Matur

Hel­vítis kokkurinn: Heimalagaðar humar tacos með habanero-pico de gallo

Elísabet Hanna skrifar
Ívar elskar heimalagað humar taco.
Ívar elskar heimalagað humar taco. Vísir

Ívar Örn Hansen er Helvítis kokkurinn sem ætlar að kenna ykkur að elda bragðgóðan mat á mannamáli á Vísi og á Stöð 2+ í sumar. Matreiðsluþátturinn er fyrir þá sem vilja ekkert kjaftæði, bara elda bragðgóðan mat og munu þeir koma inn vikulega.

Uppskriftina úr þættinum má sjá hér að neðan.

Klippa: Helvítis kokkurinn - Heimalagaðar humar tacos með habanero-pico de gallo

Humar

  • 1 kg skelflettur humar
  • 2 msk olía
  • 2 msk smjör
  • salt og pipar
  • 2 hvítlauksrif

Pico de gallo

  • 2 buff tómatar
  • 1/2 rauðlaukur
  • 1 stk habanero
  • 1 msk olía
  • salt og pipar
  • 1/2 búnt kóríander
  • safi úr einu súraldin (lime)

Lárperumauk

  • 3 lárperur
  • ¼ rauð paprika
  • ¼ gul paprika
  • 1/2 rauð paprika
  • lime
  • salt

Tacos

  • 300 gr hveiti
  • 1 tsk salt
  • 2 msk olía
  • 1/2 tsk lyftiduft
  • 120 ml sódavatn
  • Meðlæti:
  • Sýrður rjómi
  • Íssalat
  • vorlaukur
  • kóríander
Njótið vel.Vísir

Aðferð:

  1. Skerið tómata í teninga, saxið rauðlauk, kóríander og habanero. Blandið saman við olíu og lime safa og kryddið með salti og pipar.

  2. Blandið taco deig hægt í hrærivél þangað til allt er blandað vel saman. Kælið deigið í 30 mínútur. Takið deigið út og skerið í 8 hluta og fletjið út hluntana með kökukefli. Bakið hverja köku á þurri pönnu í 1 mín á hvorri hlið þangað til þær eru gullbrúnar. Setjið taco í viskastykki og leggið til hliðar til að halda þeim volgum.

  3. Afhýðið lárperur, skerið í sneiðar og blandið saman við saxaða papriku og lime safa.

  4. Steikið humar á háum hita í 3-4 mín á pönnu með olíu, kryddið með salti og pipar. Rétt áður en humar er klár skal setja smjörið og hvítlaukinn á pönnuna og slökkva undir.

  5. Pennslið taco með sýrðum rjóma, setjið íssalat í botninn og fyllið með humar, pico de gallo og lárperumauki. Saxið ferskt kóriander ofan á og vorlauk.

  6. Setjið saman og njótið.

Helvítis kokkurinn eru matreiðsluþættir sem koma út á Vísi og Stöð 2+ í sumar. Hægt er að fylgjast nánar með á Instagram.


Tengdar fréttir

Helvítis kokkurinn: Kjúklingasamloka með Bourbon-Beikon sultu

Ívar Örn Hansen er Helvítis kokkurinn sem ætlar að kenna ykkur að elda bragðgóðan mat á mannamáli á Vísi og á Stöð 2+ í sumar. Matreiðsluþátturinn er fyrir þá sem vilja ekkert kjaftæði, bara elda bragðgóðan mat og munu þeir koma inn vikulega.

Ívar Örn Hansen er Helvítis kokkurinn

Ívar Örn Hansen er að fara af stað með matreiðsluþættina Helvítis kokkurinn hér á Vísi og á Stöð 2+ þar sem hann eldar bragðgóðan mat á mannamáli og sleppir öllu kjaftæðinu. Sjálfur er hann mikill matarunnandi sem elskar að gleðja aðra með góðum mat.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×