Umhverfisvænar byggingarvörur í fyrirrúmi - Tilvaldar fyrir íslenska veðráttu Laugur 15. ágúst 2022 08:51 Sólpallur smíðaður úr efni frá Laugi. Laugur er nýtt fyrirtæki á byggingavörumarkaði sem sérhæfir sig í palla- og byggingarefni fyrir timburhús. Markmiðið er að bjóða upp á umhverfisvænar evrópskar gæðavörur sem henta íslenskum aðstæðum á hagstæðum kjörum.
Öll sala fer fram á netinu á síðunni www.laugur.is og eru vörur sendar beint til kaupanda. „Mikill tímasparnaður felst í því að þurfa ekki að bíða í verslun eftir að fá vöruna afhenta,“ segir Andri Sigmarsson Scheving, annar eigandi Laugs. Í boði eru heildarlausnir fyrir burðarvirki timburhúsa og gefin tilboð í stærri efnispakka eins og sólpalla, timbur- og sumarhús. Tækniskjöl og umhverfis- og gæðavottanir fyrir vörurnar eru aðgengilegar á heimasíðunni sem og ýmsir fróðleiksmolar um timburhús og byggingu þeirra. Andri Sigmarsson Scheving annar eigandi Laugs. Umhverfisvæn meðhöndlun timburs „Timbrið sem við seljum er frá Svíþjóð og Noregi og er af miklum gæðum. Royal-efnið hefur notið mikilla vinsælda en Royal-meðhöndlun á timbri er í raun tvöföld vörn. Fyrst er timbrið meðhöndlað með hefðbundinni þrýstifúavörn og svo með línolíu í undirþrýstingi. Þessi tvöfalda meðhöndlun þéttir viðinn þannig að hann springur síður, þenst minna við rakabreytingar og rotnar síður. Royal efnið er bæði hægt að fá ólitað og í brúnum lit. Þessi meðhöndlun á timbrinu gefur langa endingu sem þýðir að þú getur beðið í nokkur ár áður en bera þarf aftur á pallinn. Aðferðin er sérstaklega þróuð fyrir norræn veðurskilyrði. Royal-meðhöndlað timbur fær hæstu einkunn fyrir umhverfisvænleika í Sundahus-gagnagrunninum í Svíþjóð og hjá fleiri sambærilegum aðilum,“ segir Andri og leggur áherslu á að allir þeirra birgjar séu með einhvers konar umhverfisvottanir. Umhverfisvænar lausnir í loftræstingu Loftræsting með varmaendurvinnslu er mjög að ryðja sér til rúms í húsbyggingum enda mjög umhverfisvænt að endurnýta varma í heitu innilofti áður en það er ræst út. „Við bjóðum upp á loftræstisamstæður með varmaendurvinnslu hér hjá Laugi. Hérlendis erum við góðu vön varðandi magn og verð á orku en á undanförnum misserum er okkur að verða það ljóst að orkan er ekki ótæmandi auðlind og dæmi um að sveitarfélög séu í vandræðum með að útvega nægt heitt vatn til uppbyggingar í þéttbýli. Þá er skynsamlegt að nota loftræstisamstæður með varmaendurvinnslu því þær geta sparað notkun á heitu vatni um tugi prósenta. Eins er hægt að tengja samstæðurnar við varmadælur þar sem ekki er heitt vatn til upphitunar. Samstæðurnar okkar eru framleiddar í Finnlandi en þróaðar fyrir norska markaðinn. Þeir þekkja okkar séríslensku veðuraðstæður og eru meðvitaðir um áskoranir tengdar íslensku veðurfari.“ Byltingarkenndir viðarnaglar Umhverfissjónarmið eru að verða meira og meira ráðandi við húsbyggingar og hönnun þeirra og eru byltingarkenndir hlutir að gerast á markaði sem voru nánast óhugsandi fyrir nokkrum árum. „Til dæmis býður Laugur upp á viðarnagla sem austurrískur framleiðandi á byssusaumi setti nýlega á markað eftir margra ára vöruþróun. Viðarnöglunum er skotið úr naglabyssu og eru mun umhverfisvænni en naglar úr stáli. Hægt er að nota naglana í ýmsa innivinnu, svo sem viðarklæðningar, gufubað og sauna, viðarhúsgögn, í ýmis gólfefni og fleira. Viðarnaglar gefa oft fallegra og fágaðra útlit en hefðbundnir naglar. Í nánustu framtíð verður einnig hægt að nota viðarnagla í utanhússklæðningar,“ segir Andri. Hægt er að fá flestar gerðir af byssusaum og naglabyssur í netsölu fyrirtækisins. Umhverfissjónarmið, gæði og tímasparnaður Laugur.is opnaði fyrir rúmu ári síðan og þrátt fyrir að fyrirtækið sé ungt er vöruúrvalið nokkuð breytt. „Við leggjum áherslu á að bjóða góðar og umhverfisvænar vörur á hagstæðum kjörum og viðskiptavinir okkar hafa verið ánægðir með gæði varanna og tímasparnaðinn sem felst í því að fá vörurnar sendar á verkstað. Mikið úrval er af skrúfum og festingum á heimasíðu Laugs, þá er helst að nefna tréskrúfur, kambskrúfur, pallaskrúfur og steinskrúfur. Flestar skrúfur, múrboltar og festingar eru framleiddar í Evrópu og eru ákaflega sterkar,“ segir Andri og bætir við að lokum að hér sé gott tækifæri fyrir neytendur til þess að spara sér sporin og fá byggingarvörurnar sendar beint heim að dyrum.
Hús og heimili Byggingariðnaður Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Netflix, Stöð2+, Prime og Disney greiði til menningar Viðskipti innlent Segja markaðstorg blóðmjólka fyrirtæki Viðskipti innlent „Svo hefst kapphlaupið í það hver er fyrstur að ná sturtunni!“ Atvinnulíf Dagar Workplace eru taldir Viðskipti erlent Há laun og dýr bjór séu vandamál ÁTVR Viðskipti innlent Fyrirtæki hvött til að halda upp á daginn í dag og gera sér dagamun Atvinnulíf Rauf sátt vegna Max-málsins og gæti átt yfir höfði sér refsimál Viðskipti erlent Base parking gjaldþrota Viðskipti innlent VÍS gefið yfir 1.100 fjölskyldum barnabílspegla í sængurgjöf Samstarf Starfsfólk fær 150 milljónir í hlutabréfum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Opinn kynningarfundur vegna útboðs Íslandshótela Greiðsluáskorun VÍS gefið yfir 1.100 fjölskyldum barnabílspegla í sængurgjöf Hraðhleðslur spretta upp sem gorkúlur - tvær opna á Þórshöfn Nýjung í bílaviðskiptum á netinu – Bland og Frágangur í samstarf Polestar 4 kominn í Polestar Reykjavík – umhverfisvænasti bíll Polestar Einstakt tækifæri til að sjá einn merkasta sportbíl sögunna - Porsche 911 Dakar Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2024 - kosning Kolefnasporlausir bílar fyrir 2030? Polestar er með plan Neytendur kunna að meta Landlaxinn og Landbleikjuna Dýrmætustu og sjaldgæfustu Mustang bílar landsins á afmælissýningu Mustang Tölum um neytendamál! Mættu tímanlega í pallaráðgjöf hjá BYKO Bíllinn leggur meðan ég fæ mér drykk - smart #3 reynsluakstur GreenCoat er umhverfisvænasta litaða stálklæðningin sem völ er á Nú er hægt að elta góða veðrið um landið með kortavef Já.is Einblína á trausta ávöxtun til langs tíma Fjölbreytt vöruúrval og ein bestu verð hérlendis Toyota sýnir úrvals fyrirtækjabíla á Verk og vit Nýr Toyota Yaris Hybrid frumsýndur á laugardag Leið eins og stjórnanda geimskips Hver verður iðnaðarmaður ársins 2024? Sjá meira