Atvinnulíf

„Gott að muna alltaf eftir því að brosa og segja takk“

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Nýr 40/40 listi var birtur í gær en á þeim lista eru birt nöfn fjörtíu einstaklinga sem teljast efnilegir framtíðarleiðtogar fyrir íslenskt atvinnulíf. 40/40 listinn hefur verið birtur þrisvar en hann er unninn af Góðum samskiptum sem Andrés Jónsson er í forsvari fyrir. Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri Marel á Íslandi og Gunnar Egill Sigurðsson forstjóri Samkaupa hafa bæði verið á eldri 40/40 listum. Í dag gefa þau sér yngri stjórnendum góð ráð.
Nýr 40/40 listi var birtur í gær en á þeim lista eru birt nöfn fjörtíu einstaklinga sem teljast efnilegir framtíðarleiðtogar fyrir íslenskt atvinnulíf. 40/40 listinn hefur verið birtur þrisvar en hann er unninn af Góðum samskiptum sem Andrés Jónsson er í forsvari fyrir. Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri Marel á Íslandi og Gunnar Egill Sigurðsson forstjóri Samkaupa hafa bæði verið á eldri 40/40 listum. Í dag gefa þau sér yngri stjórnendum góð ráð.

Þau er vægast sagt frábær ráðin sem tveir forkólfar í atvinnulífinu gefa sér yngri stjórnendum í Atvinnulífinu í dag. En það eru þau Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Marel á Íslandi og Gunnar Egill Sigurðsson, forstjóri Samkaupa.

Guðbjörg og Gunnar eiga það sameiginlegt að hafa verið á 40/40 listanum yfir efnilega stjórnendur yngri en fertugt sem Góð samskipti hafa nú birt á tveggja ára fresti í sex ár.

Í Atvinnulífinu í gær og í dag er fjallað um 40/40 lista ársins 2022 en leiða má líkum að því að margir þeirra sem tilgreindir eru á þessum listum, séu til framtíðar öflugir og upprennandi stjórnendur.

Góðu ráðin til yngri stjórnenda

Í gær var birtur nýr 40/40 listi þar sem fram koma nöfn fjörtíu efnilegra stjórnenda sem náð hafa langt í starfsframa, án þess að vera komin í efsta stjórnendalag. Hópurinn telst afreksfólk í atvinnulífinu, rísandi stjörnur sem líklegar eru til að teljast til framtíðarleiðtoga.

Atvinnulífið bað þau Guðbjörgu og Gunnar um að gefa sér yngri stjórnendum góð ráð og nefna hvað þeim fyndist hafa gagnast þeim sérstaklega vel á sinni vegferð.

Spurningin sem Guðbjörg og Gunnar voru beðin um að svara er svohljóðandi:

Hvaða ráð eða atriði myndir þú nefna við þér yngri stjórnendur, sem dæmi um eitthvað sem hefur nýst þér vel í starfi í gegnum tíðina?

Sérstaka athygli vekur hversu einlæg Guðbjörg og Gunnar eru í svörum sínum, en í viðtali við Andrés Jónsson hjá Góðum samskiptum í gær, segir Andrés einmitt að mjúkir hæfileikar séu greinilega eiginleikar sem sífellt fleiri horfa til hjá eftirsóttum leiðtogum. 

Þá segir Andrés einnig um framtíðarleiðtoga:

„Já mér finnst ekki ólíklegt að atvinnulífið og samfélagið í heild sinni sé að falast meira eftir lágstemmdari leiðtogum en kannski eitt sinn var. Sterkur leiðtogi í dag mælir ekki stöðutáknið sitt með stórri skrifstofu, stórum bíl eða fyrirtækjakorti. Í dag þarf ekkert af þessu til að vera góður leiðtogi. Það eru einfaldlega aðrir mælikvarðar sem fólk og fyrirtæki eru farin að horfa meira til.“

Guðbjörg Heiða segir jákvætt hugarfar skipta miklu máli og það að hafa alltaf áhuga á því sem við erum að gera. Það gerir allt svo miklu skemmtilegra. Guðbjörgu finnst mjög gott að vinna í teymum og minnir okkur á í dag hversu mikilvægt það er alla daga að brosa og segja takk!

Jákvætt hugarfar er mikilvægt

Árið 2018 var Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir ein þeirra sem var á 40/40 listanum. Þá var hún 37 ára og starfaði sem forstöðumaður hjá Marel. Þar bar hún ábyrgð á alþjóðlegri nýsköpunarstarfsemi og starfaði þvert á mörg svið fyrirtækisins. Áður hafði hún starfað hjá Eyri Invest en Guðbjörg er með meistaragráðu í iðnaðarverfræði frá Háskóla Íslands.

Í dag er Guðbjörg Heiða framkvæmdastjóri Marels á Íslandi.

Góðu ráð Guðbjargar:

“Að vera með jákvætt hugarfar og áhuga á því sem þú ert að gera, er eitthvað sem nýtist alltaf og gerir daginn skemmtilegri. 

Mér finnst alltaf gott að vinna í teymi, þar sem við höfum sameiginleg markmið og nýtum styrkleika hvers annars. Í slíku teymi er unnið saman, hugmyndir eru ræddar, lausnir mátaðar og ákvarðanir teknar. Stjórnandinn hefur mikið að segja þarna, að skapa traust og góðan anda er eitthvað sem teymi getur illa gert ef stjórnandinn er óviss, óöruggur eða treystir ekki teyminu.

Að geta horft á stóru myndina og byggt brýr er alltaf að verða mikilvægari eiginleiki. Að ná að tengja þannig að hlutirnir falli svo rétt saman. Að stýra fyrirtæki og koma vörum út á markað þarfnast núna sérþekkingar marga fagaðila sem þarf að ná rétt saman svo það gangi upp.

Varðandi meira svona praktíska hluti þá er lykilatriði að taka ákvarðanir og yfirleitt er það þannig að ef þú veist ekki hvað er best að gera þá tekurðu aðeins minni skref í einu og eykur tíðnina. Svipað og maður myndi gera í krísustjórnun. Daglegir fundir og smærri ákvarðanir þangað til þú ert farin að sjá stóru myndina. Á slíkri vegferð þarf að góða sýn og rétt gildi. Þá kemstu alltaf á leiðarenda en þorir að varða veginn jafnt og örugglega.

Mér var einu sinni ráðlagt að á hverjum einasta fundi sem ég færi á þá væri gott að muna alltaf eftir því að brosa og segja takk. 

Ég hélt að viðkomandi ætlaði að ráðleggja mér og útskýra í löngu máli hvernig hver fundur ætti að vera skýr, með markmið og greinargóða niðurstöðu. 

En mér fannst þetta miklu áhugaverðari ráðlegging og reyni að muna eftir henni.

Að lokum, ef það væri bara eitthvað eitt, þá væri það: hlustaðu.“

Gunnar Egill segir afar mikilvægt að fólk muni alltaf eftir því að hugsa vel um heilsuna og rækta sjálfan sig og sína nánustu. Honum finnst gott að fara yfir framtíðarsýnina sína einu sinni á ári og í dag minnir hann okkur á hversu mikilvægt það er að koma alltaf fram við alla af virðingu, sama hvað er.

Að koma fram við alla af virðingu

Gunnar Egill Sigurðsson var á 40/40 listanum árið 2020, þá fertugur. Gunnar starfaði þá sem framkvæmdastjóri verslunarsviðs Samkaupa en þar hafði hann unnið sig upp í starfi. Til að mynda var Gunnar framkvæmdastjóri Nettó í nokkur ár. Í umsögn Góðra samskipta um Gunnar árið 20/20 er það nefnt sérstaklega að Gunnar hafi verið orðaður við forstjórastól Haga sem Finnur Oddsson settist síðan í.

Í dag er Gunnar forstjóri Samkaupa.

Góðu ráð Gunnars: 

„Hugsaðu vel um heilsuna, bæði líkamlega og andlega, án hennar nærðu ekki að þróast áfram, náðu góðum nætursvefn og hreyfðu þig helst daglega. Að sinna áhugamálum og passa sig að hugsa vel um sína nánustu er nauðsynlegt því það koma alltaf ný verkefni og ef maður nær ekki að hreinsa hugann brennur maður hratt út eða verður fullsaddur á því sem maður er að fást við.

Farðu með þig í gegnum stefnumótun eins og þú sért fyrirtæki. Hvað viltu? Hvar ætlar þú að vera eftir 5 ár? Hvað einkennir þig? Hver eru þín persónuleg gildi sem þú tileinkar þér? Og svo framvegis.

Sjálfur skrifa ég árlega niður mína framtíðarsýn, gildin mín, bæði persónuleg og vinnutengd, persónuleg markmið og vinnutengd og hvernig leiðtogi ég vill vera. Þetta hjálpar mér að halda fókus í amstri dagsins og vera leiðarvísir að því að vera stöðugt að vinna að mínum markmiðum og sýn. 

Að koma heiðarlega fram við aðra, alveg sama hvað, og sýna öðrum virðingu er lykilatriði. 

Mikilvægt er að byrja snemma að hugsa um sitt tengslanet og setja skriflega niður fyrir sjálfan sig hvaða fólki maður vill kynnast, í hvaða atvinnugrein, fyrirtæki eða öðru sem manni finnst skipta máli.

Mikilvægt er að fylgja sinni sannfæringu og selja sínar hugmyndir, teikna upp eins skýra mynd af þeim hugmyndum sem maður vill selja, hlusta á skoðanir annarra og fylgja þeim svo eftir.

En...umfram allt að hafa gaman af lífinu og lifa því núna!“

Mikill mannauður

Í gær fjallaði Atvinnulífið um aðdragandann að því að 40/40 listinn varð til. Hann var fyrst birtur árið 2018, síðan 2020 og í þriðja sinn í gær.

Til gamans rifjum við upp með myndum, hverjir hafa verið á listum til þessa en nánari umsagnir um hvern og einn má einnig sjá á vefsíðu Góðra samskipta

Þessi voru á 40/40 listanum árið 2018, sjá nánari umsagnir HÉR.

Þessi voru á 40/40 listanum árið 2020, sjá nánari umsagnir HÉR.

Nýr 40/40 listi fyrir árið 2022 var birtur í gær og hér má sjá þau sem eru á nýja listanum. Nánari umsagnir má sjá HÉR.


Tengdar fréttir

Valdeflandi að eiga flottar myndir af sjálfum sér

Þegar Saga Sig, ljósmyndari, leikstjóri og listakona, tekur myndir af fólki, er hún meðvituð um það að myndirnar munu lifa. Oft eru þetta heimildir síðar meir, ekki síst partur af sögu um til dæmis fólk í stjórnmálum eða rithöfunda.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×