Makamál

Spurning vikunnar: Gefur þú makanum þínum óvæntar gjafir?

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Finnst þér gaman að koma makanum þínum á óvart í hversdagsleikanum? 
Finnst þér gaman að koma makanum þínum á óvart í hversdagsleikanum?  Getty

Það er misjafnt hvaða leiðir við notum til að gleðja ástina í lífinu okkar, enda mjög ólíkt eftir fólki hvað það er sem gleður.  

Ekki allir eru þessar „gjafatýpur“, ef svo má að orði komast, og gleðja makann sinn með öðrum leiðum. 

Kaffi í rúmið á morgnana, elda uppáhalds matinn eða nudda tásurnar fyrir framan sjónvarpið. Leiðirnar eru allavega og eflaust hafa flestir eitthvað sem þeir vita að gleður makann sérstaklega. 

Þegar kemur að gjöfum eru hinir hefðbundnu gjafadagar eru yfirleitt afmælisdagar, jólin, konu- og bóndadagar. Á þessum dögum býst fólk yfirleitt við einhverri gjöf frá makanum, þó svo að allur gangur sé á gjafahefðum hjá fólki.

Þegar við búumst ekki við neinu

En hvað með gjafir í hversdagsleikanum? Alveg upp úr þurru, ekkert tilefni, engin ástæða önnur en sú að þig langaði bara svo að gleðja og gefa ástinni þinni eitthvað. 

Gjafirnar þurfa ekki að vera stórar, dýrar, hvað þá heldur innpakkaðar, en þegar smá hugsun er á bak við gjöfina er hún fólki yfirleitt margfalt dýrmætari. 

Uppáhalds súkkulaðið, gömul vínyl plata með laginu ykkar, ilmkerti, hlýju sokkarnir sem hann elskar, nærföt, gjafabréf á stefnumót eða í nudd. 

Eða bara eitthvað sem þú kipptir með úr búðinni, eitthvað sem þú veist að makinn þinn elskar en er kannski ekki að veita sér.

 Gefur þú makanum þínum óvæntar gjafir?

Spurningunni er beint til allra þeirra sem eru í ástarsambandi.

Makamál hafa síðustu tvö ár spurt lesendur Vísis nær vikulega um þeirra skoðanir og viðhorf varðandi málefni tengd ástinni, samböndum, tilfinningum og kynlífi.

Fyrir áhugasama er hægt að nálgast allar fyrri Spurningar vikunnar og niðurstöður hér.


Tengdar fréttir

Njóttu þess að taka tíma í forleikinn

Þegar kemur að kynlífi er forleikurinn oft á tíðum vanmetinn hluti þess en forleikurinn spilar stórt og mikilvægt hlutverk þegar kemur að örvun og nautn beggja aðila í kynlífi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×