Fótbolti

Bale skaut Walesverjum í úrslit umspilsins

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Gareth Bale skoraði bæði mörk Walesverja í kvöld.
Gareth Bale skoraði bæði mörk Walesverja í kvöld. Athena Pictures/Getty Images

Gareth Bale skoraði bæði mörk Wales er liðið vann 2-1 sigur gegn Austurríki og tryggði sér um leið hreinan úrslitaleik um sæti á HM í Katar.

Bale kom Wales yfir eftir 25 mínútna leik með glæsilegu marki beint úraukaspyrnu og staðan var því 1-0 þegar flautað var til hálfleiks. Hann bætti svo öðru marki liðsins við snemma í síðari hálfleik eftir stoðsendingu frá sínum gamla liðsfélaga hjá Tottenham, Ben Davies.

Ben Davies var svo aftur á ferðinni eftir rúmlega klukkutíma leik þegar skot Marcels Sabitzer fór af honum og þaðan í mark Walesverja. Markið skráist sem sjálfsmark og staðan orðin 2-1.

Þetta reyndist seinasta mark leiksins og niðurstaðan varð því 2-1 sigur Wales. Liðið er komið í hreinan úrslitaleik um sæti á HM, en liðið mætir annað hvort Úkraínu eða Skotlandi.

Úkraína og Skotland áttu að mætast í kvöld, en leiknum var frestað eftir innrás Rússa í Úkraínu. Ekki hefur verið ákveðið hvenær sá leikur mun fara fram, en það verður að öllum líkindum í landsleikjaglugganum í júní.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×