Loksins 100 sm lax hjá Stefáni Karl Lúðvíksson skrifar 25. júní 2022 11:01 Stefán með 100 sm laxinn úr Kristnapolli, eiginkona Stefáns Harpa fagnar hér með honum Þeir eru ekki margir veiðimennirnir hér á landi sem geta líklega fullyrt að hafa landað 1000-2000 löxum en Stefán Sigurðsson er klárlega í þeim hóp.
Þar sem Veiðivísir þekkir ágætlega til Stefáns sem veiðimanns og annars forsvarsmanns Iceland Outfitters var okkur nokkuð brugðið en á sama tíma fagnað vel og rækilega við að heyra af því að Stefán hefði í gær landað sínum fyrsta 100 sm laxi. Þessi glæsilegi lax kom á land við opnun Laxár í Dölum og veiddist í veiðistaðnum Kristnapolli sem er þekktur stórlaxastaður. Eins og sjá má á myndinni er þetta glæsilegur nýgengin lax og óskar Veiðivísir Stefáni innilega til lukku með þennan áfanga og rjúfa 100 sm múrinn. Stefán og Harpa hafa á stuttum tíma gert Iceland Outfitters að einum öflugasta söluaðila veiðileyfa á landinu en svæðin sem þau eru með telja meðal annars Urriðafoss og Ytri Rangá bara svo eitthvað sé nefnt. Vel gert Stefán, okkar bestu kveðjur og til lukku með þennan glæsilega lax!
Stangveiði Dalabyggð Mest lesið Lifnar yfir veiði í Varmá Veiði Mokveiði í Urriðafossi Veiði Frábær veiði í Stóru Laxá Veiði Fyrsti laxinn úr Bíldsfelli var maríulax Veiði Allt uppselt hjá Hreggnasa nema seinni part sumars í Korpu Veiði Veiðin í Elliðavatni hefst 19.apríl Veiði Kvennadeild SVFR hittist annað kvöld Veiði Stórlaxaveislan heldur áfram í Laxá Veiði Elliðavatn opnar á fimmtudag Veiði Veiðitölur LV: Aldrei minni veiði síðan talningar hófust Veiði