Innlent

Sigur­jón ráðinn bæjar­stjóri Sveitar­fé­lagsins Horna­fjarðar

Árni Sæberg skrifar
Sigurjón Andrésson er nýr bæjarstjóri Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Sigurjón Andrésson er nýr bæjarstjóri Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Aðsend

Sigurjón Andrésson, ráðgjafi hjá Góðum samskiptum og verkefnastjóri hjá Sveitarfélaginu Ölfusi, hefur verið ráðinn bæjarstjóri Sveitarfélagsins Hornafjarðar.

Bæjarráð, í umboði bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Hornafjarðar, samþykkti í dag ráðningu Sigurjóns Andréssonar í stöðu bæjarstórja og hefur hann störf 1. júlí næstkomandi, að því er segir í tilkynningu á vef sveitarfélagsins.

Sigurjón er 52 ára og búsettur í Hvítholti í Flóahreppi. Hann hefur undanfarið starfað sem ráðgjafi hjá Góðum samskiptum í Reykjavík ásamt því að vera verkefnastjóri flóttamanna hjá Sveitarfélaginu Ölfusi. Sigurjón situr í sveitarstjórn Flóahrepps en mun segja sig frá þeim störfum í kjölfar ráðningarinnar.

Sigurjón hefur einnig reynslu af markaðsmálum en hann starfaði lengi vel sem stjórnandi hjá tryggingafélaginu Sjóvá, lengst af við kynningar- og markaðsmál ásamt öryggis- og forvarnamálum. Þá var hann framkvæmdastjóri markaðsmála hjá BL bílaumboði.

Hann er með diploma í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands, alþjóðlega gráðu í verkefnastjórnun frá Bandaríkjunum, meistaragráðu í viðskiptafræði (MBA) frá Háskólanum í Reykjavík og iðnmenntun í grunninn.

Sigurjón býr sem stendur ásamt fjölskyldu sinni í Hvítholti í Flóahreppi, rétt austan við Selfoss. Hann er giftur Margréti Söru Guðjónsdóttur, enskukennara við Menntaskólann í Reykjavík, og eiga þau tvær dætur, 22 og 24 ára.

„Það er mikill metnaður í því fólki sem ég hef þegar hitt og veit að það eru mikil tækifæri fram undan hjá sveitarfélaginu. Ég hlakka til að flytja austur og kynnast samfélaginu betur og mun leggja mig allan fram í mínum störfum fyrir sveitarfélagið,“ er haft eftir Sigurjóni í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×