Íslenski boltinn

Besta-spáin 2022: Níunda líf Óla Jó

Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir FH 4. sæti Bestu deildar karla í sumar.

Ingvi Þór Sæmundsson, Runólfur Trausti Þórhallsson, Óskar Ófeigur Jónsson og Sindri Sverrisson skrifa
Þrátt fyrir að hafa þjálfað í meistaraflokki síðan 1981 gefur Ólafur Jóhannesson ekkert eftir. vísir/vilhelm

Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir FH 4. sæti Bestu deildar karla í sumar.

Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir að venju fyrir um gengi liðanna í Bestu deild karla með árlegri spá sinni fyrir mótið. Keppni í deildinni hefst með leik Víkings og FH mánudaginn 18. apríl. Víkingar eiga titil að verja en þeir urðu Íslandsmeistarar í sjötta sinn í sögu félagsins í fyrra.

Íþróttadeild spáir FH 4. sæti Bestu deildarinnar í sumar og að liðið hífi sig upp um tvö sæti frá síðasta tímabili.

Gamli refurinn Ólafur Jóhannesson sneri aftur í Kaplakrika og tók í fjórða sinn við FH um mitt síðasta tímabil eftir að Logi Ólafsson var látinn taka pokann sinn. FH-ingar gerðu ágætlega eftir að Ólafur tók við og hann var ráðinn til frambúðar. Ólafur fékk sinn hundtrygga aðstoðarmann Sigurbjörn Hreiðarsson með sér en þeir unnu áður saman hjá Haukum og Val.

Ólafur sótti líka annan gamlan félaga úr Val, Kristin Frey Sigurðsson, til FH. Að öðrum ólöstuðum hefur hann verið besti leikmaður undirbúningstímabilsins. FH spilaði vel þar og vann meðal annars Lengjubikarinn.

Talsverðar væntingar eru gerðar til FH-liðsins og ekki að ástæðulausu. Ólafur er ólseigur og sér væntanlega spennandi tækifæri á að smíða sitt síðasta frábæra lið áður en hann hættir endanlega í þjálfun.

Svona var síðasta sumar í tölum

  • Væntingarstuðullinn: Enduðu þremur sætum neðar en þeim var spáð (3. sæti) í árlegri spá fyrirliða, þjálfara og forráðamanna fyrir mót.
  • -
  • Sumarið 2021 eftir mánuðum:
  • Apríl og maí: 56 prósent stiga í húsi (10 af 18)
  • Júní: 17 prósent stiga í húsi (2 af 12)
  • Júlí: 67 prósent stiga í húsi (6 af 9)
  • Ágúst: 44 prósent stiga í húsi (8 af 18)
  • September: 78 prósent stiga í húsi (7 af 9)
  • -
  • Besti dagur: 17. maí
  • 3-1 sigur á HK í Kórnum þýddi að FH liðið var á toppnum með 10 stig efir fjórar umferðir.
  • Versti dagur: 20. júní
  • 4-0 tap á móti Blikum í síðasta leiknum undir stjórn Loga Ólafssonar sem þýddi 1 stig í húsi út úr síðustu fimm leikjum.
  • -
  • Tölfræðin
  • Árangur: 6. sæti (33 stig)
  • Sóknarleikur: 2. sæti (39 mörk skoruð)
  • Varnarleikur: 5. sæti (26 mörk fengin á sig)
  • Árangur á heimavelli: 6. sæti (16 stig)
  • Árangur á útivelli: 4. sæti (17 stig)
  • Flestir sigurleikir í röð: 2 (Fjórum sinnum)
  • Flestir tapleikir í röð: 3 (22. maí til 12. júní)
  • Markahæsti leikmaður: Steven Lennon 9
  • Flestar stoðsendingar: Jónatan Ingi Jónsson 7
  • Þáttur í flestum mörkum: Jónatan Ingi Jónsson 15
  • Flest gul spjöld: Guðmann Þórisson 7

Liðið og lykilmenn

Líklegt byrjunarlið FH í sumar.vísir/hjalti

Guðmundur Kristjánsson, miðvörður (f. 1989): Þessi fyrrum varnartengiliður eflist með hverjum leiknum í miðverði og er í dag með betri miðvörðum landsins. Er án efa einn allra sterkasti leikmaður Bestu-deildarinnar, ef ekki sá sterkasti, en býr samt sem áður yfir mikilli hlaupagetu og yfirferð. Verður forvitnilegt að sjá samstarf hans og Finns Orra í sumar en báðir eru miðjumenn að upplagi.

Kristinn Freyr Sigurðsson, sóknartengiliður (f. 1991): Ráku margir upp stór augu þegar Valur ákvað að leyfa þessum frábæra leikmanni að fara frítt. Hefur verið öflugur síðan hann færði sig um set og ætti ef allt er eðlilegt að vera einn besti leikmaður Bestu-deildarinnar í sumar.

Matthías Vilhjálmsson, sóknarmaður (f. 1987): Leikur í dag sem framherji en er einkar fjölhæfur og getur leikið bæði í vörn sem og á miðju. Er fyrirliði FH og mikill leiðtogi, bæði innan vallar sem utan. Vill eflaust gera betur en á síðustu leiktíð þegar FH endaði í 6. sæti og hann skoraði sjö mörk í 22 leikjum.

Guðmundur Kristjánsson, Kristinn Freyr Sigurðsson og Matthías Vilhjálmsson skipta sköpum hjá FH.vísir/hulda margrét

Fylgstu með: Logi Hrafn Róbertsson, varnar- og miðjumaður (f. 2004)

Þrátt fyrir ungan aldur virðist Logi Hrafn eiga fast sæti í byrjunarliði Hafnfirðinga í sumar. Er með gríðarlegan leikskilning og „spilar eins og hann sé 35 ára“ samkvæmt heimildum Vísis. Spilaði sína fyrstu leiki fyrir U-21 árs landsliðið nýverið og á svo sannarlega framtíðina fyrir sér. Verður í stöðu varnartengiliðs í sumar en lék þó aðallega í stöðu miðvarðar hér áður fyrr.

Markaðurinn

Breytingarnar á leikmannahópi FH.vísir/hjalti

FH-ingar hafa misst fjóra varnarmann því Hjörtur Logi Valgarðsson og Pétur Viðarsson eru hættir, Guðmann Þórisson farinn í Lengjudeildina og Hörður Ingi Gunnarsson til Noregs. Þá er missir af kantmanninum Jónatan Inga sem kvaddi mánuði fyrir mót og elti Hörð til Sogndal.

FH-ingar hafa hins vegar styrkt sig vel. Ástbjörn Þórðarson og Haraldur Einar Ásgrímsson eru ungir en góðir og sókndjarfir bakverðir sem ættu að geta notið sín vel undir stjórn Óla Jó.

Finnur Orri Margeirsson færir liðinu reynslu og getur spilað sem miðvörður eða á miðju, og Máni Austmann Hilmarsson er skeinuhættur kantmaður sem missti reyndar af lokum síðasta tímabils vegna bílslyss en hefur verið með á fullu í vetur.

  • Hversu langt er síðan að FH....
  • ... varð Íslandsmeistari: 6 ár (2016)
  • ... varð bikarmeistari: 12 ár (2010)
  • ... endaði á topp þrjú: 2 ár (2020)
  • ... féll úr deildinni: 27 ár (1995)
  • ... átti markakóng deildarinnar: 2 ár (Steven Lennon 2020)
  • ... átti besta leikmann deildarinnar: 2 ár (Steven Lennon 2020)
  • ... átti efnilegasta leikmann deildarinnar: 15 ár (Matthías Vilhjálmsson 2007)

Að lokum …

FH-ingar hafa ekki verið nálægt því að berjast um Íslandsmeistaratitilinn síðan 2016 og það er erfitt að sjá það gerast í sumar. En Ólafur gæti losað FH úr þeirri tilvistarkreppu sem hefur plagað félagið undanfarin ár, eða síðan Heimir Guðjónsson hætti.

Leikmannahópur FH er gríðarlega sterkur og reyndur. Aldurssamsetningin gæti samt verið betri enda eru margir leikmenn í hópnum sem hafa þegar náð sínum mestu hæðum á ferlinum og fáir á toppaldri. Og þá sárvantar miðverði í leikmannahóp FH og hraða fremst á vellinum.


Tengdar fréttir






×