Atvinnulíf

Sjálfhverfi vinnufélaginn tekur á taugarnar

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Það getur svo sannarlega tekið á taugarnar að vinna með sjálfhverfum einstaklingi. Því þetta er fólkið með viðhorfið Ég um mig frá mér til mín. En hvers vegna ekki að snúa vörn í sókn?
Það getur svo sannarlega tekið á taugarnar að vinna með sjálfhverfum einstaklingi. Því þetta er fólkið með viðhorfið Ég um mig frá mér til mín. En hvers vegna ekki að snúa vörn í sókn? Vísir/Getty

Það getur tekið á taugarnar að vinna náið með sjálfhverfu fólki. 

Ekki það að sjálfhverfa sé alltaf alslæm. Að vera svolítið sjálfhverfur getur meira að segja hjálpað okkur í starfsframa, þar sem egóið nýtist okkur sem ákveðinn drifkraftur.

Einkenni sjálfhverfra einstaklinga eru hins vegar þau að þeir fara yfir ákveðinn mörk í samskiptum við aðra.

Þetta er fólkið sem er í rauninni: Ég um mig frá mér til mín!

Algeng einkenni eru:

  • Að efast um aðra ef fólk gerir ekki eins og hann/hún vill og sýna það jafnvel
  • Stjórnsemi sem einkennist af því að ráðskast með aðra til að ná sínu fram
  • Að misnota annað fólk og þá í eigin þágu.

Það sem getur verið erfitt við að vinna með sjálfhverfum einstaklingi er að þú hefur í rauninni ekki sama val og ef þú værir til dæmis í parasambandi við það og getur þá valið um að halda því sambandi áfram eða slíta því.

Eða staða þar sem þú ákveður að taka ekki saman eða vingast við einstakling sem þér finnst vera áberandi sjálfhverf/ur.

Í vinnunni horfa málin öðruvísi við. Því þótt þér finnist sjálfhverfi vinnufélaginn svo sannarlega taka á taugarnar, getur þú lítið í málunum gert. 

Enda ekkert sem segir að viðkomandi sé ekki starfi sínu vel vaxinn og standi sig þar með sóma.

Og oft er þetta fólk mjög kurteist og almennt vel liðið af fólki sem þekkir það minna en þú.

Í umfjöllun um sjálfhverfa einstaklinga á vefsíðunni HealthEssentials er fólki fyrst og fremst bent á að fókusa á sjálfan sig. 

Því það að halda að þú getir gert eða sagt eitthvað sem fær viðkomandi til að breytast er ólíklegt til að bera árangur.

Þrjú atriði geta hjálpað mikið:

  1. Að taka hegðun viðkomandi ekki persónulega
  2. Að setja viðkomandi mörk og standa á þínu, þótt það sé gert á jákvæðan hátt
  3. Takmarkaðu samskipti og samveru með viðkomandi eins mikið og þú getur, því annars fer óþarfa orka í það hjá þér að láta viðkomandi fara í taugarnar á þér eða bíta í vörina því þig svo sannarlega langar oft til að segja eitthvað. Haltu samskiptunum í lágmarki og passaðu þig samt á því að halda þeim á jákvæðu nótunum.

Með öðrum orðum:

Fókusaðu á sjálfan þig og þína andlegu líðan og jákvæðu orku. 

Vertu ófeimin/n við að hugsa: Ég um mig frá mér til mín........en á jákvæðan hátt og með jákvæðu viðmóti.

Því þegar þú ert að vinna með sjálfhverfu fólki snýst stærsta verkefnið um að þú leyfir viðkomandi ekki að taka frá þér of mikið pláss í huganum.


Tengdar fréttir

Um yfirmanninn sem truflar mann stöðugt

Það getur verið erfitt að eiga samstarfsfélaga sem trufla mann mikið við vinnu. En þegar það er yfirmaðurinn sem er stanslaust að trufla, geta málin virst nokkuð flóknari að takast á við. Því hvernig er hægt að biðja yfirmanninn um að hætta, eða draga úr því, að trufla svona mikið?

Óheiðarlega fólkið í vinnunni og þrjú góð ráð

Að vita hverjir eru traustsins verðir og hverjir ekki, er ekkert alltaf svo sýnilegt á vinnustöðum. Sérstaklega ef að við þekkjum lítið til, erum til dæmis á nýjum vinnustað eða í aukavinnu með námi eða annarri vinnu.

Þegar snobbaðir vinnufélagar fara í taugarnar á þér

Það er með ólíkindum hvernig hugurinn getur fengið okkur til að eyða orku að óþörfu. Mjög oft þá að láta eitthvað í fari annarra fara óskaplega í taugarnar á okkur. Til dæmis þeirra snobb.

Fimm góð ráð til að ná markmiðunum okkar árið 2022

Við þekkjum þetta flest; um áramót lítum við yfir farinn veg, fyllumst bjartsýni og setjum okkur markmið fyrir gott og spennandi nýtt ár. Hversu margir ætli það séu til dæmis, sem eru að taka fyrsta daginn sinn í megrun í dag?





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×