sjálft samtalið. 

Það sem gerir málið enn snúnara er að oft virðist viðkomandi aðili ekki átta sig á vandamálinu.

Einn af hverjum fimm segja vinnufélaga andfúlann

Í könnun sem gerð var í Bretlandi árið 2018 viðurkenndi einn af hverjum fimm svarendum að þeir þyldu ekki að tala við ákveðna samstarfsmenn vegna þess að viðkomandi væri svo andfúll.

Þá viðurkenndu 63% svarenda að þeir þyrftu að líta undan í samtölum við ákveðinn aðila, vegna andremmu þeirra. Könnunin náði til tvö þúsund fullorðinna einstaklinga.

Svo algengt er andfýla í vinnunni að á vefsíðunni WorkSmart LiveSmart er því hreinlega haldið fram að á netinu sé hægt að finna um tvær milljónir vefsíða þar sem fjallað er um andfýlu samstarfsfélaga.

Hin sorglega staðreynd er hins vegar að oft er þetta vandamál viðvarandi í langan tíma því í fæstum tilfellum er fólk að benda vinnufélaga sínum á að hann/hún er mjög andfúl(l).

Enda getur maður bara boðið viðkomandi tyggjó svo og svo oft….

En hvað er þá til ráða?

Jú, eins og í svo mörgu öðru er mælt með því að taka frekar samtalið en hitt. 

Og þá beint við vinnufélagann, ekki að ræða andfýluna í baknagi með öðrum vinnufélögum. 

Andfýla er hins vegar mjög persónulegt mál og án efa erfitt að fá þær fréttir frá vinnufélaga að maður sé andfúll. Þess vegna skiptir svo miklu máli að velja orð sín vel og eins að taka samtalið í einrúmi, ekki innan um aðra og ekki í gríni.

Því ef viðkomandi vinnufélagi finnur að þú ert einlæg/ur í samtalinu og augljóslega aðeins að brydda upp á einhverju sem þú telur honum/henni til góðs, verður strax mildara að fá fréttirnar.

Gott er að ímynda sér hvernig maður myndi sjálfur vilja að vinnufélagi tæki samtalið við okkur, ef staðan væri öfug.

Þá er líka gott að luma kannski á einhverjum einföldum ráðum sem geta dregið úr andremmu eða líkum á henni. Eins og til dæmis það hversu mikilvægt það er að vanda sig við tannburstun þannig að matarleifar sitji ekki eftir í tönnunum og að drekka vel af vatni svo munnþurrkurinn myndi ekki andfýlu. Fleiri ráð gegn andfýlu má sjá á doktor.is.

Því það gæti hjálpað við svona fréttir að fá um leið upplýsingar um að það er hægt að leysa úr þessu eins og öllu öðru.

Þá gæti verið gott að renna yfir góðu ráðin sem stjórnendum eru gefin þegar taka þarf samtal við starfsmann sem lyktar illa. 


Tengdar fréttir

Tilfinningagreind eftirsótt hjá starfsmönnum framtíðarinnar

Nýjum kynslóðum á vinnumarkaði finnst eðlilegt að ræða tilfinningar og tilfinningagreind er eitt af því sem er alltaf að taka meira og meira pláss er meðal þess sem Guðrún Snorradóttir segir um hvers vegna tilfinningagreind skiptir miklu máli.

Að forðast baktalið í vinnunni

Við tökum öll þátt í kjaftagangi einstaka sinnum. Heyrum einhverja djúsí kjaftasögu og berum hana á milli. Eða veltum okkur upp úr henni. Þetta er mannlegt og í raun þarf enginn að skammast sín því rannsóknir hafa sýnt að smá kjaftagangur er flestum eðlislægur. Þó ekki nema stundum í góðra vina hópi. 





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×