Bílar

Volkswagen: Rafbílar eru uppseldir í Evrópu og Bandaríkjunum út árið

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Volkswagen ID.4 1ST Max
Volkswagen ID.4 1ST Max

Framkvæmdastjóri Volkswagen samsteypunnar, Herbert Diess, segir að kínversk eftirspurn sé á uppleið. Hann sagði rafbíla uppselda út árið í Evrópu og Bandaríkjunum.

Vestur-Evrópumarkaður sem Volkswagen skilgreinir er einn og sér ábyrgur fyrir 300.000 pöntunum. Þetta þýðir að nýjar pantanir sem koma inn núna verða afgreiddar á næsta ári. Þetta eru ekki góðar fréttir fyrir viðskiptavini sem vilja kaupa nýjan bíl. Sérstaklega með aukinni verðbólgu, gætu nýir bílar orðið talsvert dýrari þegar þeir koma svo á markað.

Áætlanir Volkswagen samsteypunnar er að selja um það bil 700.000 hreina rafbíla í ár, þar af 140.000 í Kína. Til þess þarf Volkswagen að ná að framleiða að meðaltali um 200.000 bíla á ársfjórðungi það sem eftir er árs. Á fyrsta ársfjórðungi seldi Volskwagen samsteypan 99.100 bíla. Besti ársfjórðungur Volkswagen samsteypunnar þegar kemur að rafbílum er fjórði ársfjórðungur 2021 þegar 159.800 bílar seldust.

Myndband frá YOUCAR um ID.5:

Það mætti segja að þetta séu skýr merki um að orkuskiptin séu hafin fyrir alvöru, stórir framleiðendur eru almennt að vandræðast með að auka framleiðslu í takt við eftirspurn frá kaupendum. Ford og GM hafa nýlega bæst í hóp framleiðanda sem anna ekki eftirspurn.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×