Portúgal tryggði sér farseðilinn á HM

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Bruno Fernandes skoraði bæði mörk Portúgals í kvöld.
Bruno Fernandes skoraði bæði mörk Portúgals í kvöld. Gualter Fatia/Getty Images

Bruno Fernandes sá um markaskorun Portúgala er liðið vann 2-0 sigur gegn Norður-Makedóníu og tryggði liðinu um leið farseðilinn á HM í Katar.

Norður-Makedónía sló Ítalíu úr leik í undanúrslitum umspilsins síðastliðinn fimmtudag, en  nú er Öskubuskuævintýrið á enda.

Bruno Fernandes kom Portúgölum yfir á 32. mínútu eftir stoðsendingu frá liðsfélaga sínum hjá Manchester United, Cristiano Ronaldo, og staðan var 1-0 þegar flautað var til hálfleiks.

Hann var svo aftur á ferðinni þegar um 25 mínútur voru til leiksloka eftir stoðsendingu frá Diogo Jota og þar við sat.

Portúgal vann því 2-0 sigur gegn Norður-Makedóníu og er á leið á HM í Katar, en Norður-Makedónía situr eftir með sárt ennið.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira