Allir leikir Íslands í Þjóðadeildinni í opinni dagskrá á Viaplay Viaplay 1. júní 2022 08:51 Kári Árnason ríkjandi Íslands- og bikarmeistari og fyrrum landsliðsmaður í fótbolta er einn þeirra sérfræðinga sem fjallar um knattspyrnu á Viaplay Viaplay hefur tryggt sér sýningarréttinn að Þjóðadeild UEFA á Íslandi til 2028 og mun sýna alla leiki íslenska karlalandsliðsins í opinni dagskrá. Fyrsti leikur Íslands er á fimmtudaginn, 2. júní, gegn Ísrael og verður hann sýndur í beinni, opinni útsendingu á Viaplay. Áskrifendur Viaplay geta síðan fylgst með öllum öðrum leikjum í Þjóðadeildinni í beinni. „
Með því að tryggja okkur sýningarréttinn á leikjum í Þjóðadeildinni og öllum leikjum íslenska karlalandsliðsins til 2028 stígum við mikilvægt skref sem leiðandi íþróttastreymisveita,“ segir Hjörvar Hafliðason, íþróttastjóri Viaplay á Íslandi. Ísland mætir Ísrael í Þjóðadeildinni 2. júní, Albaníu 6. júní, Ísrael 14. júní og Albaníu 27. september. Kynslóðaskipti standa yfir í íslenska landsliðinu. Margir ungir og spennandi leikmenn hafa verið að láta að sér kveða upp á síðkastið og munu fá að láta ljós sitt skína með landsliðinu í Þjóðadeildinni. „Við höfum tekið inn marga nýja, unga og spennandi leikmenn, erum með lið sem við erum að þróa og byggja upp. Þessir leikir sem eru framundan í Þjóðadeildinni munu nýtast okkur vel á þeirri vegferð. Þjóðadeildin er alvöru mót sem gefur okkur kost á að þróa liðið í keppnisleikjum og það eru virkilega góðar fréttir að knattspyrnuáhugafólk geti séð leikina í opinni dagskrá á Viaplay,“ segir Arnar Þór Viðarsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins, sem tilkynnti hópinn fyrir leikinn gegn Ísrael fyrr í dag. Vilhjálmur Freyr Hallsson og Andri Geir Gunnarsson, þáttastjórnendur hlaðvarpsins Steve dagskrá fjalla um knattspyrnu á Viaplay Þjóðadeildin er keppni á vegum Knattspyrnusambands Evrópu sem fer fram á haustin á tveggja ára fresti, áður en undankeppnir Evrópu- og Heimsmeistaramóta hefjast. Ísland er í riðli með Ísrael og Albaníu, hvort tveggja lið sem teljast álíka sterk og Ísland sé litið til styrkleikalista FIFA. Ísland skipar 63. sæti listans, Albanía 66. sæti og Ísraelar 76. sætið. Ísland á því góða möguleika á því að ná góðum úrslitum gegn sterkum andstæðingum. Rússland átti að vera í þessum sama riðli en var meinuð þátttaka í kjölfar innrásarinnar í Úkraínu. Í stað leiks sem áformaður var við Rússland mun Ísland mæta San Marínó í vináttulandsleik 9. júní. Áskrifendur Viaplay geta fylgst með leikjum Íslands og öllum öðrum leikjum Þjóðadeildarinnar í beinni útsendingu. Sæktu Viaplay-appið í sjónvarpið, símann og Apple TV og njóttu þess að horfa á heimsklassaíþróttir, úrval af Viaplay Originals og allt hitt gæðaefnið sem Viaplay hefur upp á að bjóða.
Fótbolti Mest lesið Gleymdi að skrá sig úr stæðinu og því rukkuð um 48 þúsund Neytendur Ójafnrétti að konur þurfi að ganga á veikindarétt vegna barneigna Viðskipti innlent Hótar Kanadamönnum hærri tollgjöldum Viðskipti erlent Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Viðskipti innlent Um forvitna yfirmanninn Atvinnulíf Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Viðskipti innlent Fyrirtæki í vopnaframleiðslu eru á rauðum lista Viðskipti innlent Kaffi heldur áfram að hækka í verði Neytendur Linda tekur við sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs Alvotech Atvinnulíf Fleiri fréttir „Ávísun á ánægjuleg viðskipti“ F1: The Movie frumsýnd í Egilshöll – sjáðu myndirnar Djúsí maísstönglar frá BBQ kónginum BYKO PLÚS er nýr fríðindaklúbbur fyrir einstaklinga Steinkast og rispur? Ekki lengur vandamál með lakkvarnarfilmu frá Bónsvítunni Tímamótasamningar í íslensku sjónvarpi Topp fimm tólin í verkfærakistuna Yfir 20.000 viðskiptavinir og tíföldun gengis á fimm árum Topplúgan kom á óvart á annars praktískum ferðatrukk Sjá meira