Viðskipti erlent

Hætta neyslu­dags­merkingu á græn­meti og á­vöxtum

Ellen Geirsdóttir Håkansson skrifar
Marks og Spencer reyna að minnka matarsóun.
Marks og Spencer reyna að minnka matarsóun. EPA-EFE/IAN LANGSDON

Breska verslunarkeðjan Marks og Spencer ætla sér að hætta að nota merkingar um síðasta neysludag á miklum fjölda grænmetis og ávaxta í verslunum.

Þetta er gert til þess að vinna gegn matarsóun en samkvæmt samtökunum WRAP henda Bretar 4,5 tonnum af mat sem enn er hægt að nýta, á ári. Samtökin sérhæfa sig í að aðstoða fyrirtæki að koma af stað hringrásarhagkerfi og gera notkun gæða skilvirkari.

Ný stefna Marks og Spencer mun ná yfir meira en þrjú hundruð tegundir af grænmeti og ávöxtum en vörunum verða gefnir kóðar sem starfsfólk getur notað til þess að tryggja gæði vörunnar. Þetta kemur fram í umfjöllun BBC.

Marks og Spencer eru þó ekki fyrsta verslunarkeðjan til þess að beita þessari aðferð til þess að minnka sóun og kostnað við hana. Morrisons, Tesco og Co-op hafa gert slíkt hið sama við mismunandi vöruflokka.

Morrisons hefur til dæmis hleypt í gang svokölluðu þef-prófi á mjólkurvörur í búðum sínum en samkvæmt WRAP er tæplega 862 milljónum lítra af mjólk sóað á hverju ári í Bretlandi. Með þessari breytingu Morrisons ákveði viðskiptavinirnir sjálfir hvort vörurnar séu í lagi fremur en dagsetningin á vörunni.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×