Skaut tveimur liðum á HM í blálokin Sindri Sverrisson skrifar 24. mars 2022 17:00 Kaoru Mitoma fagnar öðru marka sinna gegn Áströlum í Sydney í dag og þar með sæti á HM í Katar. Getty/Mark Metcalfe Fjórar Asíuþjóðir hafa nú tryggt sér sæti á HM karla í fótbolta sem fram fer í Katar í lok árs. Ástralía neyðist hins vegar til að fara í umspil.
Þetta varð ljóst í dag þegar Japan vann dramatískan 2-0 sigur gegn Ástralíu en þetta var fyrsti útisigur Japana gegn Áströlum á þessari öld. Liverpool-maðurinn Takumi Minamino hafði verið nálægt því að koma Japan yfir seint í leiknum en það var maðurinn sem leysti hann af hólmi, Kaoru Mitoma, sem reyndist hetja Japana. Mitoma kom inn á þegar sex mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma og skoraði fyrra mark sitt á 90. mínútu við gríðarlegan fögnuð. Seinna markið skoraði hann svo seint í uppbótartímanum. Sigurinn tryggði ekki bara Japan sæti á HM heldur einnig Sádí-Arabíu sem þó hefði hvort sem er klárað dæmið síðar í dag, með sigri gegn Kína. Ástralir, sem urðu fyrir barðinu á kórónuveirusmitum í aðdraganda leiksins, enda hins vegar í þriðja sæti riðilsins, þurfa að fara í umspil til að komast á HM og eiga því á hættu að missa af mótinu eftir að hafa verið með í síðustu fjögur skipti í röð. Áður höfðu Suður-Kórea og Íran tryggt sér sæti á HM og líklegast er að Sameinuðu arabísku furstadæmin endi í 3. sæti og mæti Ástralíu í fyrri hluta umspilsins. Í seinni hluta umspilsins er spilað við lið úr Suður-Ameríku.
HM 2022 í Katar Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Liverpool - Arsenal | Englandsmeistararnir mæta í Bítlaborgina Sport Fleiri fréttir Hansen með gylliboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Njarðvík sagði upp samningi við Smit Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Freyr að eignast markakóng eftir enn einn sigurinn Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Góður sigur stráka Sigga Ragga í lokaleiknum Gylfi tekur við Víkingi Sjá meira