Innlent

Fluttur á slysa­deild eftir margra bíla á­rekstur á Miklu­braut

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Einn var fluttur á slysadeild.
Einn var fluttur á slysadeild. Vísir/Vilhelm

Einn var fluttur á slysadeild eftir þriggja bíla árekstur á Miklubraut við Rauðagerði á þriðja tímanum í dag. Varðstjóri hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins hafði ekki upplýsingar um líðan þess sem slasaðist.

Óljóst er hversu margir bílar lentu í árekstrinum. Slökkvilið fékk tilkynningu um þriggja bíla árekstur en í frétt Mbl segir að bílarnir hafi verið sjö og haft eftir Guðbrandi Sigurðssyni aðstoðaryfirlögregluþjóni að óvenjulegt sé að svo margar bifreiðar lendi aftan á hver annarri.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×